Víkurfréttir - 14.07.2016, Blaðsíða 10
10 fimmtudagur 14. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar eftir að ráða
tímabundið starfsmann í verkefni sem gengur
útá að draga úr brotthvarfi
Um er að ræða sérstakt verkefni sem felst í að þróa og útfæra stuðningsker fyrir þá
nemendur skólans sem teljast vera í hvað mestri brotthvarfshættu. Kerð yrði notað til
að styrkja þessa nemendur og hamla gegn brotthvar. Við leitum að starfsmanni sem
hefur gaman að því að vinna með ungu fólki, er jákvæður og lipur í mannlegum
samskiptum.
Æskilegt er að viðkomandi ha menntun á sviði uppeldis- eða sálarfræði,
félags- eða námsráðgjafar.
Um er að ræða tímabundið verkefni, í 10 mánuði, og er starfshlutfallið 50%.
Ráðning í stöðuna er frá 15. ágúst 2016 og eru starfskjör í samræmi við
stofnanasamninga skólans og viðkomandi stéttarfélags.
Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skal skila í
tölvupósti til skólameistara á netfangið kras@fss.is eigi síðar en 2. ágúst 2016.
Nánari upplýsingar má fá í síma 421-3100 eða í tölvupósti
hjá Kristjáni Ásmundssyni skólameistara, kras@fss.is
og Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara, gp@fss.is.
Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má nna frekari
upplýsingar og sjá myndir úr skólalínu.
LESANDI VIKUNNAR
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Fyrstu bókina í Game of Thrones, ég stefni á að klára þær
allar áður en næsta sería hefst.
Hver er þín eftirlætis bók?
The Hitchhikers Guide to the Galaxy eftir Dou-
glas Adams og Bróðir minn Ljónshjarta eftir
Astrid Lindgren.
Hver er eftirlætis höfundurinn þinn?
Terry Pratchett. Ég kynntist honum í
framhaldsskóla og hef ekki hætt síðan.
Leitt að þær verði ekki fleiri bækurnar
eftir hann en hann dó í fyrra.
Hvernig bækur lestu helst?
Skáldsögur, vísindaskáldsögur og líka
mikið af sagnfræði en aðallega 20. aldar
sagnfræðibækur og ævisögur. Núna er ég
einmitt að glugga í eina áhugaverða bók um
Gúlagið í Sóvétríkjunum. Á seinni árum hef ég líka
tekið upp á því að lesa teiknimyndasögur. Núna er ég mest
að lesa Marvel en hef líka verið að lesa klassískar bækur eft-
ir Frank Miller og Alan Moore. Ég mæli með því að gamlir
„nördar“ kíki í kjallarann í Bókasafni Reykjanesbæjar en
þar hef ég fundið allar teiknimyndasögur sem mig hefur
langað að lesa.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig?
Bókin 1984 eftir George Orwell. Þessi bók er skrifuð upp
úr 1940 og fjallar um stóra bróður í samfélaginu. Í bókinni
eru áleitnar hugmyndir og sterk framtíðarsýn um eftirlit
stóra bróður. George Orwell er án efa einn mesti stílisti
enskrar tungu.
Hvaða bók ættu allir að lesa?
Bróðir minn Ljónshjarta og 1984; það góða og það
slæma.
Hvar finnst þér best að lesa?
Ég næ bestu einbeitingunni ef ég les seint
á kvöldin uppi í rúmi eða þegar ég er í
baði. Þá er alveg friður og ró og ekki
einu sinni síminn sem truflar.
Hvaða bækur standa upp úr sem þú
vilt mæla með?
Ég get alltaf mælt með öllum bókum
eftir Terry Pratchett, það er erfitt að
festast ekki í hans veröld. Líka bókum
Stephen King og George Orwell, þeir eru
frábærir höfundar. Af nýjum íslenskum bókum
fannst mér Öræfi eftir Ófeig Sigurðsson alveg frábær.
Þórbergur Þórðarson er líka alltaf klassískur en ég var að
ljúka við Bréf til Láru og Sálminn um blómið. Mamma las
Sálminn um blómið fyrir mig þegar ég var 5 ára gamall og
ég hafði ekki lesið hana síðan. Sagan stenst alveg tímans
tönn því við kynnumst því hvernig unga fólkið uppgötvar
heiminn og hvernig gamla fólkið uppgötvar heiminn í
gegnum börnin.
Við þökkum Þorgils kærlega fyrir og minnum á heima-
síðu safnsins: sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn þar sem
hægt er að mæla með Lesanda vikunnar.
Finnur teiknimyndasögur
í kjallara bókasafnsins
Sagnfræðingurinn Þorgils Jónsson er Lesandi vikunnar. Þorgils starfar sem tölvumaður á HSS og mælir með allir
lesi bókina 1984. Í seinni tíð byrjaði hann að lesa teiknimyndasögur og hefur fundið marar góðar í kjallaranum á
Bókasafni Reykjanesbæjar.
Í hverri viku í allt sumar verður valinn Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Lesandi vikunnar birtist í Víkur-
fréttum alla fimmtudaga í sumar. Í lok hvers mánaðar fær einhver einn heppinn lesandi lestrarverðlaun. Allir sem vilja
taka þátt eða mæla með lesanda þurfa að skrá sig en það er hægt að gera í afgreiðslu Bókasafnsins eða á heimasíðu safns-
ins:sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn
Þorgils Jónsson heldur mikið
upp á rithöfundinn George
Orwell og segir hann einn
mesta stílista enskrar tungu.
Hópur fólks hittist á Garðskaga í
blíðunni á dögunum og iðkaði jóga
við sjávarnið undir miðnætursól. Ver-
kefnið ber heitið Pop up úti jóga og
er á vegum jógakennaranna Önnu
Margrétar Ólafsdóttur og Tabitha
Tarran og hófst í byrjun júlí. Að sögn
Önnu Margrétar er engin dagskrá
fyrir viðburðina enda verða jógatím-
arnir á ólíkum tímum og á ólíkum
stöðum yfir sumarið. „Jógatímarnir
miða að þörfum hvers hóps hverju
sinni og ekki er nauðsynlegt að hafa
stundað jóga áður. Það er frábært að
fá tækifæri til að njóta sumarsins út í
ystu æsar og rækta um leið líkama og
sál. Þær eru ófáar náttúruperlurnar
á Reykjanesinu og því um að gera að
njóta þeirra og lofa skynjuninni að
eflast þegar hugurinn er kyrraður í
jóga,“ segir hún.
Hægt er að fylgjast með tímunum
á Facebook-síðunni facebook.com/
onnujoga og eingöngu þarf að koma
með dýnu og teppi í tímana. Tímarnir
kosta 500 krónur. Það er því upplagt
að fylgjast vel með og skella sér í jóga
þegar vel viðrar.
„Það er frábært að fá tækifæri til að njóta sumarsins út í ystu æsar og
rækta um leið líkama og sál,“ segir Anna Margrét jógakennari. Jóga-
tímarnir verða á ýmsum stöðum í sumar. Í síðustu viku var tími á Garð-
skaga og var myndin tekið við það tækifæri. Ljósmynd/Aðsend
l Pop up úti jóga á ýmsum stöðum á Suðurnesjum í sumar
Jóga í miðnætur-
sólinni á Garðskaga
Jóhannes Hilmar Jóhannesson
Jói skólabróðir okkar lést af slysförum,
mikil sorg og missir er af ljúfum
dreng. Hann var brosmildur, kátur og hlýr
sem smitaði gleðinni út frá sér.
Minning hans mun ávallt lifa.
Þó styttist dagur, daprist ljós
og dimmi meir og meir,
ég þekki ljós, sem logar skært,
það ljós, er aldrei deyr.
(M. Joch.)
Hvíldu í friði kæri vinur. Þín verður sárt saknað.
Við viljum votta fjölskyldu hans og öðrum
ástvinum samúð okkar. Sendum ykkur hlýju
og styrk á þessum erfiðu tímum.
Samúðarkveðja
Árgangur 1982 Keflavík