Víkurfréttir - 28.07.2016, Qupperneq 1
Hrotta-
leg árás í
Reykjanesbæ
l 17 ára piltur kjálkabrotinn
og hlaut opið beinbrot eftir
barsmíðar
H r o t t a f e n g i n
árás átti sér stað
í Reykjanesbæ í
vikunni sem leið
þar sem sautján
ára piltur hlaut
mikla áverka eftir
fólskulegar bar-
smíðar frá jafn-
ö l du m s í nu m .
Stundin greindi frá málinu en þar seg-
ir að pilturinn hafi verið lokkaður upp
í bíl hjá árásarmönnum sem gengu
svo í skrokk á honum og skildu hann
eftir við skipasmíðastöðina í Njarðvík.
Fórnarlambið tvíkjálkabrotnaði, hlaut
opið beinbrot og tönn var brotin.
Hann mun hafa gengist undir aðgerð
vegna áverkanna.
Síðustu dagar hafa verð annasamir
í sjúkraflutningum hjá Brunavörn-
um Suðurnesja. Annir eru það mikl-
ar að nýtt met hefur verið slegið í
sjúkraflutningum en aldrei í sögu
sjúkraflutninga á Suðurnesjum hafa
verið eins margir flutningar í einum
mánuði. Þegar Víkurfréttir fóru í
prentun síðdegis í gær voru sjúkra-
flutningarnir orðnir 229 í mánuðin-
um. Eldra met var 220 sjúkraflutn-
ingar í janúar 2014.
Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri
Brunavarna Suðurnesja, segir í sam-
tali við Víkurfréttir að ekki aðeins séu
sjúkraflutningarnir margir, þá séu
óvenju mörg útköll á mesta forgangi.
Af þessum 229 útköllum séu 81 á for-
gangi F-1 eða F-2, sem er hratt við-
bragð.
Síðustu daga hafa verið fjölmörg
útköll á Keflavíkurflugvöll þar sem
ferðamannatíminn sé nú í hámarki.
Áður en blaðið fór pentun síðdegis í
gær voru útköll tengd fluginu orðin
fimm þann daginn. Þau tengjast flest
veikindum farþega eða flutningi á
sjúklingum í sjúkraflug. Þó nokkuð er
um að flugvélar þurfi að millilenda á
Íslandi á ferð yfir Atlantshafið, þegar
veikindi verða um borð. Um 11% allra
sjúkraflutninga á Suðurnesjum tengj-
ast Keflavíkurflugvelli og flugstöðinni.
Aukningin í þessum flutningum er
37% frá því í fyrra.
Með auknum ferðamannastraumi
til landsins þá fjölgar einnig erlend-
um sjúklingum sem fluttir eru með
sjúkrabílum Brunavarna Suðurnesja.
Kostnaðurinn við þessa flutninga fell-
ur allur á þá sjúklinga sem eru fluttir.
Sjúklingar frá löndum innan Evrópska
efnahagssvæðisins þurfa að framvísa
skilríkjum sem eru mynduð og Sjúkra-
tryggingar Íslands hafa svo milligöngu
um greiðslur fyrir flutninginn. Aðr-
ir erlendir sjúklingar sem eru fluttir
með sjúkrabílum þurfa að staðgreiða
flutninginn. Þannig eru greiðsluposar
í sjúkrabílunum þar sem sjúklingar
eða aðstandendur þurfa að staðgreiða
flutninginn sem kostar um 40.000
krónur fyrir hverja byrjaða klukku-
stund. Jón Guðlaugsson sagði alla
borga með bros á vör. Það kæmi líka
flestum á óvart að sjúkraflutningurinn
væri ekki dýrari, því sú væri reynslan
víða erlendis.
Á þessu ári eru sjúkraflutningar orðn-
ir 1435 talsins og segir Jón að miðað
við þá aukningu sem orðið hefur í
sjúkraflutningum allt þetta ár megi
búast við að þetta ár verði metár í
sjúkraflutningum.
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagurinn 28. júlí 2016 •30. tölublað • 37. árgangur
Stopp á
vinstri beygju
við Hafnaveg
n Nú er ekki lengur hægt að taka
vinstri beygju frá Hafnavegi upp
Reykjanesbraut í átt að Grænás.
Starfsmenn Vegagerðarinnar mættu
sl. föstudag með kantsteina og skilti
og lokuðu beygjuakgrein á Hafna-
vegi. Sett voru upp skilti sem banna
beygjuna.
Í kjölfar banaslyss sem varð á gatna-
mótum Hafnavegar og Reykjanes-
brautar á dögunum hafa háværar kröf-
ur verið gerðar um úrbætur á þessum
gatnamótum. Margir furðuðu sig á
því hvers vegna ekki hefði verið lokað
fyrir vinstri beygju inn á Hafnaveg-
inn sjálfan frá Reykjanesbraut þegar
komið er upp frá hringtorgi við Stekk.
Áform eru þó um að tengja Hafnaveg
við hringtorgið við Stekk og er því alls
ekki um endanlega lausn að ræða.
Víkurfréttir
í sumarfrí
n Víkurfréttir koma ekki út í næstu
vegna sumarleyfa starfsfólks. Næsta
tölublað Víkurfrétta kemur því út
fimmtudaginn 11. ágúst nk. Skrif-
stofur Víkurfrétta opna aftur eftir
sumarfrí mánudaginn 8. ágúst.
Fréttavakt verður staðin á vf.is alla
virka daga. Blaðamaður á vakt er í
síma 869 3317 og með tölvupóstinn
eythor@vf.is.
Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis,
segir það mikil vonbrigði að United Silicon
og Samtök atvinnulífsins muni ekki ætla að
gera sérkjarasamninga við starfsmenn kís-
ilverksmiðjunnar sem er að rísa í Helguvík.
Fyrir vikið verði verksmiðjan eina stóriðjan
á Íslandi sem ekki gerir slíka samninga við
starfsfólk sitt. Hann gerir ráð fyrir því að erfitt
verði að manna verksmiðjuna nema með er-
lendu vinnuafli.
„Við áttum fund með United Silicon sem fjallaði
um kaup og kjör starfsmanna, en þeir fengu
Samtök atvinnulífsins til þess að annast sín mál.
Þegar ég hef svo rætt málið við talsmann Sam-
taka atvinnulífsins þá segir hann mér að það sé
ekki áhugi af þeirra hálfu fyrir því að gera sér-
kjarasamninga. Þeir ætla að keyra verksmiðjuna
á almennum kjarasamningum,“ segir Kristján
og bætir við að ekkert hafi breyst í þeim málum
síðan þessar viðræður áttu sér stað.
„Það er mín skoðun að þá verði mjög erfitt
að manna verksmiðjuna. Það vill þá oft verða
lausnin að fá útlendinga til þess að sinna stör-
funum sem erfitt er að manna.“ Kristján vill
þó ekki kveða upp dóm um hvort að svo verði
hjá United Silicon. Hann hefur heyrt af því að
verið sé að ráða mannskap í verksmiðjuna en
hefur engar upplýsingar fengið um kjör þeirra.
„Ef niðurstaðan verður sú að þessi verksmiðja
verður mönnuð meira og minna með innfluttu
vinnuafli, þá er til lítils barist að fá þetta hingað í
Helguvíkina. Þá er alveg óþarfi að fara bæði splitt
og spíkat til þess að fá hér atvinnu ef menn vilja
ekki standa við fögur fyrirheit um að þetta séu
vel launuð störf. Hvar eru þau störf? Þau virðast
ekki vera fyrir hendi.“
Sérkjörin fela oftast í sér ákvæði um vaktir og
vinnutíma sem verður til þess að fólk sækir í
slík störf. Sérkjarasamningar eru fyrir hendi í
álverunum í Straumsvík, Grundartanga og á
Austurlandi. „Það yrði niðurstaðan að þetta væri
eina stóriðjan á landinu sem væri ekki með slíka
samninga. Það eru mér vonbrigði að þeir ætli að
tækla málin svona miðað við fyrri yfirlýsingar
um að þarna eigi að vera vel launuð störf.“
Eina stóriðja landsins án sérkjarasamninga
l Kísilver United Silicon gerir almenna samninga við starfsfólk l Erfitt að manna verksmiðjuna að mati verkalýðsforingja
l Erlendir sjúklingar staðgreiða flutning í sjúkrabílnum
Annríki og nýtt met slegið
Skapandi
að slæpast
og leiðast
ÓSKAR KRISTINN
ER EFNILEGUR LEIKSTJÓRI ÚR GRINDAVÍK
SJÁ VIÐTAL Í MIÐOPNU
Vígalegir veiðimenn
Þeir voru heldur betur klárir í slaginn við makrílinn þessir veiðimenn sem Eyþór Sæmundsson myndaði við Keflavíkurhöfn á dögunum.
Fleiri myndir af makríl- og Pokémon-veiðum eru í blaðinu í dag.