Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.07.2016, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 28.07.2016, Blaðsíða 9
9fimmtudagur 28. júlí 2016 VÍKURFRÉTTIR KRAFTMIKILL STARFSMAÐUR Í ALMENN ÞRIF Blue car rental er ört vaxandi fyrirtæki sem leggur mikið upp úr góðri þjónustu við viðskiptavini auk frábærs starfsumhverfis. Blikavelli 3, 235 Reykjanesbæ // s. 773 7070 // blue@bluecarrental.is // www.bluecarrental.is Blue Car Rental óskar eftir að ráða jákvæða og kraftmikla manneskju í almenn þrif á eignum fyrirtækisins, s.s. skrifstofuhúsnæði og íbúðum, auk annarra tilfallandi verkefna. Um er að ræða  hefðbundið 2-2-3 vaktavinnu- kerfi þar sem unnið er 12 tíma vaktir frá kl. 05:00 til 17:00. Blue Car Rental er ört vaxandi fyrirtæki sem leggur mikið upp úr góðri þjónustu við viðskiptavini auk frábærs starfsumhverfis.  Hvaða skilyrði þarf viðkomandi að uppfylla? • Vera 22 ára eða eldri • Hafa reynslu af almennum þrifum • Vera með bílpróf   Umsókn með mynd og helstu upplýsingum berist til Blue Car Rental á skrifstofu fyrirtækisins að Blikavöllum 3, 235 Keflavíkurflugvelli eða með tölvupósti á netfangið blue@bluecarrental.is undir subject: „Atvinnuumsókn“.     Wypożyczalnia samochodów Blue Car Rental poszukuje do pracy osobę pozytywną i energiczną do sprzątania posiadłości firmy, takie jak biura i mieszkania, a także inne projekty. Praca jest w 12-sto godzinnym systemie zmianowym 2-2-3 od 5:00 do 17:00. Blue Car Rental jest prężnie rozwijającą się firmą, skupiającą się na wysokiej jakości usługach oraz wspaniałym środowisku pracy. Kwalifikacje: • Osoba powinna mieć 22 lat lub więcej • Ogólne doświadczenie w sprzątaniu • Prawo jazdy   Aplikacje ze zdjęciem i podstawowymi informacjami należy złożyć w biurze na Blikavellir 3 235 Keflavíkurflugvelli lub wysłać na e-mail blue@bluecarrental.is z tytułem “Application for work” Energiczny Pracownik do Sprzątania n Að vanda var fjölmenni sem mætti til Skötumessu í Garðin- um sem haldin var í tíunda sinn á dögunum. Góður rómur var gerður að skötunni sem er sívin- sæl meðal Suðurnesjamanna. Líkt og áður stigu fjölmargir listamenn og skemmtikraftar á svið og fluttu fjölbreytt skemmtiatriði. Þeir sem mættu í Garðinn í gær nutu ekki einungis matar og skemmtunar, heldur létu þau gott af sér leiða þar sem góð málefni njóta góðs af skötumessunni ár hvert. Meðfylgj- andi eru myndir frá fjörinu. Fjölmenni í Skötuveislu í Garði Víkurfréttir spurðu nokkra Suðurnesja- menn út í áform þeirra um verslunarmanna- helgina en fólk er ýmist á leið á útihátíðir með vinunum, í sumarbústað með fjölskyldunni eða slaka á heima við og njóta kyrrðarinnar. Sólný Lísa Jórunnar- dóttir starfsmaður á leikskólanum Akri er búsett í Reykjanesbæ. Sólný ákvað að fara ekkert þessa verslun- armannahelgi, heldur njóta hennar í staðinn heima með konunni. Hvað á að gera um verslunar- mannahelgina og hvert á að fara? Ég ætla nú bara að vera í Reykjanesbæ yfir þessa verslunarmannahelgina. Hana mun ég eiga rólega með konunni minni og nokkrum góðum vinum. Er einhver verslun- armannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Sú verslunarmannahelgi sem stendur upp úr hjá mér er verslunarmanna- helgin 2015. Við fórum á Flúðir með góðu vinafólki og var stemmningin svo skemmtileg að tíminn flaug alveg frá okkur. Við vorum allan tímann bara á tjaldsvæðinu en var svo yndislegt og gaman og veðrið var geðveikt. Hvað finnst þér einkenna góða verslunarmanna- helgi og finnst þér eitt- hvað vera ómissandi um þessa helgi? Það sem mér finnst einkenna góða verslunarmannahelgi er gott veður og góður félagsskapur. Stemmningin segir svo mikið. Stemmningin segir svo mikið Víkurfréttir spurðu nokkra Suðurnesja- menn út í áform þeirra um verslunarmanna- helgina en fólk er ýmist á leið á útihátíðir með vinunum, í sumarbústað með fjölskyldunni eða slaka á heima við og njóta kyrrðarinnar. Sveinbjörg Anna Karls- dóttir frá Sandgerði er nemi í uppeldis- og menntunarfræðum við Háskóla Ís- lands. Þessa verslunarmannahelgi mun hún standa vaktina hjá 1818. Hvað á að gera um verslunar- mannahelgina og hvert á að fara? Ég ætla að standa vaktina hjá 1818 og veita landsmönnum upplýsingar um allt og ekkert. Á laugardeginum ætla ég reyndar að fara og hitta gamla vinahópinn úr FS og við ætlum að gæða okkur á góðum mat saman. Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Ég hef nokkrum sinnum verið erlendis yfir versl- unarmannahelgina og tróna þær á toppnum yfir eftirminnanlegar verslun- armannahelgar, en þær ná ekki með tærnar þar sem upplifun af fyrstu Þjóð- hátíðinni hefur hælana. Fór á mína fyrstu í fyrra á sunnudagskvöldinu og það er eitthvað sem ég ætla að gera aftur. Hvað finnst þér einkenna góða versl- unarmannahelgi og finnst þér eitthvað vera ómissandi um þessa helgi? Það skiptir engu máli hvert maður fer eða hvað maður gerir meðan maður er með fólki sem manni þykir vænt um, getur haft gaman með og á skemmtilegum stað. Númerið hjá Eyjataxa er 6982038. Þetta númer og fleiri upplýsingar þá svara ég ykkur alla helgina. Gangið hægt um gleðinnar dyr og skemmtið ykkur fallega. 1818 góðan daginn

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.