Morgunblaðið - 30.08.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.08.2017, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2017 6 sögðu sömu blöð að Íslendingar hefðu komið mjög á óvart og leikið betri körfuknattleik heldur en danska landsliðið því leikur Dana hefði einkennst af handknattleik. Dómarar voru báðir danskir og dæmdu ekki jafn strangt og við erum vanir heima, einkum slepptu þeir skrefum dönsku leikmann- anna og leyfðu of harða vörn. Þetta afsakar þó ekki að við töpuðum leiknum. En ég tel ísl. liðið sterkara og ef taugarnar hefðu verið í lagi átti leik- urinn að vinnast auðveldlega. Okkar menn eru t.d. áberandi öruggari á löngum skotum.“ Frammistaða liðsins kom sem sagt mörgum á óvart og nú til dags myndu líklega flestir ekki síð- ur undrast hvernig fjár var aflað til fararinnar. Auk bréfsins þar sem leikmönnum var tilkynnt landsliðssætið, fengu þeir nefnilega annað, dagsett sama dag og einnig ritað á bréfsefni ÍSÍ. Þar sagði: „Framkvæmdanefnd Landskeppninnar við Dani hefur á fundi sínum í dag ákveðið, að þeir körfuknattleiksmenn, er valdir verða til Danmerk- urferðarinnar, er farin verður 14. maí nk. og stendur yfir í ca. 8-10 daga, skuli undirgangast eft- irtalin skilyrði:  Hver maður leggi fram kr. 1.500,00 og taki í staðinn 150 happdrættismiða, er honum er heimilt að selja á kr. 10,00 á miða og rennur andvirði mið- anna til fyrrgreindra útgjalda hans.  Fyrir sitt leyti gerir landsliðsnefnd það að skilyrði að þeir sem valdir hafa verið í landsliðið komi á a.m.k. 3 landsliðsæfingar í viku og fylgi í öllu fyrirmælum landsliðsþjálfarans á þeim æfing- um. Sjái viðkomandi sér ekki fært að hlíta ofan- greindum skilyrðum, sem vonandi kemur þó ekki til, er hann beðinn að tilkynna það einhverjum úr framkvæmdanefnd eða landsliðsnefnd eða á skrif- stofu ÍSÍ (sími 14955) innan 1 dags, svo unnt sé að velja mann í staðinn hið fyrsta.“ Undir bréfið rita Guðmundur Georgsson, fyrir hönd landsliðsnefndar, og Ingólfur Örnólfsson, fyrir hönd framkvæmdanefndar. Sextán ára fór til bankastjóra „Menn urðu alltaf að afla fjár sjálfir, oftast með því að selja happdrættismiða en það endaði gjarn- an með því að maður keypti þá bara sjálfur,“ sagði Birgir Örn Birgis, leikmaður fyrsta landsliðsins, þegar greinarhöfundur vann að ritun bókarinnar Leikni framar líkamsburðum, sögu körfuknatt- leiks á Íslandi í hálfa öld. Birgir var 16 ára þegar fyrsti landsleikurinn fór fram. „Það var ekki endalaust hægt að selja foreldr- unum miða, eða afa og ömmu. Ég kom úr fjöl- skyldu sem hafði ekki mikil fjárráð en ég var mannalegur. Þegar bréfið kom þar sem tilkynnt var að ég hefði verið valinn í fyrsta landsliðið fór ég í Verzlunarbankann og beið þar í röð eftir bankastjóranum. En hann tók mér ekki vel: Nei, vinur minn. Það er ekki hægt að fá víxil út á þetta, var svarið þegar ég sýndi honum bréfið þar sem staðfest var að ég hefði verið valinn í landsliðið! Þarna var verið að reyna að standa á eigin fótum! Engu skipti þó að ég segði honum að pabbi ætlaði að ábyrgjast víxilinn …“ Fyrsta landsliðið Hópurinn sem fór til Danmerkur. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Georgsson, form. landsliðsnefndar, Kristinn V. Jóhannsson, ÍS, Ingi Gunnarsson, ÍKF, Bogi Þorsteinsson far- arstjóri, Ásgeir Guðmundsson þjálfari, Guðmundur Árnason, KFR, Friðrik Bjarnason, ÍKF, og Ingólfur Örnólfsson flokksstjóri. Fremri röð f.v.: Þórir Arinbjarnarson, ÍS, Ólafur Thorlacius, KFR, Birgir Örn Birgis, Ármanni, Ingi Þorsteinsson, KFR, Guðni Ó. Guðnason, ÍS, Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR og Lárus Lárusson, Ármanni. Jón Eysteinsson, ÍS, var fjarverandi þegar myndin var tekin. Landsliðssæti háð því að selja 150 happdrættismiða  Naumt tap fyrir Dönum í fyrsta landsleiknum  Leikmönnum tilkynnt bréf- lega um valið í landsliðshópinn  Birgi Erni neitað um víxil út á landsliðssætið! FYRSTA LANDSLIÐIÐ Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is F yrsti landsleikur Íslands í körfuknatt- leik var gegn Dönum í Kaupmanna- höfn laugardaginn 16. maí árið 1959, tæpum tveimur árum áður en Körfu- knattleikssamband Íslands var stofn- að, í janúar 1961. Danir sigruðu í leiknum, 41:38, en þetta var 40. landsleikur þeirra. Körfubolti hafði verið stundaður hérlendis í all- nokkur ár og Íslandsmót farið fram árlega síðan 1952. Hugmynd um landsleik kviknaði hjá miklum áhugamönnum um íþróttina þarna um veturinn og úr varð að í apríl 1959 var skipuð sérstök fram- kvæmdanefnd vegna ferðarinnar, svo og landsliðs- nefnd og ráðinn landsliðsþjálfari, Ágúst Guð- mundsson, sem þá þjálfaði lið Ármanns. Æft var af kappi í mánuð áður en landsliðið hélt utan 14. maí. Formleg tilkynning Leikmannahópurinn var valinn 20. apríl og formlega staðið að málum því leikmönnum var til- kynnt valið bréflega. Allir fengu svohljóðandi bréf, dagsett í Reykjavík 20. apríl 1959: Á fundi landsliðsnefndar 18/4 ’59 hefur þú verið valinn í landslið Íslendinga í körfuknattleik, sem keppir við Dani 16. maí n.k. Undir bréfið, sem vélritað var á bréfsefni Íþróttasambands Íslands, skrifaði, fyrir hönd landsliðsnefndar, Bogi Þorsteinsson, sem síðar varð fyrsti formaður KKÍ. Þessi fyrsti landsleikur Íslands fór fram í Otto Mönsted-íþróttahöllinni í Kaupmannahöfn og byrj- unarlið Íslands skipuðu Birgir Örn Birgis, Ingi Gunnarsson, Kristinn V. Jóhannsson, Þorsteinn Hallgrímsson og Lárus Lárusson. Kristinn V. gerði 10 stig í leiknum, Þorsteinn 7, Ólafur Thorlacius 6, Ingi Þorsteinsson 4, Lárus, Þórir Arinbjarnarson og Ingi Gunnarsson 3 hver og Birgir Örn 2. Íslendingar heima á Fróni fengu ekki ítarlegar fréttir af leiknum strax. Í bréfi sem Bogi Þor- steinsson, aðalfararstjóri sendi Morgunblaðinu og birtist sex dögum eftir að leikurinn fór fram, segir m.a.: „Dönsku blöðin höfðu spáð því að Danir myndu sigra með yfirburðum því körfuknattleikur væri á frumstigi á Íslandi og Ísland gengi nú til fyrsta landsleiks síns í þessari grein. Eftir leikinn Meðalaldur fyrsta lands- liðshóps Íslands í körfu- bolta var 23 ár. Tveir leikmennirnir voru að- eins 16 ára gamlir, þeir Birgir Örn Birgis úr Ár- manni og Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR-ingur, og voru meira að segja báðir í byrjunarliðinu í fyrsta landsleiknum, gegn Dönum í Kaup- mannahöfn í maí 1959. Þætti ef til vill undarlegt í dag en Ingi heitinn Gunnarsson fyrirliði fyrsta landsliðsins sagði eitt sinn höfundi þess- arar greinar, að það hefði verið í hæsta máta eðlilegt. Birgir Örn og Þorsteinn hefðu verið orðnir það góðir. Fyr- irkomulagið var þannig á þessum árum að þjálfari liðsins og fyrirliði, í þessu tilviki Ás- geir Guðmundsson og Ingi, settust niður daginn fyrir leik og ákváðu byrjunarliðið, að sögn Inga. Myndirnar af Birgi Erni og Þor- steini eru teknar í Danmerkurferðinni. Tveir sextán ára í fyrsta byrjunarliði Birgir Örn Þorsteinn Pálmar Sigurðsson úr Haukum skoraði eina eftirminnilegustu körfu í sögu landsliðsins þegar Ís- land tryggði sér í fyrsta skipti þátt- tökurétt í B-riðli Evrópukeppninnar 1986. Ísland varð að vinna Noreg í síðasta leik C-riðils sem fór fram hér heima. Jafnt var í lokin og Norðmenn í sókn en Torfi Magn- ússon náði boltanum, sendi á Pálmar og hann hleypti af rétt fyrir framan miðju. Boltinn rataði rétta leið og allt varð vitlaust í Höllinni! Ljósmynd/Einar Ólason Pálmar gerir körfuna ótrúlegu gegn Noregi í Laugardalshöllinni. Ævintýri Pálmars ÍR-ingurinn Þorsteinn Hall- grímsson er einn besti leikmaður sem Ísland hefur eignast. Honum var margt til lista lagt og er sá eini sem afrekað hefur að leika í hverri einustu stöðu með lands- liðinu. Hann var venjulega bak- vörður, jafnvel framherji en vegna meiðsla hljóp hann í skarðið og lék sem miðherji í ferð landsliðs- ins um Danmörku og Noreg um áramótin 1974-75. Fjölhæfur Birgir Örn Birgis, leikmaðurinn frábæri úr Ármanni, lék 32 fyrstu landsleiki Íslands. Hinn fyrsti var í Kaupmannahöfn 1959 og sá síð- asti var lokaleikur Íslands á Norð- urlandamótinu 11. apríl 1970, gegn Dönum í Bærum. Það tók hann því tæp ellefu ár að ná 32 leikjum. Fyrsti leikur Íslands án Birgis var 8. júlí 1970 gegn Skot- um á Íþróttahátíð ÍSÍ í Reykjavík. Lék fyrstu 32 EM Í KÖRFUBOLTA 2017

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.