Morgunblaðið - 31.08.2017, Page 2

Morgunblaðið - 31.08.2017, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017FRÉTTIR HAGKVÆMASTA FLUGIÐ FYRIR ÞIG VÍÐTÆK VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA FYRIR HÓPA OG EINSTAKLINGA ÓHÁÐ FLUGFÉLÖGUM FÁÐU VERÐ Á ÞINNI FERÐ Á FLUG@UU.IS VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA ÚRVALS ÚTSÝNAR FLUG@UU.IS SÍMI 585 4400 UU.IS/VIDSKIPTAFERDIR Mesta hækkun Mesta lækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) EIM -7,99% 265 SKEL +20,04% 6,29 S&P 500 NASDAQ +1,43% 6.355,19 +0,53% 2.456,09 -0,56% 7.365,26 FTSE 100 NIKKEI 225 1.3.‘17 1.3.‘1730.8.‘17 30.8.‘17 401.500 602.100 1.950,00 2.087,7 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 53,98 51,39 0,28% 19.506,54 Fjölmörg tækifæri eru fólgin í því að byggja hér á landi upp umhverfi þar sem stutt er við og stuðlað að gerð- armeðferð fyrir alþjóðleg fyrirtæki líkt og þekkist víða erlendis. Rannsóknir Queen Mary háskólans í London hafa sýnt fram á að gerð- ardómur er vinsælasti valkosturinn þegar kemur að úrlausn viðskipta- tengdra ágreiningsmála sem ná yfir landamæri. „Ástæðurnar fyrir því eru fjölmargar,“ segir Garðar Víðir Gunn- arsson, lögmaður sem hefur sérhæft sig í gerðardómsrétti og er eigandi á LEX lögmannsstofu. „Í alþjóðlegu samhengi er gerðarmeðferð mjög skilvirkt ferli við úrlausn ágreinings- mála, málsaðilar hafa til dæmis val um hvaða málsmeðferðarreglur gilda og á hvaða tungumáli málsmeðferð fer fram. Síðast en ekki síst geta málsaðilar valið í hvaða ríki gerð- ardómurinn skuli eiga sæti sitt og það eru til dæmi um það að ríki aðlagi lagaumhverfi sitt með það fyrir aug- um að skapa hagfellt umhverfi fyrir rekstur alþjóðlegra gerðarmála. Þar sem vel hefur tekist til má segja að slíkt hafi leitt til þess að þar hafi orðið til nokkurs konar miðstöðvar á sviði gerðardómsréttar.“ Hlutlaus staðsetning Ýmis atriði koma til skoðunar við val á sæti gerðardóms. Valið fer jafn- an fram við samningsgerð, um leið og viðskiptaaðilar sammælast um að leysa möguleg ágreiningsmál fyrir gerðardómi. Lagaumhverfið skiptir miklu máli en staðsetning, stjórnmál og fleira kemur jafnframt til skoð- unar við valið. „Við erum hlutlaust ríki í miðju Atlantshafi á milli tveggja risavaxinna markaðssvæða, það er því ekki fráleitt að halda því fram að einhverjum þætti það álitlegur kostur að hafa sæti gerðarmeðferðar hér á landi. Ísland er aðili að New York- sáttmálanum sem mælir fyrir um við- urkenningu og fullnustu gerðardóms- úrlausna en til að vera samkeppn- ishæf í þessu sambandi þá þyrfti að fara fram heildarendurskoðun á lög- um um samningsbundna gerðardóma í takt við þá þróun sem hefur verið á þessu sviði erlendis undanfarin ár,“ segir Garðar. Þarf að uppfæra lögin Garðar segir það liggja í augum uppi að hér væri hægt að nýta sér- fræðiþekkingu Íslendinga á norð- urslóðum og í orkumálum. „Ísland er í fararbroddi þegar kemur að mál- efnum norðurslóða og í orkumálum. Það væri tilvalið að byggja hér upp þekkingu og mögulega stofnun sem sérhæfði sig í úrlausn ágreiningsmála á þessum sviðum. Það að stuðla að hagfelldu umhverfi fyrir gerð- armeðferð er til þess fallið að auka innflæði þekkingar og laða að al- þjóðleg fyrirtæki.“ Kostur að vera ekki í ESB Tékkneski lögmaðurinn Alexander J. Belohlavek er á sama máli og Garð- ar og segir Ísland fullt af tækifærum hvað þetta varðar. „Sem tékkneskur ríkisborgari sé ég í raun margt líkt með Íslandi í dag og Mið-Evrópu fyr- ir ríflega aldarfjórðungi. Alþjóðleg viðskipti munu aukast og samhliða því væri kjörið að byggja upp um- hverfi sem styður við alþjóðlegan gerðardómsrétt. Lagaumhverfið er aðgengilegt og tiltölulega einfalt og staðsetningin er tilvalin fyrir mörg fyrirtæki. Þar að auki er Ísland ekki í ESB. Það eru margir aðilar að við- skiptasamningum sem eiga eftir að líta út fyrir ESB í auknum mæli á næstu árum í leit að ríki sem getur verið hentugt sæti gerðardóms af mörgum lagalegum ástæðum,“ segir Alexander. Ísland tilvalið sem gerðardómsmiðstöð Gísli Rúnar Gíslason gislirunar@mbl.is Ýmislegt gerir það að verk- um að Ísland er vel til þess fallið að byggja hér upp eins konar miðstöð fyrir al- þjóðlegan gerðardómsrétt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ísland er í góðri aðstöðu til að byggja upp sérhæfða gerðardómsmiðstöð. SJÁVARÚTVEGUR Hagnaður HB Granda á öðrum árs- fjórðungi nam 1,9 milljónum evra, sem jafngildir um 240 milljónum króna á núverandi gengi. Hagnaður félagsins var 6,9 milljónir evra á sama ársfjórðungi í fyrra. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 54,8 milljónum evra saman- borið við 51,3 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi síðasta árs. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 6,5 milljónum evra en á sama fjórðungi í fyrra nam EBITDA 6,9 milljónum evra. Reiknað til íslenskra króna á með- algengi fyrri helmings ársins voru tekjur á fyrstu sex mánuðunum 11,3 milljarðar króna, EBITDA var 1,6 milljarðar og hagnaður 700 milljónir króna. Heildareignir HB Granda námu rúmlega 490 milljónum evra í lok júní. Eigið fé nam rúmum 238 millj- ónum evra og var eiginfjárhlutfall í lok júní 48,6%. Á fyrri helmingi ársins var afli skipa félagsins 21 þúsund tonn af botnfiski og 57 þúsund tonn af upp- sjávarfiski. Í lok júní gerði félagið út átta fiskiskip. gislirunar@mbl.is Hagnaður HB Granda dregst saman milli ára Morgunblaðið/Golli Vilhjálmur Vilhjálmsson er forstjóri HB Granda en hagnaður dróst saman. FERÐAÞJÓNUSTA Hótel Hafnarfjörður við Reykjavík- urveg í Hafnarfirði hefur skipt um nafn og heitir nú Norðurey Hótel Reykjavik Road. Nafnabreytingin kemur í kjölfar eigendaskipta á hótel- inu, en nýju eigendurnir reka tvö önnur hótel undir sama nafni í Reykjavík; Norðurey Hótel City Gar- den, sem er 19 herbergja hótel við Hrísateig 14, og Norðurey Guest- house við Snorrabraut. „Við erum þessa dagana á fullu að endurnýja öll 71 herbergin hér í Hafnarfirði, og stefnum að því klára það fyrir næsta sumar. Einnig er búið að bæta umhverfi hótelsins auk þess sem móttakan og barinn hafa verið endurnýjuð,“ segir Garðar Hólm Birgisson, framkvæmdastjóri og stærsti eigandi fyrirtækisins ásamt Kjartani Jónssyni. Garðar segir að- spurður að líklega verði fleiri gisti- stöðum bætt við keðjuna á næsta ári. Hann segir reksturinn ganga vel. „Hér hefur verið meira og minna full- bókað og veturinn lítur vel út.“ tobj@mbl.is Nýtt nafn og eigendur Hótels Hafnarfjarðar Morgunblaðið/Ófeigur Hótelið við Reykjavíkurveg er 3.700 fermetrar og er með 71 herbergi. VERÐLAG Verðbólga í ágúst var minni en grein- ingardeildir höfðu spáð. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,25% á milli mánaða í ágúst og lækkar árs- verðbólgan í 1,7% úr 1,8%. Spár greiningardeilda hljóðuðu upp á 0,4- 0,6% hækkun. Að sögn Valdísar Gunnarsdóttur, hagfræðings hjá Arion banka, skiptir þar mestu að húsnæðisverð hafi hækkað minna en verið hefur og að verslanir hafi hækkað verð minna eft- ir sumarútsölur en oft áður á þessum árstíma. Magnús Stefánsson, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir að inn- fluttar vörur hafi ekki hækkað jafn mikið í verði í mánuðinum og sem nam veikingu krónunnar. „Líklegasta skýringin á því er aukin samkeppni samhliða komu fleiri alþjóðlegra verslunarkeðja hingað til lands,“ seg- ir hann. Valdís segir að það hafi komið á óvart hve fatnaður og skór hafi hækk- að lítið á milli mánaða. Hækkunin hafi verið 2,4% en alla jafna eftir út- sölulok sé hækkunin 5-7%. „Verslanir virðist vera að stíga varlega til jarðar með hækkanir vegna aukinnar sam- keppni með opnun H&M,“ segir hún. Magnús segir að líklega hafi út- sölulok færst frá ágúst til september og býst hann þá við að verð muni hækka. Valdís segir að það veki athygli að hótel og veitingastaði hafi ekki hækk- að á milli mánaða líkt og verið hefur. „Eflaust er um að ræða viðbragð við fallandi neyslu ferðamanna og styttri dvalatíma,“ segir hún. helgivifill@mbl.is Minni hækkun fasteigna dregur úr verðbólgu ELDSNEYTISMARKAÐUR Valgeir M. Bald- ursson forstjóri Skeljungs mun láta af störfum í kjölfar skipulagsbreytinga hjá félaginu, að því er fram kemur í til- kynningu sem Skeljungur birti í Kauphöllinni eftir lokun markaða í gær. Breytingin felst í því að í stað þess að íslenski og fær- eyski hluti Skeljungs séu reknir sem tvö aðskilin fyrirtæki, verður litið á alla samstæðuna sem eina heild undir einum forstjóra. Valgeir hyggst starfa með stjórn að undirbúningi breytinganna þar til nýr forstjóri hef- ur verið ráðinn. Forstjóra- skipti hjá Skeljungi Valgeir M. Baldursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.