Morgunblaðið - 31.08.2017, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017FRÉTTIR
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Valin besta nýja
vara ársins,
Nordbygg 2016
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og
framleidd í Svíþjóð.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Á löngum ferli hefur Guðmundur
Tyrfingsson byggt upp öflugt rútu-
fyrirtæki á Selfossi. Hann segir
samgöngubætur góðar fyrir rekst-
urinn en að háir skattar hamli
vexti.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Það er tvennt sem kemur í hug-
ann: Annars vegar að finna og
halda góðu starfsfólki og hitt að
geta boðið sem fjölbreytilegastan
bílaflota. Er stoltur af því að vera
kominn með fyrsta rafmagns-
fólksflutningabílinn sem tekinn er í
notkun á Íslandi og gengur fyrir ís-
lenskri orku.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
sem þú sóttir?
Námskeið sem ég fór á vegna
aukinna ökuréttinda. Það var mjög
fróðlegt og skemmtilegt.
Hvaða bók og hugsuður hefur
haft mest áhrif á hvernig þú
starfar?
Hávamál og þá lífspeki sem þar
er hef ég haft að leiðarljósi. Má þar
nefna að „ár skal rísa sá sem á
yrkjendur fáa og ganga síns verka
á vit. Margt um dvelur þann er um
morgun sefur. Hálfur er auður und
hvötum“. Sá maður sem hefur mót-
að mig mest var Guðmundur Á.
Böðvarsson, heitinn, en ég starfaði
lengi undir hans stjórn á yngri ár-
um og lærði mikið af honum.
Hvernig heldurðu þekkingu
þinni við?
Ég hef alltaf verið opinn fyrir
nýjungum og reynt að fylgjast með
eins og hægt er og í góðu samstarfi
við vinnufélagana sem koma með
nýjungar og þekkingu til að miðla.
Hugsarðu vel um líkamann?
Já, tel mig gera það. Geng eða
hjóla til vinnu á hverjum morgni,
stunda ýmsar æfingar (í ætt við
jóga) og huga vel að mataræði. Svo
heldur vinnan mér einnig í formi.
Hvert væri draumastarfið ef þú
þyrftir að finna þér nýjan starfa?
Myndi vilja sambærilegt starf og
ég hef starfað við stærstan hluta af
lífi mínu. Þetta er ekki bara vinna
heldur er þetta einnig áhugamál
mitt og þannig varð fyrirtækið og
starf mitt eiginlega til. Bílar hafa
skipað stóran sess í lífi mínu alla
tíð.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir
að bæta við þig nýrri gráðu?
Rafmagnsfræði/tölvuþekkingu
þar sem rafmagn er allsráðandi í
öllum bílum í dag og öllu orðið
stýrt af tölvum. Einnig myndi ég
bæta við tungumálum – hef aldrei
haft tíma til að sinna því sökum
vinnu.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Kostir eru tvímælalaust bættar
samgöngur almennt frá því sem
var. Sem betur fer hefur mikið
lagast þó enn vanti talsvert uppá
að það sé boðlegt, þá aðallega há-
lendisvegirnir. Helstu gallar eru
óhófleg skattheimta og allskyns
gjöld sem eru á fyrirtækjum sem
hamla vexti og góðu rekstr-
arumhverfi.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráður í einn dag?
Skattalögum almennt og ekki
síst lífeyri eldri borgara en þar tel
ég um mannréttindabrot að ræða
bæði er varðar lágmarkslífeyri og
það að fólki sé refsað fyrir með
skertum lífeyri ef það vinnur eftir
67 ára aldur. Það gefur lífinu gildi
að fá að vera virkur í atvinnulífinu
og vera áfram einn af hópnum.
SVIPMYND Guðmundur Tyrfingsson stjórnarformaður Guðmundar Tyrfingssonar
„Ár skal rísa sá er á yrkjendur
fáa og ganga síns verka á vit“
Guðmundur er ekki ánægður með að eldri borgurum sé refsað með skertum lífeyri ef þeir vinna.
NÁM: Meistari í bifvélavirkjun frá Iðnskólanum á Selfossi 1961.
STÖRF: Vertíð í Grindavík 1949-1951, á Keflavíkurflugvelli sem
verkamaður 1951-1954; ýmis störf 1954-1957, Bílaverkstæði KÁ
sem nemi og síðar verkstjóri 1957-1970. Eigin rekstur frá 1969 til
dagsins í dag.
ÁHUGAMÁL: Allt sem viðkemur bílum og ferðalög um Ísland
FJÖLSKYLDUHAGIR: Maki er Sigríður V. Benediktsdóttir, börnin
átta talsins.
HIN HLIÐIN
GRÆJAN
Bandaríska tæknifyrirtækið Dell
svipti á dögunum hulunni af nýjum
sýndarveruleikagleraugum sem eiga
að lenda í verslunum í október. Af
lýsingum að dæma býður tækið upp
á blöndu af sýndarveruleika (VR) og
gagnauknum veruleika (AR), því
framan á augnstykkinu eru mynda-
vélar sem ættu að geta blandað sam-
an þeim veruleika sem tölvan fram-
kallar og því umhverfi sem
notandinn er staddur í.
Tækið mun kosta 350 dali eitt og
sér, en 450 dali með tveimur stýri-
pinnum, sem er svipað og verðið á
Vive og Oculus Rift. ai@mbl.is
Sýndar-
veruleiki
frá Dell
STÖÐUTÁKNIÐ
Í sjálfu sér er karlmönnum vorkunn
að geta ekki skreytt sig meira í
vinnunni. Glæsileg jakkaföt, glans-
andi skór, fínt bindi og rándýrt úr
er það eina sem þeir geta leyft sér,
og kannski líka snotran vasaklút,
ermahnappa og nælu í bindið – en
ekki meira en það.
Ófáar áhrifamiklar konur hafa
sýnt að kvenlegur glæsileiki og völd
fara vel saman og réttu flíkurnar og
aukahlutirnir geta sent skýr skila-
boð um hver það er sem ræður. Er
t.d. skemmst að minnast skódrottn-
ingarinnar Theresu May, sem hikar
ekki við að vaða yfir andstæðinga
sína á glerfínum háum hælum, eða
þokkadísarinnar Christine Lagarde
sem notar franska fataskápinn og
meðfædda persónutöfra til að fá
skap. Nýjasta uppfærslan af hand-
töskunni, sem sést hér til hliðar,
kostar um 2.795 pund, eða tæpar
380.000 kr. á gengi dagsins. ai@m-
bl.is
þjóð-
arleiðtoga
á sitt band.
Íslenskar frama-
konur (og raunar karl-
arnir líka ef því er að
skipta – þetta er jú árið 2017)
ættu að athuga hvort hnúajárns-
handtaskan frá Alexander
McQueen reynist ekki ágætis viðbót
við tísku-vopnabúrið. Hnúajárns-
handtöskurnar eru auðþekkjanlegar
og bregða á leik með form sem
flestir tengja við fanta og fauta-
Fyrir konur sem láta ekki vaða yfir sig
Fallega skreytt
hnúajárn fyrir eitil-
harðar prinsessur.