Morgunblaðið - 31.08.2017, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017 7SJÓNARHÓLL
Ný samevrópsk
persónuverndarlöggjöf
tekur gildi á næsta ári
Á tímum þar sem persónuupplýsingar eru
verðmæti og viðskiptalegur hvati, getur vönduð
stefna í meðferð þeirra skapað samkeppnisforskot.
Nýjar kröfur löggjafarinnar þýða meðal annars að:
n aðilar sem vinna með persónuupplýsingar fyrir hönd annarra
þurfa að uppfylla nýjar kröfur;
n allar stofnanir og mörg fyrirtæki þurfa að tilnefna
persónuverndarfulltrúa;
n tilkynna þarf til viðeigandi aðila ef öryggisbrestir eiga sér stað.
KPMG aðstoðar þig við að greina núverandi stöðu og meta hvar
úrbóta er þörf. Nýttu þér hagnýta og raunhæfa nálgun okkar
byggða á alþjóðlegri reynslu.
Hafðu samband við Davíð Kr. Halldórsson, ráðgjafa í upplýsinga
tækni (545 6134 / dhalldorsson@kpmg.is) eða Soffíu Eydísi
Björgvinsdóttur, hdl (545 6089 / sbjorgvinsdottir@kpmg.is)
Ég hef oft hugsaðu um muninn á því aðvinna í hópi eða vinna einn með sjálfumsér. Og þegar ég segi vinna, þá á ég
einfaldlega við það að velta hlutum fyrir sér,
skoða og greina, spá og spekúlera. Á síðustu
árum hefur stóraukin áhersla verið lögð á
vinnu í teymum, oft þverfaglegum, þar sem
hópur fólks kemur saman og ræður ráðum sín-
um. Í skólakerfinu öllu er lögð áhersla á að
nemendur vinni í hópi að lausn margvíslegra
verkefna. Læri að ræða saman, skiptast á
skoðunum, hlusta á röksemdir annarra, taka
tillit til ólíkra sjónarmiða, og þjálfast í að ná
samstöðu um niðurstöður. Það er nauðsynleg
þjálfun fyrir lífið almennt og
ekki síst að koma út í atvinnu-
lífið þar sem á þetta reynir.
Og fyrirtækjalíf einkennist
oftar en ekki af þessu sam-
ráði. Samráði sem fer fram á
þeim fjölmörgu fundum sem
löngum hafa verið nefndir
sem uppspretta góðra hluta,
en geta einnig breyst í and-
hverfu sína. Endalausa funda-
setu þar sem hópur fólks læt-
ur sér leiðast í tilgangslausri umræðu um
einhver leiðindi. Þess vegna er mikilvægt að
allir þeir fundir sem haldnir eru innan fyrir-
tækja hafi skýran tilgang, umræðan skipti
máli fyrir þátttakendur, haldið sé utan um
niðurstöður og þeim fylgt eftir.
Í þessu sambandi vil ég einnig vekja athygli
á vanmetnum þætti í að búa til góðan fund en
það eru aðstæður og umgjörð fundarins.
Almennt tel ég að það hjálpi til við frjóa og öfl-
uga umræðu að huga betur að þeim málum. Ég
fór að velta þessu fyrir mér þegar ég hugleiddi
hvenær maður kemst í bestan gír við að ræða
málin. Hvenær er maður dýpstur og um leið
mest afslappaður og hugsar um leið skyn-
samlega? Jú, það er þegar maður er í hópi góðs
fólks, með þægilega og mjúka birtu, sitjandi í
þægilegum stól, og með tússtöflu við höndina.
Þá geta öflugir hlutir gerst. Og eru að gerast.
Ef litið er til þeirra fyrirtækja sem eru hvað
fremst í nýsköpun og
hamingju starfs-
manna, þá er oftar en
ekki að finna aðstöðu
og umgjörð í vinnuum-
hverfinu sem heldur
utan um hópumræðu
og virkar hvetjandi og
gefandi. Hjálpar til við
að láta hópnum líða vel
og vinna vel saman.
En í allri áherslunni
á hópa eða teymisvinnu má ekki gleyma hinni
leiðinni; að hver og einn hafi tækifæri til að
hugsa sinn gang. Það sem hefur gerst undan-
farin ár er að áherslan á hópvinnu hefur að
mínu mati aðeins komið niður á þeim kostum
sem felast í því að hugsa einn og með sjálfum
sér. Vissulega hefur það töluvert með hvern
einstakling að gera, hvort hann er bestur í hópi
eða einn að hugsa. Það breytir þó ekki því að
gefa þarf einstaklingi tækifæri til að fá næði og
ró til að meta mál út frá eigin brjósti. Án áreit-
is frá öðrum. Frumbyggjar Ástralíu ástunda
það sem þeir nefna „walkabout“ og tengist
m.a. því að verða hugsandi vera, komast í full-
orðinna manna tölu. Segja að á slíkum stund-
um færist maður nær guði. Í þessu sambandi
má nefna að margir af helstu leiðtogum sög-
unnar voru þekktir fyrir að nýta sér þessa leið.
Mahatma Gandhi og Abraham Lincoln áttuðu
sig á mikilvægi þess að fá að vera einir og
hugsa sinn gang. Kunnu að hlusta á raddir og
sjónarmið hópsins og lögðu mikla áherslu á að
fá skoðanir fram og frjóa umræðu og málefnin.
En tóku síðan umræðuna einir með sér til að
velta fyrir sér. Ná andlegu jafnvægi og vega
og meta það sem fram hafið komið. Án trufl-
ana frá klið fjöldans.
Kjarni málsins er að hér, eins og alltaf, þarf
að vera jafnvægi til staðar. Nauðsynlegt og
mikilvægt er að virkja orku og þekkingu hóps-
ins á öflugum fundum þar sem teymið skiptist
á skoðunum í umhverfi sem skapar hlýju og ró.
En á sama tíma er ekki síður mikilvægt að
gefa einstaklingum svigrúm og hvetja til þess
að þeir nýti þá dýpt sem felst í að hugsa málin í
kyrrð og ró.
STJÓRNUN
Þórður Sverrisson,
ráðgjafi í stjórnun og stefnumótun hjá Capacent.
Einn eða í hópi
”
En í allri áherslunni
á hópa eða teymis-
vinnu má ekki
gleyma hinni leið-
inni; að hver og einn
hafi tækifæri til að
hugsa sinn gang.
Morgunblaðið/Eggert