Morgunblaðið - 31.08.2017, Page 11

Morgunblaðið - 31.08.2017, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017 11SJÓNARHÓLL BÓKIN Tvær bækur á langlista FT yfir bestu viðskiptabækur ársins eru ekki enn komnar út. Það þykir ekki lítið afrek að komast á listann, og margir sperra eyrun alveg sérstaklega þeg- ar óútkomnar bækur rata þangað – það hlýtur jú að vera mikið í þannig verk spunnið fyrst útgefendurnir lögðu sig fram við að koma bókunum á framfæri við gagnrýn- endur. Önnur óútkomnu bókanna tveggja á list- anum er eftir banda- ríska áhættufjárfest- inn Ellen Pao: Reset: My Fight for Inclusion and Lasting Change. Pao er mikill reynslubolti, há- menntuð og með langan feril að baki í bandaríska tæknigeiranum. Í dag starfar hún hjá fjárfestingar- sjóðnum Kapor Capital, stýrir sam- tökum sem eru helguð fræðslu um fjölbreytileika á vinnustaðnum, og var um skeið forstjóri samfélags- vefsins Reddit. En það sem gerði Pao fræga var þegar hún kærði fyrr- verandi vinnuveitanda, tækni- fjárfestinn Kleiner Perkins Caufield & Byers og sakaði um mismunun á grundvelli kynferðis. Dómsmálið skók bandaríska tækniheiminn og þótti varpa ljósi á óheilbrigða vinnu- staðamenningu og einsleitni. Pao þurfti að standa af sér harkalegar árásir, og tapaði á endanum dómsmálinu, en í hugum margra stóð hún samt uppi sem sigurvegari, og hetja sem reyndi að verja málstað jafnréttis. Í Reset segir Pao söguna eins og hún leggur sig, og hvernig mismunun í einum öflugasta atvinnugeira heims hefur orðið til þess að halda fólki af „röngum“ kyn- þætti og „röngu“ kyni niðri. Hún bendir á að þó margt hafi áunnist sé slagurinn fjarri því búinn, og ekki seinna vænna að lyfta upp hnef- unum, hika ekki við að tuskast, og segja hingað og ekki lengra. ai@mbl.is Saga konunnar sem tók slaginn Á dögunum var gengið frá ráðningu í eittæðsta embætti á vegum Reykjavíkur-borgar, þegar nýr borgarlögmaður var ráðinn til starfa. Ráðningin þótti nokkuð umdeild og olli töluverðum deilum innan borgarráðs, sem enduðu með því að tillaga borgarstjóra um ráðn- inguna var samþykkt með aðeins fjórum atkvæð- um fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Bjartrar fram- tíðar og Framsóknar og flugvallarvina. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna sátu hjá við afgreiðslu málsins. Það sem vakti sérstaka athygli í tengslum við ráðninguna sneri ekki að því hver var ráðinn held- ur því hversu fáir sóttu um stöðuna. Eins og áður segir þá er starf borgarlögmanns eitt merkileg- asta og best launaða starfið innan borgarinnar og fyrirfram hefði mátt búast við því að starfið yrði afar eftirsótt. Að loknum umsóknarfresti myndu borgarfulltrúar því standa frammi fyrir því lúx- usvandamáli að þurfa að velja úr mörgum hæfum umsækjendum. Svo reynd- ist ekki vera því einungis tveir lögfræðingar sóttu um starfið – sem hlýtur að telj- ast merkilegt. Þessir tveir einstaklingar voru báðir af- ar hæfir og eflaust erfitt fyrir þriggja manna ráðn- ingarnefnd að velja á milli þeirra. Niðurstaða ráðningarnefndar var sú að annar umsækjandinn væri hæfari en hinn og lagði nefndin til að sá aðili fengi starfið, sem síðar varð niðurstaða borgarráðs. Eflaust var niðurstaðan fín og rétt er að óska nýjum borgarlögmanni til ham- ingju með ráðninguna. Það er engu að síður full ástæða til að gera athugasemdir við aðdraganda ráðningarinnar. Hið merkilega starf borgarlögmanns var ein- ungis auglýst laust til umsóknar einu sinni, í einu dagblaði og voru umsækjendur um starfið ein- ungis tveir, eins og áður segir. Annar umsækjand- inn var staðgengill borgarlögmanns á þeim tíma og hinn var sjálfstætt starfandi lögmaður „úti í bæ“, eins og það er oft kallað. Það er með hrein- um ólíkindum að ekki hafi fleiri sótt um starfið og hlýtur skýringuna að mega rekja til þess hversu starfið var lítið auglýst. Þegar auglýst er eftir umsækjendum um laus störf, hvort sem það er innan stjórnsýslunnar eða á almennum vinnumarkaði, þá hlýtur það að vaka fyrir vinnuveitandanum að fá sem flestar umsókn- ir um starfið. Þannig gefst kostur á að velja úr mörgum hæfum umsækjendum. Ef ekki berast nægjanlega margar umsóknir eru til fjölmörg dæmi þess að umsóknarfrestur sé framlengdur eða störf séu auglýst aftur. Það má meira að segja finna mörg dæmi þess innan Reykjavíkurborgar – um störf sem hljóta að teljast áhrifaminni en starf borgar- lögmanns. Sá sem þetta ritar gerði könnun á því hverjir af hans nánustu kollegum hefðu vit- að af hinu auglýsta starfi og varð niðurstaðan sú að aug- lýsingin virtist hafa farið framhjá flestum. Eins og gefur að skilja var könnunin afar óvísindaleg en getur engu að síður gefið ákveðna vísbendingu. Á stjórnvöldum hvíla til- teknar skyldur þegar kemur að auglýsingu á laus- um störfum og ráðningu í opinber störf, allt í nafni vandaðra vinnubragða og gegnsærrar stjórnsýslu. Stundum er nóg að uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur þótt æskilegt sé að stjórnvöld reyni eftir fremsta megni að gera betur en lág- markskröfur kveða á um. Það er engu líkara en að meirihluti borgarráðs hafi ekki sóst eftir því að fá margar umsóknir um starf borgarlögmanns. Ef satt reynist, þá er það afar einkennileg og varhug- arverð stjórnsýsla – hjá stjórnmálaflokkum sem tengja sig við gegnsæ og góð vinnubrögð. Illa ráðið við ráðningu? LÖGFRÆÐI Haukur Örn Birgisson hæstaréttarlögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni ” Þegar auglýst er eftir umsækjendum um laus störf, þá hlýtur það að vaka fyrir vinnuveitandanum að fá sem flestar umsókn- ir um starfið. Þannig gefst kostur á að velja úr mörgum hæfum umsækjendum. Poulsen ehf. | Skeifan 2 | IS-108 Reykjavík | 530 5900 | poulsen.is BREMSUHLUTIR MINTEX HANNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.