Morgunblaðið - 31.08.2017, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2017 15FÓLK
Vökvakerfislausnir
Vökvadælur, vökvamótorar
og stjórnbúnaður
Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður semætlaður er til
notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu skilyrðum.
Álag óblíðrar náttúru, miklar hitabreytingar og stöðugur
ágangur af söltum sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir
áreiðanlegan og skilvirkan búnað.
Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK
SPROTAR
kjúklinga er núna um 1,8-2 kg og var áður 1,1 kg.
Ísúðanum er beint að þeim svæðum kjúklings-
ins þar sem hann er þykkastur. „Okkar lausn er
viðbót við þá kælingu sem fyrir er í verksmiðj-
unum og hjálpar til að ná kælingunni niður í rétt
hitastig. Þarf að ná kjúklingnum úr 8-10°C þegar
hann kemur úr kæliklefanum niður í 4°C, og þar
sem okkar tæki hafa verið notuð er að takast að
kæla kjúklinginn enn meira en það,“ segir þor-
steinn og bætir við að úðatæknin hafi verið þróuð
í nánu samstarfi við Matfugl.
Nýlega voru ísbyssur Thor Ice teknar í notkun
í kjúklingaverksmiðjum í Slóveníu og Ungverja-
landi og segir Þorsteinn að þar hafi þessi viðbót-
arkæling komið sér vel þegar hitastigið úti fór
upp í allt að 40°C. Betri kæling þýðir lengri end-
ingartíma og að sögn Þorsteins á kjúklingur sem
kældur er með aðferðum Thor Ice að geymast í
allt að tólf daga, en kjúklingur kældur með gamla
laginu getur tekið að skemmast á sex dögum.
Hreinsa vatn og búa til verðmætt þykkni
Vatnshreinsitæki Thor Ice byggist einnig á
ískrapatækni. Nýlega keypti hollenskur kartöflu-
framleiðandi hreinsikerfi frá Thor Ice og notar til
að hreinsa vökva sem fellur til þegar sterkja er
unnin úr kartöflunum. „Mikið vatn þarf í sterkju-
framleiðsluna og þarf fyrirtækið bæði að kaupa
vatnið inn í verksmiðjuna og borga fyrir að farga
því. Eftir að hafa síað óhreinindi úr vökvanum
tökum við hann inn í kælistrokkana og búum til
ískristalla. Kristallana má hreinsa frá vökvanum
og þá situr eftir nk. þykkni sem er auðugt af
steinefnum og amínósýrum. Ískristallarnir verða
síðan aftur að vatni sem má nota á ný til sterkju-
gerðar en þykknið er hægt að selja og nýta t.d. í
orkudrykki. Tekst með þessum hætti að endur-
Það hefur kannski ekki farið mjög hátt, en ís-
lenska tæknifyrirtækið Thor-Ice hefur verið að
gera mjög áhugaverða hluti á sviði vatnshreins-
unar. Fyrr á árinu fékk Thor-Ice styrk frá
tækniþróunarsjóði til að vinna að frekari þróun
vatnshreinsitækninnar, en um er að ræða hug-
vitssamlega lausn sem getur stórbætt nýtingu
vatns í matvælaframleiðslu.
Rætur Thor Ice liggja í smíði kælilausna fyrir
sjávarútveg og þegar fyrirtækið var stofnað árið
2003 snerist starfsemin aðallega um að búa til
ískrapastokka sem seldir voru til kælitækni-
fyrirtækja. Í framhaldinu fór Thor Ice að smíða
eigin kælivélar og býr í dag til heildarlausnir fyr-
ir kælingu í matvælaiðinaði.
Vandi að kæla stóra kjúklinga
Thor Ice hefur vakið athygli fyrir kælibúnað
sem notaður er í kjúklingaverksmiðjum en þar
er ískrapatæknin nýtt til að búa til ískristalla
sem úðað er á nýslátraðan fuglinn til að bæta
kælingu kjötsins til muna.
Þorsteinn Ingi Víglundsson, stofnandi og
framkvæmdastjóri Thor-Ice, útskýrir tæknina
nánar: „Vandinn sem kjúklingaræktendur glíma
við er að á tíu árum hafa fuglarnir stækkað mikið
en kæliklefarnir í sláturhúsunum eru enn gerðir
fyrir minni fuglana,“ segir hann en meðalstærð
nýta um 80-90% af vatninu og skapa á sama tíma
verðmæta nýja afurð.“
Sömu hreinsitækni mætti nota víðar, s.s. þar
sem saltvatn er hreinsað og síðan notað til
matvælafarmleiðslu. Eru fyrirtæki í Kaliforníu
áhugasöm um að nota Thor-Ice-hreinsibúnaðinn
en þar er sjór tekinn inn, hreinsaður og síðan
dælt aftur út í hafið. „Þar sem saltstyrkurinn
eykst við hreinsunina er litið á það sem dælt er
út sem mengun og sjá þessi fyrirtæki möguleika í
því að nota okkar tækni til að hreinsa sjóinn enn
betur svo að eftir sitji sterkari saltlausn sem
mætti þá frekar nota til að búa einfaldlega til
salt.“
Nýtir mun minni orku en eiming
Að hreinsa vatn með þessum hætti hefur
marga kosti fram yfir eimingu. Munar mest um
það að kælihreinsunin notar um einn sjötta af
þeirri orku sem þarf til að hreinsa vatn með eim-
ingu. „En upphitun hefur líka þann ókost að
skemma prótín og amínósýrur og auka bakt-
eríumagn. Með því að hreinsa í staðinn með kæl-
ingu varðveitum við næringarefnin og lágmörk-
um bakteríuvöxt,“ segir Þorsteinn.
Er óhætt að reikna með að Thor-Ice muni
stækka töluvert á næstu árum, en í dag vinnur
átta manna hópur hjá fyrirtækinu ef verktakar
eru taldir með. Þorsteinn segir að stuðningur
tækniþróunarsjóðs hafi komið sér mjög vel og vill
hann núna láta fyrirtækið vaxa jafnt og þétt, en
fara sér í engu óðslega. „Í dag eru hluthafarnir
sextán talsins og allt fjölskylda og vinir og því
þolinmótt fjármagn. Ef við tökum fleiri fjárfesta
inn til að hjálpa okkur með næsta vaxtarskeið
munum við sækjast bæði eftir fjármagni og þekk-
ingu.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nota kuldann til að hreinsa vatn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ný hreinsitækni frá Thor-Ice hefur
reynst mjög vel hjá hollenskum kart-
öfluframleiðanda. Ísbyssurnar hafa líka
sannað notagildi sitt í kjúklingarækt.
Örn Ingi Ágústsson, Hlynur Sigurðsson, Birgir Jósafatsson
og Þorsteinn. Á myndina vantar Daníel Brynjólfsson og Pál
Helgason sem eru núna erlendis við uppsetningu á tæki.
VISTASKIPTI
Nova Margrét
Tryggvadóttir hefur
verið ráðin aðstoð-
arforstjóri Nova og
mun hún bera
ábyrgð á daglegum
rekstri fyrirtækisins. Sölu- og þjón-
ustusviði Nova verður nú skipt upp
í tvö svið, annars vegar ein-
staklingssvið og hins vegar
fyrirtækjasvið.
Margrét hefur starfað hjá fyrir-
tækinu frá stofnun og verið einn af
lykilstjórnendum þess. Síðast
gegndi hún starfi framkvæmda-
stjóra sölu og þjónustu en hún
leiddi fyrst markaðs- og vefdeild
fyrirtækisins.
Margrét er alþjóðamarkaðsfræð-
ingur með B.Sc. gráðu frá Tæknihá-
skólanum (nú Háskólinn í Reykja-
vík) og hefur reynslu af stjórnarsetu
í ýmsum fyrirtækjum. Þá hefur hún
gegnt trúnaðarstörfum fyrir Félag
atvinnurekenda og
Stjórnvísi.
Þuríður Björg
Guðnadóttir hefur
verið ráðin til að
stýra einstaklings-
sviði og hefur jafn-
framt tekið sæti í framkvæmda-
stjórn Nova. Hún hefur starfað hjá
Nova frá upphafi starfsferils síns,
fyrst sem sölu- og þjónusturáðgjafi
og síðar sem viðskiptastjóri á fyr-
irtækjasviði. Þuríður tók við stöðu
sem sölu- og þjónustustjóri Nova
árið 2014 og verður nú yfir allri sölu
og þjónustu til einstaklinga.
Hún er með B.Sc. gráðu í rekstr-
arverkfræði frá Háskólanum í
Reykjavík og hefur einnig lokið
námi í stjórnendamarkþjálfun frá
sama skóla.
Skipulagsbreytingar og
nýr aðstoðarforstjóri