Ljósið - 11.06.1921, Qupperneq 1
LJOSIÐ
RITSTJÓRI: EINAR JOCHUMSSON
8. ár.
Reykjavik, júni 1921.
7. blað
Trúfreisis-erindí
til frk. Ólafíu Jóhannsdóttur og vina hennar.
Mig hryggir það kæra Ólafía að þú mentuð, góð
manneskja varst ókristileg í breytni þinni og orðum
þegar ég hitti þig seinast í húsi Benedikts Sveins-
sonar forseta, og ég gaf þér til að lesa vísur til
ritstjóra „Tímansu og almennings. En þú kæra vina
mín sást að vísur þessar féllu ekki þinni blindtrúuðu
sál, kastaðir því vísunum án þess að lesa þær, og
sagðist hvorki vilja lesa guðlast eftir mig né aðra.
A hverju byggir þú þessa ómannúðlegu breytni þína?
Er ég kæra Ólafía þektur að því að vera ókristi-
legur trúleysingi? Heíi ég brotið kærleikslög hins
nýja manns? Eg veit ekki betur en að vér játendur
hins sanna manns séum skyldug bæði karl sem kona
að halda staðfestingareið vorn. Ég vil gjöra það í
Drottins míns Jesú nafni. Það eru engin kristileg lög
sem banna það að vér frelsingjar herra vors kæfum
þann gamla mann svo hinn nýi maður geti náð því
kærleiksríka takmarki, að friður verði á jörðu og
guðsríki gróðursettur í þessum heimi. Aldrei verður
friður fenginn meðan óvinur guðs og manna er kend-
ur ungmennum bæði í orði og verki. Trú á dauða
sögu og ritninguna og tungumálalærdómur eru ekki
enn búnir að fylla kærleikskröfur meistarans frá
Nazaret. Vér sjáum að það er ókristilegt ríki og