Ljósið - 11.06.1921, Blaðsíða 2

Ljósið - 11.06.1921, Blaðsíða 2
2 LJÓSIÐ kirkja, sem kvelja og meiða saklausar menneskjur og ræna fé og lífL margra miljóna saklausra manna. með djöflaæði ]»ví, sem nú hefur verið sýnt í hinum nafnkristna heimi undanfarin ár, síðan stríðið braust út á meðal stórþjóðanna. Kristindómskjarninn er ekki búinn að siða mennina- enn. Það eru ekki smælingjar eða ungdómurinn, sem því veldur. Ekki vantar bókmentir eða guðsorðabækur: biblíur, bæna- kver og sálma, þó er stórhneykslanleg vantrú á hinn guðdómlega meistara frá Xazaret. Vantrú og lýgi frá lærðum heimi er dýrkuð hér á landi og leitað frétta frá framliðnum. Það gerir Einar Kvaran, sá mikli vantrúar- vitringur. Kæra guðsbarn Ólafía! Eg segi þér og öðrum satt. Það kristnar oss ekki liold og blóð hins rétt- láta manns. Það eru orð hans og andi, sem vér sem börn þurfum að meðtaka. Riki og kirkja eru gaml- ar stofnanir frá viltum mönnum, allur ójöfnuður og röng breytni í orði og verki er frá valdboði þessara gömlu stofnana, vér þegnar ríkis og kirkju erum elvki frjálsir nema að litlu leyti, getum því eigi kastað þrældómsokinu af oss, og þeim ókristilegu mannasetningum, er vér nauðugir verðum að lúta. Drottinn blessi þig kæra Ólafía; þetta er lifandi trúarsannfæring mín. Dómsvald mitt er ekki frá mönnum heldur frá mínum sanna guði Jesú Kristi. Eg neita því gjörsamlega að vér börn lierra vors Jesú Krists þurfum að hafa annan guð en þann góða hirðir fyrir löggjafa vorn og guð. IJinn gamli löggjafa-gyðingur á að kafna fyrir frelsisljósi hins nýja manns, er æðst vald fékk á himni og fær það á jörðu líka, þá rétt er kendur náðarlærdómur herra vors. Trúin er ekki hrein hjá blindtrúuðu fólki. Eg er trúaður á sanna manninn, en vantrúaðar

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.