Ljósið - 01.05.1923, Side 4
4
LJOSIÐ
Skilnaðarkvöldmáltíð herra vors er stór-hneykslanleg,
eftir skilningi lúterskra presta. Hold og blóð meistarans
hafa þeir haft til syndalúkningar handa oss um margar
aldir, altarissakramenti er það kallað. — Prestar kirkj-
unnar kenna bókstafinn er deyðir, en gleyma andanum
og orðinu eilífa, sem lyftir hug vorum yfir það veraldar
villimanna æði er drottnar í heimi vorum.
Guð heíir ei dáið.
Guð ei hefir góður dáið, gott mitt sjáið ljósið,
spánýja þið fræði fáið, fræði réttri hrósið.
Segir bræðrum sannleikann, sæll og vel frjáls drengur,
enginn tigna andskotann, óþarfann á lengur.
Guðfróðum að Loki laug, Loka eg móti hamla,
eg finn enga ærutaug, í djöflinum gamla.
Haltu ekki í hneykslin Jón, hneykslum áttu fleygja,
fáðu bjarta sálarsjón, síst má biskup þegja.
Gránar mitt á höfði hár, heimsk er Garðars eyja,
Andskotinn býr í þér þrár, Islendingar segja.
Nýorkt stef.
Andagiftin himni frá, hér er komin jörðu á;
bræður fróðir sannleik sjá, syndin kafna, óþörf, má.
Einar Joehumsson.
Prentsmiðja Acta — 19‘2-H.