Ljósið - 01.02.1908, Síða 6

Ljósið - 01.02.1908, Síða 6
14 LJÓSIÐ Heimskan er drottning presta. Næstliðinn sunnudag hjelt ræðu í Dómkirkjunni, einn guðfróði vitringurinn Runólfur að nafni. Maðurinn talaði skynsamlega í ræðustólnum á milli. Um bænina fór hann mörgum fögrum orðum, í miðri stól- ræðunni strandaði vitið stórkostlega, upp á sama máta og hjá öllum falskennurum kirkjunnar. Presturinn þekkti mig og mína kenning, hann áleit það vantrú mikla, ef allir tryðu ekki bókstaflega, að Jesús Kristur hafi verið kvalinn og deyddur, prestur þessi er eins og hinir hnexlararnir, lieimskur hjátrúarfullur óviti. Það er stórartaður bjánaskapur af lærðum manni, að muna ekki orð |spámannsins. »Hræðist ekki þá sem líkamann deyða, en geta ekki líflátið sálina«. Maður talaði þessi orð, guð var skýrð sál er bjó í dauðlegu holdi. Mikil drottning er heimskan í guðfræðingum vorum, enda verður vit mitt þeim að fótakefli. Sannleikans anda frá andlegum föður vorum og herra Kristi, bið eg upplýsi þennan vin minn og alla presta, svo þeir kenni hreinan sannleika æskulýðnum framvegis. Réttlæting aí trá. Framh. Mér virðist, kæru hræður og systur, það vera bæði broslegt og sorglegt, að herrarnir Jón Helgason og Þórhallur Bjarnason, skuli ekki sjá að kenningar að- ferð þeirra er mjög heimskuleg. í öðru orðinu segja þessir fróðu menn, að postulinn Páll hafi skilið réttlæting af trú mæta vel, nokkrum línum seinna í liugleiðing sinni, efast þeir um, að Páll hafi skilið rétt það sama efni sem um er að ræða. En mér þykir undarlegt, að þessir fróðu herrar skulu ekki nota sitt eigið vit og skynsemi; þeir vilja byggja hugs-

x

Ljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.