Ljósið - 27.06.1913, Side 7

Ljósið - 27.06.1913, Side 7
L J Ó S I Ð 79 Ástvaldur Gíslason kandidat talaði og nokkur orð, og var það meira í hófi, en þó samkvæmt hans gömlu skoðunum. Síðast reið séra Fr. Friðriksson á hið gamla vað og var þeirra svæsnastur, þar eð hann kannaðist ekki við annað, en að öll biblían væri innblásin og guðs opinberaða orð, og var ræða hans svo sterk í garð nýguðfræðinganna, að þegar hann loksins hætti, stóð biskupinn upp og áminti hann með bróðurlegum orðum, að hann gæti ekki tekið alt í ritningunni inn sem nær- ingu handa sinni göfugu og góðu sál. Hann yrði að hafna mörgu, sem ekki gæti átt sér stað, að væri samboðið réttkristn- um anda og heilbrigðri skynsemi. * * * Þess skal getið, að þingherrann nýi, séra Kristinn Dantels- son, sagðist ekki geta vegna annríkis setið Sýnóuds allan og bar fram tillögu um að mótmæla gífuryrðum og árás lögmanns Gísla Sveinssonar um þjóðkirkjuprestana og þeirra kenningar- máta. En biskup vor, Þórhallur Bjarnarson, mælti með kurteisi á móti þessu ráðlagi þjóðklerksins kvaðst álíta, að klerkarnir ættu ekki að berjast móti þessu máli með atkvæðagreiðslu. Það væri nóg að ganga fram hjá málinu sem óheyrðu, og er það eftir honum blessuðum, en kastar þó skugga á hans eigin rann- sóknarvit í guðfræðilegum efnum. * * * Eg talaði nokkur orð, áður en eg gekk út, og vonast eg til, að öllum, sem heyrðu til mtn, hafi fundist það vera vel sagt, ég sagði, að Jesús Kristur væri sá eini sanni guð og frelsari þjóðanna. Við kristnir menu ættum að heiðra og virða hann með því að Iaga og fullkomna lífsbreytni vora eftir þörf tímans; en breyting er óumflýanleg í guðfræeislegum efnum sem öðrum. Vinnið því ykkar verk í Jesú nafni með hans frelsisanda, þá mun hinn mikli herra styrkja starf ykkar og blessa það.

x

Ljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.