Fréttablaðið - 12.02.2018, Page 33

Fréttablaðið - 12.02.2018, Page 33
Sindri Reyr Smárason hjá Hópkaupum er ánægður með að geta sýnt Enox sjónvarpstækin. Sýningartæki eru í Smáralind og Kringlunni þar sem fólk getur séð gæðin með eigin augum. MYND/ANtoN BRiNK „Þetta eru glæsileg tæki með Android 6 stýrikerfi, panellinn er úr smiðju Samsung og tækið hefur fengið glimrandi dóma,“ segir Sindri Reyr. 55 og 65 tommu skjáirnir eru vinsælastir hjá íslenskum kaupendum en tveggja ára ábyrgð er á öllum tækjunum. Þegar Hópkaup buðu fyrsta sjónvarpstækið frá Enox á gámatilboði voru væntingarn- ar miklar en Sindra Reyr, forstöðu- manni Hópkaupa, óraði þó ekki við þeim viðtökum sem tækin hafa fengið. „Fyrsta gámatilboðið hjá okkur fór í loftið í apríl í fyrra. Þetta var auðvitað svolítil áhætta, við vissum ekki hvernig landinn myndi taka þessu en þetta gekk mjög vel. Viðtökurnar eru ástæða þess að við höfum haldið þessu áfram, auk þess sem gæðin á ENOX-tækjunum eru alveg frábær,“ segir Sindri Reyr. „Fyrsti gámurinn seldist upp á met- tíma og síðan hefur hver gámurinn á fætur öðrum komið til landsins, fullur af Enox sjónvörpum. Þetta eru yfir 1.900 tæki.“ Hann segir breytilegt hversu mörg tæki koma í hverjum gámi. „Þrjár stærðir eru í boði, 55“ tæki á einungis 66.200 kr., 65“ tæki á 99.900 kr. og risatækið, heilar 75“, er á 199.900 kr. Það fer eftir því hvernig raðast í gámana, en við höfum verið að fá um 370 55-tommu tæki, tæp 200 65-tommu og síðan ekki nema 100 75-tommu tæki.“ Langvinsælasta tækið er það sem er 55-tommu, en við erum samtals búin að selja nærri 900 þannig tæki. 65-tomman er reyndar ekki langt undan, en rúmlega 600 eru seld af þeim. Við erum því að tala um að Íslendingar hafa keypt um 1.500 55 og 65 tommu ENOX tæki síðustu mánuði. En hvernig er hægt að bjóða þetta verð? „Við kaupum tækin milliliða- laust frá þýska framleiðandanum Enox og gámurinn fer aldrei af stað fyrr en hann er fullur. Þannig fæst þetta verð. Þetta eru glæsileg tæki með Android 6 stýrikerfi, panellinn er úr smiðju Samsung og tækið hefur fengið glimrandi dóma. 75“ tækið er líka furðu vinsælt, þetta er risaskjár sem þarf mikið pláss til að njóta sín sem best en fyrir sumum er ekki til neitt sem heitir of stórt sjónvarp!“ segir Sindri. Tveggja ára ábyrgð er á sjónvarpstækjunum en í boði er að kaupa viðbótarábyrgð á aðeins 6.620 kr og gildir þá ábyrgðin í þrjú ár. Það er Litsýn sem sér um viðhald ef eitthvað er. Sjáðu gæðin með eigin augum En er fólk ekkert hrætt við að renna blint í sjóinn og kaupa tæki sem það hefur ekki barið augum? „Svo virðist ekki hafa verið“ segir Sindri, „en nú erum við búin að koma upp sýningartækjum bæði í Smáralind og Kringlunni þar sem fólk getur séð gæðin með eigin augum. Enox hefur náð góðri markaðshlutdeild á ótrúlega skömmum tíma og sjón er sögu ríkari. Síðustu gámarnir fyrir HM koma í maí og við erum enn að selja í þá ef fólk vill tryggja sér tæki áður en blásið verður til leiks,“ segir Sindri að lokum. . ENoX sjónvarpstækin slá í gegn: Yfir 1.900 stykki seld Hópkaup hafa boðið upp á Enox sjónvarpstæki síðan í apríl í fyrra og síðan hefur ekkert lát verið á vinsældum þessara frábæru sjónvarpstækja. Nú geta áhugasamir séð gæðin með eigin augum en sýningartæki hafa nú verið sett upp bæði í Kringlunni og Smáralind. FÓLK KYNNiNGARBLAÐ 5 M Á N U DAG U R 1 2 . f E b r úa r 2 0 1 8 1 2 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E F 1 -7 C 6 0 1 E F 1 -7 B 2 4 1 E F 1 -7 9 E 8 1 E F 1 -7 8 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.