Fréttablaðið - 12.02.2018, Page 37
Audi Q7 e-tron quattro
Spennuþrungið
tilboð
Nokkrir Audi Q7 e-tron quattro hlaðnir
aukahlutum á einstöku tilboðsverði.
Á rafmagninu kemstu flestra þinna
daglegra ferða en í lengri ferðum tekur
dísilvélin við.
Listaverð 11.690.000 kr.
Tilboðsverð 10.990.000 kr.
Aukahlutir umfram staðalbúnað:
• Sportsæti með leður-/alcantara- áklæði • Samlitir brettakantar
og stuðarar • Audi Connect tenging fyrir SIM kort
• Google Map tenging með StreetView • Snjallsímatenging fyrir
Google Play og Apple Carplay • Dökkar rúður • Leðurklætt
sport aðgerðastýri, fjögurra arma með flipaskiptingu
• Bakkmyndavél • LED inniljósapakki • Lykillaust aðgengi með
snertilausri opnun á afturhlera • Ambient inniljósapakki
• Lengri hleðslukapall • 20” álfelgur 10-Spoke Star Design
• Dráttarbeisli með bakkaðstoð • Hæðastillanleg loftpúðafjöðrun
handbolti ÍBV er komið með
annan fótinn í 8-liða úrslit Áskor-
endabikars Evrópu eftir sjö marka
sigur, 32-25, á ísraelska liðinu
Ramhat Hashron á laugardaginn.
Liðin mætast aftur í Ísrael laugar-
daginn 17. febrúar.
Eyjamenn voru marki yfir í hálf-
leik, 15-14, í leiknum í fyrradag en í
seinni hálfleiknum tóku þeir völdin,
unnu hann 17-11 og leikinn með
sjö mörkum, 32-25. Staða ÍBV fyrir
seinni leikinn er því afar góð.
Agnar Smári Jónsson og Sigur-
bergur Sveinsson voru markahæstir
í liði ÍBV með sjö mörk hvor. Theo-
dór Sigur-
björnsson
skoraði
s e x
m ö r k
og Frið-
rik Hólm
J ó n s s o n
f i m m .
E y j a -
vö r n i n
v a r
sterk í
s e i n n i
h á l f -
l e i k o g
Aron Rafn
Eðvarðsson
var öflugur
þ a r f y r i r
a f t a n o g
varði hátt
í 20 skot í
leiknum.
– iþs
Eyjamenn í
góðri stöðu
fótbolti Sjötugasta og annað árs-
þing KSÍ var haldið á Hilton Reykja-
vík Nordica á laugardaginn.
Ingi Sigurðsson (Vestmannaeyj-
um) og Valgeir Sigurðsson (Garða-
bæ) koma nýir inn í aðalstjórn KSÍ.
Gísli Gíslason (Akranesi) og Ragn-
hildur Skúladóttir (Reykjavík) voru
endurkjörin í aðalstjórnina. Alls
buðu 10 einstaklingar sig fram.
Rúnar Vífill Arnarson (Keflavík),
sem hefur setið í aðalstjórn KSÍ í 10
ár, var ekki endurkjörinn.
Auk Inga, Valgeirs, Gísla og Ragn-
hildar sitja Guðrún Inga Sívertsen
(Reykjavík), Borghildur Sigurðar-
dóttir (Kópavogi), Magnús Gylfa-
son (Hafnarfirði) og Vignir Már
Þormóðsson (Akureyri) í aðalstjórn
KSÍ. Kjörtímabili þeirra lýkur á
næsta ári.
Stjórn KSÍ lagði til lagabreytingu
um að kosið yrði um formann
knattspyrnusambandsins á þriggja
en ekki tveggja ára fresti. Það var
einnig lagt til að formaður KSÍ
mætti ekki sitja lengur en fjögur
kjörtímabil samfleytt.
Nítján af þeim 24 félögum sem
eru hluti af Íslenskum toppfótbolta,
hagsmunasamtökum félaga í tveim-
ur efstu deildum karla, lögðu til
breytingar á vægi þingfulltrúa, þ.e.
að stærri félög fengju fleiri fulltrúa
á ársþingi KSÍ. Þau lögðu einnig til
að Íslenskur toppfótbolti fengi tvo
áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundum
KSÍ. Þá var einnig lagt til að kjör for-
manns og stjórnar yrði óbreytt.
Svo fór að lagabreytingartillög-
unum var frestað fram til næsta
ársþings KSÍ og þeim vísað til laga-
nefndar sambandsins. Staðan er því
í raun óbreytt.
Tillaga Reynis Sandgerðis um að
fjölga liðum í 3. deild karla úr 10 í 12
var samþykkt. Næsta sumar komast
því þrjú lið upp úr 4. deildinni en
aðeins eitt fellur úr þeirri þriðju.
Efstu fjórar deildir karla verða því
allar skipaðar 12 liðum árið 2019.
Þá var tillaga stjórnar KSÍ um að
skorað yrði á íslensk stjórnvöld að
fara hina svokölluðu „skosku leið“
samþykkt. KSÍ óskar þar með eftir
stuðningi íslenska ríkisins við að
lækka ferðakostnað liða á lands-
byggðinni. Þessi háttur hefur verið
hafður á í Skotlandi síðan 2005 og
gefist vel.
„Markmiðið með ADS er að auka
aðgengi að flugþjónustu á við-
ráðanlegu verði frá jaðarbyggðum.
Að íbúar með heimilisfesti á skil-
greindum jaðarsvæðum hafi betra
aðgengi að stjórnsýslu, þjónustu og
afþreyingu og stuðli að meiri félags-
legri þátttöku í borgarsamfélaginu.
Íbúar með lögheimili á skilgreindum
landssvæðum fá aðgang að ADS og
greiða 50% af flugfari sem í okkar til-
felli væri til Reykjavíkur. Í Skotlandi
fá einnig ýmis félagasamtök s.s. góð-
gerðarfélög, íþróttafélög, björgunar-
sveitir o.fl. aðgang að ADS,“ segir í
tillögu stjórnar KSÍ. – iþs
Lagabreytingatillögum frestað til næsta ársþings
Stjórn KSÍ stillti sér upp fyrir myndatöku á ársþingi sambandsins á Hilton Reykjavík Nordica í fyrradag. MyNd/KSÍ/PjetuR
Ingi Sigurðsson og
Valgeir Sigurðsson koma
nýir inn í aðalstjórn KSÍ.
S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ðf a b l a 13M Á n U d a G U r 1 2 . f e b r ú a r 2 0 1 8
1
2
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
F
1
-5
9
D
0
1
E
F
1
-5
8
9
4
1
E
F
1
-5
7
5
8
1
E
F
1
-5
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K