Víkurfréttir - 22.06.2017, Side 17
17Fimmtudagur 22. júní 2017 VÍKURFRÉTTIR
Eydís er ekki lengi að hugsa sig um við val á eftirlætis
bók. ,,Það er engin spurning í mínum huga, það er bara
ein sem kemst þangað. Bókin heitir Hroki og hleypi-
dómar og er eftir Jane Austen.“ Þann 18. júlí eru liðin
200 ár síðan Jane Austen lést en hún er og verður, að sögn
Eydísar, hennar uppáhalds rithöfundur.
Það sem Eydís les helst fyrir utan námsbækur er fræðslu-
efni tengt meðgöngum og fæðingum, glæpasögur eru
alltaf í uppáhaldi og klassískar bókmenntir eftir kven-
kyns höfunda.
Sú bók sem hefur hvað mest áhrif á Eydísi er uppáhalds
bókin hennar, Hroki og hleypidómar. Eydís hefur lesið
bókina margoft en oftast á ensku. Hún segist ekki endi-
lega kjósa það frekar en bókin hafi verið til sem ókeypis
eintak í smáforritinu iBooks, sem og aðrar bækur eftir
Jane Austen. Sagan tekur fyrir alls konar dýnamík í
mannlegum samskiptum sem Eydísi finnst mjög áhuga-
vert og margt sem má heimfæra á okkar tíma sem nú-
tímamanneskjan er enn að kljást við. ,,Ekki bara ástin,
líka staða okkar í samfélaginu, staða innan hópa, staða
kynjanna.“
,,Enska þess tíma er ljómandi skemmtileg og mörg orð
hafa allt aðra þýðingu í dag þannig að ég gat skellt hressi-
lega upp úr við og við.“
Aðalsöguhetja bókarinnar er Elisabeth Bennet og minnir
hún Eydísi með margt á hina hispurslausu Samönthu
Jones úr sjónvarpsþáttunum vinsælu Sex and the City.
,,Hún stóð alltaf með sér og sínum löngunum, það finnst
mér ótrúlega flott. Þetta er líka gríðarlega feminískt rit,
samfélagslega gagnrýnið en veitir ótrúlega mikla inn-
sýn. Ritstíll Jane Austen er líka afskaplega flottur, þessi
mögnuðu samtöl sem eru í gangi og þessi rosaleg per-
sónusköpun.“
Að mati Eydísar ættu allir að lesa Hroki og hleypidómar
því sagan kennir svo margt. Einnig telur hún að allir
hefðu gott af því að lesa Bréfin hans Þórbergs sem veita
dásamlega innsýn í hans persónulega líf og líf hans sem
rithöfundar.
Eydís kýs að lesa upp í rúmi og les jafnt rafbækur sem
hefðbundnar.
Bækurnar sem Eydís mælir með í sumarlesturinn eru
glæpasögur eftir Fred Vargas, öllu eftir Jane Austen,
Fýkur yfir hæðir og fyrir alla sem eiga börn mælir hún
með bókinni Samskipti foreldra og barna – Að ala upp
ábyrga æsku – eftir Dr. Thomas Gordon. Einnig mælir
hún með My invented country eftir Isabel Allende og
Þrettánda sagan eftir Diane Setterfield.
Á eyðieyju þyrfti Eydís eingöngu eina bók, Hroki og
hleypidómar. ,,Það er endalaust hægt að læra af þessari
bók.“
Það sem eftir lifir sumars ætlar Eydís að njóta þess sem
hver dagur hefur upp á að bjóða, gera það besta úr öllu og
klára Fýkur yfir hæðir í rólegheitunum.
Bókasafn Reykjanesbæjar er opið alla virka daga frá
klukkan 09-18 og á laugardögum frá klukkan 11-17. Raf-
bókasafnið er alltaf opið – nánari upplýsingar á heima-
síðu safnsins. Á heimasíðu safnsins er hægt að mæla með
Lesanda vikunnar.
Jane Austen er og verður í uppáhaldi
Lesandi vikunnar er einlægur aðdáandi
rithöfundarins Jane Austen og bókin
Hroki og hleypidómar er í sérstöku uppá-
haldi eftir sama höfund. Eydís Hentze er
háskólanemi, færeyskur zen-meistari
og móðir. Eftir annasaman vetur unir
Eydís sér vel í garðinum og nýtur þess að
lesa aðrar bækur en skólabækur. Þessa
stundina er hún að lesa Fýkur yfir hæðir
eftir Emily Brontë.
Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar
Bílaleiga með starfstöð á Keflavíkurflugvelli
óskar eftir að ráða starfsmann.
Hæfniskröfur:
Sjálfstæð vinnubrögð og útsjónarsemi
Jákvætt hugarfar og rík þjónustulund
Góð enskukunnátta
(vald á öðrum tungumálum kostur)
Almenn tölvukunnátta og bílpróf
Umsóknarfrestur er til 10. júlí
nk. Áhugasamir vinsamlegast
sendið umsókn ásamt ferilskrá
á netfangið go@goiceland.com
ATVINNA
HREINGERNINGAR - RÆSTINGAR - AUKAVINNA
STARFSKRAFTUR ÓSKAST Í HREINGERNINGAR / RÆSTINGAR
Okkur hjá Allt hreint vantar fólk til starfa
bæði er um að ræða fullt starf og
einnig vinna eftir samkomulagi.
Mikil vinna framundan.
Kröfur: Viðkomandi verður að vera a.m.k. 18 ára
og vera með gild ökuréttindi.
Áhugasamir sendi tölvupóst á halldor@allthreint.is
WORK
STAFF NEEDED. MUCH WORK AHEAD.
Requirements: Individuals must be at least 18 years
old and have a valid driver's licens.
Languages: Icelandic or good English.
We look for people for full time work ( 08:00 - 16:00 100% )
and also part time.
If interested please send an e-mail to: halldor@allthreint.is
Rauðakrossbúðin
er komin í sumarfrí
Opnum aftur 16. ágúst.
Gleðilegt sumar.
SUMARFRÍ
Allir ættu að lesa Hroka
og hleypidóma segir Eydís
Hentze háskólanemi og
lesandi vikunnar í Bóka-
safni Reykjanesbæjar
Vegna vaxandi umsvifa vantar okkur hressan
og skemmtilegan einstakling sem verkefnisstjóra
í endurmenntun Keilis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásdís
Ólafsdóttir á asdis@keilir.net. Umsóknir berist
á sama netfang fyrir 5. júlí næstkomandi.
Keilir starfar eftir jafnréttis- og fjölskyldustefnu.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja
um starfið.
KEILIR AUGLÝSIR LAUST
STARF VERKEFNISSTJÓRA
Í ENDURMENNTUN