Víkurfréttir - 29.06.2017, Side 1
Hvað gera 11 ára tvíburasystur frá
Bandaríkjunum þegar þær verða
óvænt strandaglópar og umkomu-
lausar í Reykjanesbæ? Pabbinn á
sjúkrahúsi í Reykjavík og mamman í
Las Vegas í Bandaríkjunum? Jú, þær
heillast bara af lögreglumanninum
sem kom þeim til hjálpar og vilja fá
að gista heima hjá honum?
Sjúkrabifreið var kölluð í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á dögunum til að
sækja þangað bandarískan ferða-
mann sem grunur lék á að hafi fengið
heilablæðingu. Maðurinn var í flug-
stöðinni ásamt dætrum sínum, 11 ára
tvíburum. Feðginin fóru með sjúkra-
bílnum á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja, HSS. Þaðan var faðirinn fluttur
áfram á Landspítalann í Reykjavík en
dæturnar urðu eftir á HSS.
„Það barst svo símtal frá sjúkrahús-
inu á lögreglustöðina með spurningu
um hvað ætti að gera við stelpurnar,“
sagði lögreglumaður hjá lögreglunni
á Suðurnesjum. Hann biðst undan því
að vera nafngreindur.
Samkvæmt lýsingu á atburðarásinni
þá munu systurnar hafa grátið mikið,
enda óttast um föður sinni sem hafði
verið fluttur áfram á sjúkrahús í
Reykjavík og þær allt í einu orðnar
umkomulausar í Reykjanesbæ. Þær
voru á ferðalagi með pabba sínum og
komu hingað frá Írlandi og voru á leið
til San Francisco í Bandaríkjunum.
Lögreglumaður sótti systurnar á HSS
og fór með þær á lögreglustöðina í
Keflavík þar sem bæði var haft sam-
band við bandaríska sendiráðið og
einnig barnaverndaryfirvöld. Þá var
einnig reynt að ná í móðurina sem býr
í Las Vegas.
„Þetta ferli hafði örugglega tekið um
eina klukkustund og á þeim tíma tókst
mér að ná vel til systranna og hafði
tekist að hugga þær. Ég sagði þeim frá
hinu og þessu og var einnig að reyna
að útskýra fyrir þeim næstu skref. Ég
sagði þeim að við vissum ekki hvað
ætti að gera við þær. Þá spurði önnur
þeirra; getum við ekki bara komið
með þér heim? - Hvað segir maður
þá við 11 ára gamalt barn sem spyr
svona?“ segir lögreglumaðurinn sem
tók á móti systrunum á lögreglustöð-
inni í Keflavík.
Hann ræddi málið við bandaríska
sendiráðið, barnavernd og móður
stúlknanna. „Mamman sagði bara
þvert nei, það komi ekki til greina
að dætur hennar fari heim með ein-
hverjum karli á Íslandi. Ég sendi henni
vinabeiðni á Facebook og sendiráðið
ræddi við hana líka og þá var þetta
ekkert mál. Það var því ekki um neitt
annað að ræða en að ég hringdi í kon-
una mína og sagði að ég væri að koma
heim með tvær ellefu ára stelpur úr
vinnunni, eins og ekkert væri eðli-
legra,“ segir lögreglumaðurinn.
Hann fór með systurnar heim þar sem
pantaðar voru pizzur og systurnar
léku sér við börn lögreglumannsins.
Hann var í stöðugu sambandi við
bandaríska sendiráðið og móðurina í
Bandaríkjunum. Þá hringdu systurnar
í mömmu sína í gegnum Facetime.
Daginn eftir fóru systurnar með lög-
reglunni í bakaríið, Víkingaheima og
í búð þar sem keyptar voru pylsur á
grillið og slegið upp grillveislu. Síðar
um daginn var systrunum svo skutlað
upp í flugstöð og í flug með WOW
air til Los Angeles í Bandaríkjunum
þar sem mamma þeirra sótti þær
eftir ævintýraför til Reykjanesbæjar.
Pabbi stúlknanna var svo útskrifaður
af sjúkrahúsi og fór utan daginn eftir,
heill heilsu.
Lögreglumaðurinn sagðist í samtali
við Víkurfréttir hafa heyrt frá móður
tvíburanna eftir að hún hafi sótt þær á
flugvöllinn og þær hafi verið ánægðar
með móttökurnar sem þær fengu á Ís-
landi. Þær hafi verið óttaslegnar þegar
pabbi þeirra var fluttur á sjúkrahús
en lögreglan hafi breytt ferðalaginu í
ævintýri sem muni seint gleymast.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagur 29. júní 2017 • 26. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Kaupverðið fasteigna Reykjanesbæ hækkaði um
50% frá fyrsta ársfjórðungi 2016 til fyrsta ársfjórð-
ungs 2017, úr 152 þús. í 228 þús. kr. og er komið
mjög nálægt byggingarkostnaði húsnæðis, sem
með lóðarverði er um 300 þús. kr. á Suðurnesjum.
„Það er mikil og jákvæð sveifla á Suðurnesjum. At-
vinnuleysi hefur aldrei verið minna og mikill fjöldi
starfa hefur myndast í ferðaþjónustu og í tengslum
við Keflavíkurflugvöll. Fasteignamarkaðurinn er
að endurspegla þá jákvæðu þróun sem hefur orð-
ið,“ sagði Magnús Árni Skúlason hjá Reykjavík
Economics á á morgunfundi Íslandsbanka um
fasteignamarkaðinn, í Hljómahöllinni sl. föstudag.
Verð á íbúðarhúsnæði er þó ennþá nokkuð undir
byggingakostnaði en það er þó misjafnt eftir hverfum.
Sums staðar sé það komið í byggingarkostnað og
jafnvel rúmlega það. Þá er íbúðarverð í Reykjanesbæ
að nálgast íbúðarverð í suðurhluta Hafnarfjarðar.
Veltan á fasteignamarkaðnum á Suðurnesjum jókst
um 65% á árinu 2016 og nam 29 milljörðum kr. Um
30% af kaupendum á fasteignum á Suðurnesjum eru
þeir sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign. Flestir
kaupsamningar í Reykjanesbæ voru á verðbilinu
15-30 milljónir eða 52%. Búast má við því að íbúðar-
verð muni hækka enn meira þar sem mun minna sé
af húsnæði í byggingu en árið 2008. Um 1200 íbúðir
komu inn á markaðinn eftir brotthvarf hersins en
nú er staðan sú að mikil vöntun er á íbúðarhúsnæði
á Suðurnesjum. Magnús taldi að um þúsund íbúðir
vantaði á svæðið til að anna eftirspurn. Íbúafjölgun
í Reykjanesbæ frá maí 2016 til maí 2017 var um 7%
eða um 1100 íbúar.
l Íbúðarverð mun hækka enn meira á Suðurnesjum l Stór hópur að kaupa sína fyrstu fasteign
l Vantar þúsund íbúðir á næstu árum l Atvinnuleysi aldrei verið minna
Umkomulausir 11 ára tvíburar í óvænt
ævintýri með lögreglunni í Reykjanesbæ
l Pabbinn endaði á sjúkrahúsi í Reykjavík og mamman stödd í Las Vegas l Fengu að gista heima hjá löggunni
Mikil og jákvæð sveifla á Suðurnesjum Skógur
í byggð
Keflavíkurskógur er ágætt nafn
á svæðið ofan Hringbrautar í
Keflavík. Þarna voru fyrstu trén
gróðursett fyrir um 60 árum.
Sjá nánar í blaðinu í dag.
Skólavegur, Vallartún, Miðtún og Sóltún í Keflavík. Þar er kominn myndar-
legur gróður í garða eftir áratuga ræktun. Myndin er tekin með flygildi
Víkurfrétta fyrir nokkrum dögum. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson