Víkurfréttir - 13.07.2017, Side 6
6 fimmtudagur 13. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · BLÓ-
MAKASSAR · HÁÞRÝSIDÆLUR · ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI B&D · HJÓL OG FYLGIHLUTIR · GARÐHÚS-
GÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓL · TENGI · CLABER · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN PALLAOLÍA JOTUN VIÐARVÖRN ·
ELECTROLUX RYKSUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR,
BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECTROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA
· SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · BLÓ-

BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECTROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA ·
SUM RÚ L N
Sumarblóm 30-50% · Tré og runnar 50% · Fjölærar plöntur 50%
Matjurtir 50% · Garðarósir 50% · Útipottar 30% · Garð styttur 30%
Fræ og sáðbakkar 30% · Silkisumar blóm 30% · Vökvunarkönnur 30%
Úðabrúsar 30% · Sláttuvélar 20% Garðverkfæri 25% · Hekkklippur 30%
Keðjusagir 30% · Vermireitir og blómakassar 20% · Háþrýstidælur 20%
Áltröppur og stigar 30% · Rafmagnsverkfæri Black&Decker 30%
Reiðjól og fylgihlutir 30% · Garðhúsgögn 30%
Úðarar, slönguhjól og tengi 30% · True North Útivistafatnaður 50%
Pallaolía 25% · Viðarvörn 25% · Innimálning 25% · Útimálning 25%
Vegg- og loftaþiljur 25% Leikföng 30% · Búsáhöld 25%
BroilKing grill 20% · Grill fylgihlutir, Broil King, GrillPro 30%
Harðparket og undirlag 25% · Electrolux smáraftæki 20%
Verkfæratöskur 35% · Ferðavörur 25% ...og margt fleira
Okkar stærsta
sumarútsala frá upphafi
er í fullum gangi
Komdu og gerðu betri kaup
AFSLÁTTUR
Byggjum á betra verði *Gildir ekki af tilboðum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“.
Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Vöruúrval getur verið misjafnt milli verslanna.
Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar
,,Átakanlegar örlagasögur halda mér við lesturinn“
María Rós Skúladóttir, félagsráðgjafi
og forstöðumaður Öldrunarþjónustu
Reykjanesbæjar er Lesandi vikunnar.
Vorið hefur verið mikið bókavor hjá
Maríu og hefur hún lesið nokkrar góð-
ar með hækkandi sól. Hún segir það
hafa verið kærkomið að gleyma sér
yfir góðri sögu í vor þegar námsbæk-
urnar fengu að víkja af náttborðinu.
María Rós lauk nýverið við bókina
Kirkja Hafsins eftir Ildefonso Falcones.
Sú bók hafði lengi legið á náttborðinu
hjá henni en bókina fékk hún að gjöf
frá föður sínum fyrir nokkrum árum.
Þar áður las hún bókina To Sostre eftir
norska höfundin n Åsne Seierstad.
Bókin er sönn frásögn og fjallar um
norskar systur sem halda til Sýrlands
án vitneskju fjölskyldu sinnar þar sem
þær giftast inn í öfgatrú og árangurs-
lausa baráttu föður þeirra við að fá þær
aftur heim til Noregs. Åsne skrifaði
meðal annars Bóksalinn í Kabúl og
Einn af okkur þar sem hún fjallar um
fjöldamorðin í Úteyjum og þátt And-
res Breidvík. Vinkona Maríu keypti
bókina fyrir hana í Danmörku; ,, þurfti
ég því að fríska upp á dönskuna við
lesturinn sem var ágætis áskorun.“
María segist eiga ótrúlega margar
uppáhaldsbækur og eiga margar þeirra
það sameiginlegt að vera sögulegar
skáldsögur sem fjalla um ástir og átök
kvenna. Karítas og Óreiða á striga eftir
Kristínu Marju Baldursdóttur, Auður
og Korkusaga eftir Vilborgu Davíðs-
dóttur, Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur
og Reisubók Guðríðar Símonardóttur
eftir Steinunni Jóhannesdóttur standa
þar upp úr. Málverkið eftir Ólaf Jó-
hann Ólafsson hefur einnig setið í
Maríu og þykir henni hún vera virki-
lega fallega skrifuð bók. ,,Ætli Kirkja
Hafsins sé svo ekki nýja uppáhalds-
bókin mín.“
María Rós telur að allir hefðu gott af
því að lesa bókina The power of Vulne-
rability eftir félagsráðgjafann Brene
Brown. ,,Bókin gerir okkur að betri
manneskjum og heiminn að betri stað.
Brene á líka einn af topp tíu vinsælustu
fyrirlestrum á ted.com þar sem hún
fjallar um efni bókarinnar.“
María segist miklu frekar lesa bækur
vegna áhuga á viðfangsefninu fremur
en eftir höfundum. Það eru því ótal-
margir sem María segist geta nefnt í
þessu samhengi, t.d. Vilborgu Davíðs-
dóttur, Kristínu Marju Baldursdóttur
og Brene Brown til að nefna einhverja.
Þær bækur sem María Rós les einna
helst eru endurminningar, ævisögur
og sögulegar skáldsögur. ,,Átakanlegar
örlagasögur höfða til félagsráðgjafans í
mér og halda mér við lesturinn.“
Sú bók sem hefur haft hve mest áhrif
á Maríu Rós er bókin um Jónatan Li-
vingstone máv eftir Richard Bach en
bókina fékk hún í gjöf frá vinkonu
sinni fyrir 20 árum. ,,Bókin kennir
okkur að vera trú sjálfum okkur og
markmiðum okkar en ekki síður að
vera óhrædd við að fara okkar eigin
leiðir í lífinu“ bætir María við.
Bókin The Rape of Nanking: The for-
gotten Holocaust of World War II eftir
Iris Chang hafði einnig mikil áhrif á
Maríu en bókin er söguleg og fjallar
um fjöldamorð í kínversku borginni
Nanking. Bókina las María þegar hún
dvaldi um tíma í Kína og segir hún
bókina hafa gefið henni ákveðna inn-
sýn í menningu og sögu landsins.
María Rós segist helst komast í lestr-
argírinn í fríi á sólarströnd og veit hún
fátt betra en að liggja á bekk niðri á
strönd með góða bók við hönd. Einnig
þykir henni alltaf gott að gleyma sér
í bók á flugferðum og svo bara uppi í
rúmi í kósý.
Á eyðieyju býst María Rós við að
pakka niður bókinni um Jónatan
máv. ,,Það væri eflaust líka skynsam-
legt að taka með sér dagbókina. Þá
gæti maður haldið utan um dagana og
skrifað hugsanir sínar niður á blað.“
Sumarið er tíminn og nóg um að vera
hjá Maríu Rós en hún ætlar að njóta
þess að eyða tímanum með fólkinu
sínu, horfa á strákinn sinn spila fót-
bolta og allt sem því fylgir. Í haust sam-
einast fjölskyldan svo á Spáni í tilefni af
60 ára afmælinu móður hennar. María
Rós verður þá væntanlega á ströndinni
með góða bók.
Hvað ertu að bralla þessa dagana?
Ég er á síðasta ári í viðskiptafræði með
tölvunarfræði sem aukagrein í HR,
starfa sem flugfreyja hjá WOW air og
æfi bootcamp.
Hvað finnst þér best við það að hafa
alist upp á Suðurnesjunum?
Ég myndi segja nágrennið. Það var
auðvelt að fara á milli staða þar sem
allt var í göngufæri, hvort sem það var
verið að fara á æfingu eða að leika við
vini sína.
Ef þú ættir að mæla með einhverju
einu af svæðinu fyrir ferðamenn,
hvað væri það?
Ég myndi mæla með að skoða Gunnu-
hver og það svæði. Einnig að labba
meðfram göngustígnum hjá Berginu
í Reykjanesbæ og þá sérstaklega á
sumrin.
Hvað ætlaru að gera í sumar?
Ég setti mér það markmið fyrr í sumar
að nýta mér dagana sem ég er í fríi
í útivist, bæði að fara í fjallgöngur
og heimsækja náttúrulaugarnar um
landið.
Hvað finnst þér betur mega fara í
bænum?
Mér finnst að verslun og þjónusta
mætti vera líflegri og fólk tæki meiri
þátt. Svo væri algjör snilld ef Vestur-
bæjarís myndi opna.
Vill Vesturbæjarís
til Suðurnesja
●● Olga●Ýr●Georgsdóttir●svarar●spurningum●
um●lífið●og●tilveruna●suður●með●sjó
Olga Ýr gæðir sér á ís á Bitanum.