Víkurfréttir - 13.07.2017, Blaðsíða 10
10 fimmtudagur 13. júLí 2017VÍKURFRÉTTIR
FORSTÖÐUMAÐUR FLUGAFGREIÐSLUSVIÐS Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
IGS ehf. leitar að öflugum einstaklingi í spennandi og krefjandi starf forstöðumanns flugafgreiðslusviðs.
Viðskiptavinir IGS ehf. eru íslensk og erlend flugfélög. Staðan heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni:
• Ábyrgur fyrir daglegum rekstri flugafgreiðslusviðs
• Áætlunargerð
• Stefnumótun
• Samningagerð
• Samskipti við erlenda viðskiptavini
• Þátttaka í alþjóðlegum kaupstefnum og sýningum
• Sölu- og markaðsmál
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í viðskipta- og/eða rekstrarfræði
eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Mikið frumkvæði og frjó hugsun
• Öguð, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Útsjónarsemi og heiðarleiki
Umsóknir skal fylla út á heimasíðu IGS ehf (www.igs.is) fyrir 25. júlí
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Olsen, golsen@igs.is og/eða Svala Guðjónsdóttir, svala@igs.is
IGS ATVINNA
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Erna Geirmundsdóttir,
Sóltúni 15, Keflavík,
lést laugardaginn 1. júlí á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 17. júlí kl.13.
Þeir sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Geirmundur Sigvaldason Ásdís Gunnarsdóttir
Þorsteinn Sigvaldason Auður Gunnarsdóttir
Sigrún Sigvaldadóttir Kristinn Bjarnason
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Helgi Steinþórsson,
pípulagningameistari,
Freyjuvöllum 12, Keflavík,
lést á landspítalanum Fossvogi föstudaginn 30. júní.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 18. júlí kl. 13:00.
Karitas Jóna Gísladóttir
Guðmundur Helgason
Steinar Már Helgason Rebecca Scattergood
Gísli Jónatan Helgason Una Dís Fróðadóttir
Davíð Helgason
og barnabörn.
Ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma
Kristrún Guðmundsdóttir,
lést á Landsspítalanum Hringbraut 8. júlí,
útförin fer fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju 20. júlí kl. 13.00.
Jón Bjarnason
Erla Jónsdóttir Valtýr Gylfason
Guðmundur Rúnar Jónsson Sæunn G. Guðjónsdóttir
Elvar Örn Valtýrsson
Unnar Ernir Valtýrsson
Kristrún Erla Guðmundsdóttir
Arndís Ólöf Guðmundsdóttir
■ Hótelgestirnir eru flestir af er-
lendu bergi brotnir og komnir til
landsins til að skoða sig um. Dag-
mara segir gestina frá ýmsum
löndum, alls staðar frá í heiminum.
„Flugstöðin er svo nálægt. Túrist-
arnir koma oft og gista eina nótt
og fara svo og ferðast út á land. Svo
koma þeir oftast hingað aftur dag-
inn fyrir flug og skoða svæðið hér.
Við erum með sautján herbergi og
það er alltaf fullbókað hjá okkur. Ef
við værum með þrjátíu herbergi þá
væru þau pottþétt fullbókuð.“
Hún segir algengt að ferðamennirnir
tali um að dýrt sé á Íslandi. „Fólk
heldur að það sé ódýrt á Íslandi en
kemur svo hingað og verður mjög
hissa yfir þessu. Ég var að aðstoða
ferðamenn um daginn sem höfðu at-
hugað hvað það kostaði að fara með
leigubíl þrjá kílómetra frá flugstöð-
inni. Það hefði kostað þá um 25 evrur,
eða um 3.000 krónur. Það er ótrúlegt.
Ferð í leigubíl héðan til Reykjavíkur
aðra leiðina kostar um 17.500 krónur.
Það gerist mjög sjaldan að fólk taki
leigubíl héðan.“ Dagmara segir flesta
ferðamennina kjósa frekar að taka
rútu á milli staða eða leigja bílaleigubíl
vegna verðsins.
Bláa lónið er vinsælt meðal ferða-
manna en þeir komast margir hverjir
ekki að vegna mikillar aðsóknar í
þennan vinsæla ferðamannastað. „Það
er oftast fullbókað í Bláa Lónið og
það þarf að panta með miklum fyrir-
vara. Annars mæli ég oftast með því
að túristarnir skoði Hafnir, brúnna
milli heimsálfa, ströndina í Garðinum
og Skessuhelli. Svo er líka notalegt að
taka göngutúr meðfram sjónum og
taka myndir.“
Gestirnir hissa yfir íslensku verðlagi
●● Hvetur●ferðamenn●til●að●skoða●Suðurnesin● ●● Góð●aðsókn●hjá●Hótel●Jazz●í●Keflavík
„Síðan við opnuðum
hefur þetta gengið
rosalega vel,“ segir
Dagmara Kizica,
starfsmaður Hotel
Jazz, en hótelið hefur
nú verið starfandi í
tæpt ár í gamla hús-
næði Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar
að Austurgötu 13
í Keflavík.
Dagmara Kizica, starfsmaður Hotel Jazz
fyrir framan hótelið þar sem síðast var
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar.