Land & synir - 01.08.1998, Page 1
Böðvar Bjarki Pétursson og
Hákon Már Oddsson velta
fyrir sér i
Sigurjón Baldur Hafsteins-
son og BöðvarBjarki
Pétursson rœða um eðtí
Við birtum kajla úr nýjustu
bók Einars Más Guðmunds-
sonar, Latmsynir orðanna,
þar sem hann fjattar um
kynni sín af og samstarfvið
Friðrik Þór Friðriksson
Bandaríski kyikmynda-^
1'víiteivandar ekki
starfsbrœðrum sínum
kveðjurnar i
þistíi
myndúm semvœntanlegar
eru í bíóhús á árinu
Með allt á hreinu
ÓlafurH. Torfason bendir
kkur á að uþpruni bíó-
oL
myndanna er
húsinu
HINIR____________ _____
RITNEFNDAR HVERJU SINNI
Slurpinn & co.
Otuttmyndin Slurpinn & co. eftir
ðKatrínu Ólafsdóttur vann nýlega
fyrstu verðlaun á alþjóðlegu stutt-
myndahátíðinni í Toronto. Þessi þrett-
án mínútna ræma gerist á stórri skrif-
stofu þar sem við sögu koma forstjór-
inn, ritarar, framkvæmdastjórar og
ríkur kúnni.
Sagan er án orða og sögð í einu
skoti, þar sem myndavélin snýst í
hringi og grípur atburði eftir því sem
EFIÍFIÐ VÆRIDANS: Ingvar E.
Sigurðsson ogKatrín Ólafsdóttir
í algleymi í Slurpnum & co.
þeir gerast.
Katrín skrifaði einnig handritið
og framleiðir ásamt Reyni Lyngdal í
samvinnu við fslensku kvikmynda-
samsteypuna. Tökumaður er Hall-
dór Gunnarsson, leikmyndaliönn-
uður Árni Páll Jóhannsson og tón- _
Hstin er eftir Margréti Örnólfsdóttur. í
aðalhlutverkum eru Ingvar E. Sigurðs-
son, Halldóra Geirharðsdóttir, Arni
Péttir Guðjónsson, Björn Ingi Hilm-
arsson og Kristbjörg Kjeld.
Myndin var styrkt af Kvikmynda-
sjóði íslands, Menningarsjóði útvarps-
stöðva og Norræna kvikmynda- og
sjónvarpssjóðnum. Fyrirhugað er að
sýna hana í kvikmyndahúsum með
haustinu.
L&S óskar Katrínu og co. til ham-
ingju með áfangann.
Handritaverkefni Kvikmvndasióðs:
Fjórir fá
framhaldsstyrk
Fjögur handritsverkefni fengu
framhaldsstyrk úr Kvikmyndasjóði
nýlega að upphæð 300.000 kr. hvert.
Þau voru: Þegar rafmagnið fór af
(Huldar Breiðfjörð), Regína (Sjón og
Margrét Örnólfsdóttir), Móðir snill-
ingsins (María Sigurðardóttir) og
Skari Skrípó (Óskar Jónasson).
Tvö þessara verkefna verða svo sigtuð
úr á hausti komanda og fá þá frekari
styrk til að klára sig almennilega.
Sunnudagsleikhúsið - önnur umferð:
Tólf ný verk
r lpptokum er nú lokið á níu sjón-
varpsleikritum í nýrri umferð
Sunnudagsleikhússins sem sýnd
verður nœsta vetur. Þrír höfundar
skrífuðu prjií verk hver: KarlÁgúst
Úlfsson (leikstj. Hilmarjónsson),
Hlín Agnarsdóttir (leikst. Viðar
Víkingsson) og Friðrik Erlingsson
(leikstj. Marteinn St. Þórsson, Hjörtur
Grétarsson ogÁsgrímur Sverrisson).
Ennfremur hafa Ámi Þórarinsson og
Páll Pálsson skrifað prjú verk sem
unnin verða hjá Saga-film og
leikstjóri peirra erHilmar Oddsson.
Þess má oggeta að Egill Eðvarðs-
son hefur lokið upptökum á
sjónvarpsmynd sinni Blóðshömm,
sem byggð er á Sólhorgarmálinu.
Samsteypan frumsýnir tvær erlendar sam-
framleiðslumyndir með haustinu
I^slenska kvikmyndasamsteypan
hyggst frumsýna tvær samfram-
leiðslumyndir innan skamms tíma.
Fyrri myndin er frumraun Danans
Simon Staho, Vild Spor, með Nikoli
Coster-Waldau (Nattevagten), Mads
Mikkelsen og Pálínu Jónsdóttur í
helstu hlutverkum, en hún var filmuð
hér á landi í fyrrasumar með Jón Karl
Helgason bakvið tökuvélina. Myndin
hefur þegar verið sýnd í Danmörku og
hlaut þar þokkalegar undirtektir.
Frumsýning hér verður í byrjun ágúst.
Seinni myndin er írsk og kallast
Sweety Barrett. Leikstjóri er Stephen
Bradley og kemur Samsteypan ein-
göngu að eftirvinnslu myndarinnar.
Þetta mun vera dramatísk ævintýra-
mynd og verður sýnd hér í byrjun
október.
Samsteypan á einnig réttinn á mynd
Todd Solondsz, Welcome to the Doll-
house, sem hlaut Sundance-verðlaun í
fyrra og stendur til að sýna hana á
næstunni.
Þá er og stefnt að frumsýningu
Myrkrahöfðingjans eftir Hrafn Gunn-
laugsson í janúar næstkomandi, en við
sögðum frá því í síðasta hefti L&S.
Djöflaeyjan gengur vel í dreifingu
Djöflaeyjan verður frumsýnd í
Bandaríkjunum í nóvember, en
dreifingaraðili hennar, Artistic Licence
Films, hyggst dreifa henni í helstu
stórborgum landsins í framhaldi af
því. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
mynd með íslensku tali fær svo víða
dreifingu í Bandaríkjunum, en
Djöflaeyjan hefur nú verið seld til
sýninga í kvikmyndahúsum í 20
löndum.