Land & synir - 01.04.2001, Síða 1

Land & synir - 01.04.2001, Síða 1
Meðal efnis: Villiljós Farið yfir ummœli þeirra sem tjáðu sig um myndina Horft framan í heiminn Ásgrímur Sverrisson veltir því fyrir sér hverskonar myndir börnin okkar eigi að horfa á Höfundaréttur Tómas Þorvaldsson lögfrœðingur fjallar um höfundarétt og skyld réttindi varðandi kvikmyndir Árbæjarsafn heim til Hrafns Anna Rögnvaldsdóttir er með nýstárlegir hugmyndir í skipulagsmálum Úthlutun stutt- og heimildar- myndadeildar Kvikmynda- sjóðs Allt um þessa fyrstu úthlutun Kristínar Pálsdóttur og fleira Stjarnan í eigin harmleik HEIMILDARMYNDIN LALLIJOHNS SÝND í HÁSKÓLABÍÓI VIÐ MIKLA AÐSÓKN Fullt var út úr dyrum á frumsýningunni á Lalla Johns í Háskólabíói 29. mars s.l. og þurfti að vísa síðbúnum boðsgestum frá. Skemmst er frá að segja að áhorfendur tóku heimildarmynd Þorfinns Guðnasonar með kostum og kynjum. í myndinni er fylgst með Lalla Johns í rúm fjögur ár en á því tímabili sat hann af sér fjóra dóma á Litla Hrauni, lenti þrisvar á spítala og fór tvisvar í meðferð. Þessi saga af síbrotamanni til 30 ára og vonlausri dópfíkn, rugli og hrakning- um, væri ólýsanlega niðurdrepandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Lalli elskar kvik- myndatökuvélina og sú ást er gagnkvæm. Maðurinn hefur hreint ótrúlega sterkan persónulegan stíl sem aldrei hættir að koma áhorfendum á óvart og gullkornin sem hrjóta af hans vörum eru hvert öðru kostulegri. Þeir sem gerðu þann feil að fara ekki að sjá Lalla Johns á stóra tjaldinu geta huggað sig við það að myndin verður sýnd í RÚV einhvern- tímann eftir páska. Anna Rögnvaldsdóttir. ÍSLENSKUR ÍKON: Lalli Johns hefur heldur betur slegið í gegn hjá bíógestum sem fjölmenntu í Háskólabíó til að horfa á heimildarmyndina um hann. Nýjar hugmyndir varðandi þróun og fjármögnun leikins sjónvarpsefnis Starfshópur á vegum íslensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar og Bandalags íslenskra listamanna vinnur nú að mótun hugmynda varðandi þróun og fjármögnun leikins sjónvarpsefnis. Hópurinn telur að skortur á fjármagni hafi á undanförnum árum sett mjög mark sitt á sjónvarpsframleiðslu. Því litla sem hefur verið framleitt hefur verið skorin mjög þröngur stakkur. Lítið hefur verið greitt fyrir handrit og þróun hugmynda þannig að fáir hæfir höfundar hafa lagt fyrir sig sjónvarpshandritaskrif, auk þess sem lítið hefur verið gert í að þróa sjónvarpsverk þannig að þau séu seljanleg erlendis. Þetta hefur leitt til þess að leikið efni í sjónvarpi hefur ekki dafnað eins og aðrir þættir íslenskrar kvikmyndagerðar. Það fyrsta sem þarf að gera til að auka gæði íslensks sjónvarpefnis, að mati hópsins, er að leggja meiri áherslu á handrit og þróun þeirra. Það er hægt að gera með því að leggja meira fé í handrit, borga höfundum betur þannig að handritsskrif fyrir sjónvarp verði vænlegur kostur fyrir fólk með hæfileika á því sviði. Sér hópurinn fyrir sér að stofnaður verði sjóður til að sfyrkja handritagerð fyrir sjónvarp með þáttöku fagfélaganna, sjónvarpsstöðvanna, Media og BÍL. Einnig er vonast til að með víðtækri samstöðu framleiðslufyrirtækja á íslandi verði hægt að útvega um 50% af fjármagni erlendis frá. Þreifmgar hafa þegar átt sér stað og er jafnvel von til þess að sjóðurinn taki til starfa á þessu ári. Meðfram þessu vinnur hópurinn svo að því að finna leiðir til að fjármagna leikin sjónvarpsverk með myndarlegri hætti en áður hefur verið og hyggst m.a. láta gera ítarlega úttekt á stöðu mála hér í samanburði við nágrannalöndin. Nánari upplýsingar er að finna á www.producers.is, hinni nýju vefsíðu Framleiðenda- félagsins/SÍK en um hana er fjallað á síðu 3. SKILAFRESTI KVIKMYNDASJOÐS FLYTT TIL1. OKT. Akveðið hefur verið að skilafrestur bíómyndaumsókna í Kvikmyndasjóð verði 1. október í ár, en ekki 15. nóvember eins og í fyrra. Þetta er gert til þess að úthlutunamefnd fái betri tíma til að fara yfir umsóknir, en magn umsókna hefur vaxið verulega á síðustu ámm. Úthlutun verður sem fyrr í janúar. Þessi tilhögun mála undirstrikar að úthlutunarkerfi sjóðsins er í raun sprungið en aðspurður sagði Þorfinnur Ómarsson framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs, að þessi leið hefði orðið ofaná að þessu sinni en vissulega sé horft til útkomu þess fyrirkomulags sem nú tíðkast hjá stutt- og heimildarmyndadeild sjóðsins þar sem ætlunin er að úthluta nokkrum sinnum á ári.

x

Land & synir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.