Land & synir - 01.04.2001, Síða 3

Land & synir - 01.04.2001, Síða 3
FRÁ KVIKMYNDASAFNI ÍSLANDS: Safnabíó í uppsiglingu Nýir leikstjórar áberandi á yfirstandandi Edduári Þeir Coen-bræður klikka ekki í nýjustu mynd sinni frekar en venjulega. 0 Brother Where Art Thou? er ljómandi fjörug sprellimynd úr villta suðrinu þar sem George Clooney fer fyrir fríðum flokki. Þetta er vegamynd hjá þeim strákum og þráðurinn fenginn að iáni frá Ódysseifskviðu Hómers. Þama koma við sögu sírenur og sýklópar auk ýmissa annarra kynja- kvista og allt er þetta framið við undirleik blágrastónlistar og gospelsöngva. Þetta er sumsé afbragðs lauflétt skemmtun sem óhætt er að mæla með, ásamt tónlistinni sem nú rýkur upp alla vinsældalista. Ekki spillir svo fyrir að heiti myndarinnar er fengið að láni úr snilldarmynd Preston Sturges frá 1941, Sullivan’s Travels, þar sem segir frá Hollywood leikstjóra sem fær móral yfir froðunni sem hann gerir alla daga og ákveður að kynna sér líf hins óbreytta almúga til að viða að sér efni í stórvirkið 0 Brother Where Art Thou? sem vera skal minnis- varði litla mannsins. Hann kemst hinsvegar að því að litli maðurinn lætur sér fátt um slíkar velgjörðir finnast en kætist þess meir yfir stundarfróuninni sem Hollywood gerir allra best. Sullivan’s Travels er holl áminning þess að allan þann sannleik sem máli skiptir er að finna í kvikmyndum, eins og Steve Martin bendir réttilega á í mynd Lawrence Kasdan, Grand Canyon, þar sem þessi mynd Sturges er meðal annars gerð að umtalsefni. Land & synir 3 Kvikmyndasafn Islands hefur á þessu ári staðið fyrir framkvæmdum í Bæjarbíói fyrir um átta milljónir króna. Lögð hefur verið áhersla á að ljúka uppsetningu tækjabúnaðar í sýningarklefa sem gerir það kleift að sýna nánast á hvaða formati sem er. Einnig hefur nýtt sýningartjald verið hannað fyrir bíóið, svo hægt sé að ramma inn myndina sem varpað er upp á tjaldið. Anddyri bíósins hefur verið tekið í gegn og verður í Iok maí kominn fallegur inngangur að kvik- myndahúsi eins og þau litu út um miðjan fimmta áratuginn. Brátt hyllir því undir að unnendur kvikmyndalistar eignist alvöru kvikmyndahús í anda cinematekana í Evrópu. Slæmar heimtur: Á síðasta ári var ísl- enskum kvikmyndagerðarmönnum sent er- indi þar sem beðið var um upplýsingar um náms- og starfsferil, ásamt ljósmynd af viðkomandi. Heimtumar úr því átaki hafa verið með eindæmum lélegar, þrátt fyrir að kvikmyndagerðarmenn hafi lýst yfir ánægju sinni með þetta framtak safnins. Er það von Kvikmyndasafns íslands að kvikmyndagerð- armenn sjái nú að sér og sendi þær upp- lýsingar sem þeir hafa til safnsins og stuðli þar með að uppbyggingu þekkingar á þeim sem stunda kvikmyndagerðarlist í landinu. Þess ber einnig að geta að safnið tekur við prentefni eins og auglýsingum, plakötum, handritum, tökuhandritum, minnisblöðum ofl. sem tengist íslenskri kvikmyndagerð. Athygli er vakin á því að handrit þurfa ekki endilega að hafa farið í framleiðslu til þess að þykja verðug til varðveislu. Til að varðveita þessa hluti hefur verið sett upp sér aðstaða á safninu sem á að tryggja góða geymslu. Utlit er fyrir að allt að átta bíómyndir komi til greina í flokk bíómyndar ársins á næstu Edduverðlaunum, en það er meira en nokkru sinni fyrr. Þessar myndir eru Óskabörn þjóðarinnar eftir Jóhann Sigmarsson, íkingút eftir Gísla Snæ Erlingsson, Villiljós eftir Dag Kára Pétursson, Ingu Lísu Middleton, Ragnar Bragason, Ásgrím Sverrisson og Einar Þór Gunnlaugsson, í faðmi hafsins eftir Jóakim Hlyn Reynisson og Lýð Árnason, Gemsar eftir Mikael Torfason, Leirburður eftir Viðar Víkingsson, 1. apríl eftir Hauk M. Hrafnsson og Reykjavík Guesthouse eftir Björn Thors ofl. Ekki er þó hægt að bóka að búið verði að frumsýna allar þessar myndir fyrir 1. nóvember n.k. en þá rennur "Edduárið" skeið sitt á enda. Sérstaka athygli vekur að flest þessara verkefna eru gerð af nýliðum en þess utan eru Jóhann og Haukur með aðra mynd sína og Gísli Snær þá þriðju. Tómas Lemarquis er Nói albínói Tö E fökur standa nú yfir á kvikmyndinni Nói albínói og fara þær fram í Bolungarvík og víðar á Vestfjörð- um. Handritið er skrifað af Degi Kára Péturssyni sem jafnframt leikstýrir en Zik Zak framleiðir. Nói er vandræðaunglingur í litlu þorpi á nyrstu byggðarmörkum heimsins. Hann brennir brýrnar að baki sér, hverja á fætur annarri, en þegar feigðin blasir við er ekki hægt að flýja, segir í tilkynningu frá Zik Zak. Nói albinói er leikin af Tómasi Lemarquis sem mætir nú aftur til leiks eftir sérlega vel heppnaða frumraun í kvikmyndinni Villiljós. s 8 I 1 B u I I I Ö 4 FF SÍK opnar vef Ffsík hefur opnað heimasíðu á netinu með léninu www.producers.is. Netfang FF SÍK verður: sik@producers.is. Á vefsíðu þessari er að finna allar helstu upplýsingar sem kvikmynda- framleiðendur þurfa á að halda, varðandi kvikmyndaframleiðslu. Meðal annars verður komið upp mjög ítarlegu safni af samnings- formum sem notuð eru við kvik- myndagerð og verða þau bæði á ensku og íslensku. Á síðunni eru einnig birtar fréttir af því helsta sem er að gerast í íslenskri kvikmyndagerð auk þess sem vonast er til að þarna geti myndast vettvangur líflegra skoðanaskipta milli félaga FF SÍK. Joel McCrea og Veronica Lake í Sullivan's Travels eftir Preston Sturges frá 1941. Meistarastykki um kvikmyndaleikstjóra sem kemst í raunverulega snertingu við áhorfendur sína. Mynd Coen-bræðra 0 Brother Where Art Thou? dregur nafn sitt af þeirri bíómynd er Sullivan leikstjóri hugðist gera almúganum til dýrðar í mynd Sturges. Fróðleiksmoli um sannleikann í kvikmyndum

x

Land & synir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.