Land & synir - 01.04.2001, Qupperneq 8
Þann 19. janúar s.l. var frumsýnd í Háskólabíói
kvikmyndin Villiljós. Þetta er dramatísk saga um
ungt fólk í tilvistarkreppu, krydduð súrrealisma og
kolsvörtum húmor. Verkið samanstendur af fimm
stuttum sögum sem tengjast innbyrðis og gerast
allar á sama tíma í og við Reykjavík þegar
rafmagnið fer af borginni. Handritshöfundurinn,
Huldar Breiðfjörð, hefur látið hafa eftir sér að
myndina megi "lesa og túlka á ýmsa vegu en fyrir
mér eru hugleiðingar um óttann og einmanaleik-
ann sem honum fylgir, fyrirferðarmestar". Farin var
sú óvenjulega leið að fá fimm leikstjóra til að stýra
hinum fimm hlutum verksins, nokkuð sem býður
heim þeirri hættu að verkið verði sundurlaust og
mishæðótt. Óhætt er að segja að viðbrögð fólks
við þessari sérstöku mynd í íslenskri kvikmynda-
flóru, hafi verið vægast sagt mismunandi. L&S
ákvað að bregða upp sýnishornum af ummælum
ýmissa þeirra sem hafa tjáð sig um myndina á
opinberum vettvangi.
Gunnar Smári Egilsson - DV: Sem samfélagsmynd er Villiljós
bemsk. Sjónarhom myndarinnar er ólund unglingsins sem finnst
allt hálf hallærisiegt; helst af öllu Iífið sjálft... Myndin er eins og
þéttur bassi í grunge-lagi; þunglynd, myrk og gælir við dauðann.
Hana skortir meiri breidd til að vera trúverðug... Þessi tónn Villiljósa er ekki
rt Sæbjörn Valdimars-
son - Morgunblaðið
"Huldar er handrits-
höfundur, hinn andlegi
bakhjarl Villiljóss, og á heiður skilinn. Með hjálp fimm leikstjóra, sem
ástæðulaust er að draga í dilka, þeir skila allir sínu vel, og rösklega það, eru
hugmyndaríkir, hafa góð tök á leikurunum og keyra myndina áfram á réttu
tempói. Sömuleiðis er leikhópurinn glimrandi góður, vel til fundin blanda
ungra og eldri leikara. Púsluspilið gengur upp, Villiljós er fersk og hún er
frumleg; fyndin, háðsk og dulítið alvarleg í senn. Full af táknum um lífið,
dauðann, smáskeiðum af ástleysi og einmannaleika, stundum á mörkum hins
yfirskilvitlega. Einkum er það óttinn sem tengir persónur Huldars saman á
þessari skoðunarferð um myrkviði sálarlífsins og óvissan um hvað framtíðin
ber í skauti sér og kristallast í almyrkva óvænts rafmagnsleysis og persónunni
Sölva (Ingvar E. Sigurðsson). Efinn og ótryggðin aldrei langt undan. Fyrst og
síðast er Villiljós meinfyndin skemmtun og sjálfri sér lík í eigin heimi rótlaurar
vissu".
Leikurinn hefst hjá gagnrýnen-
dum dagblaðanna:
8 Land & synir