Land & synir - 01.04.2001, Síða 12
UppIifa börn nútimans sögur sínar og ævintýri i gegnum
miöil myndarinnar umfrain miöil orðanna? Hefur
myndúþplifunin stérkari áhrif á ómótaöar sálir en bóklestur
eða það sem mælt er af munni fram? I Biódögum Friðriks
Þors Friörikssonar mega hinar svæsnu sögur Tona gamla sín
litils gegn enn æsilegri frásögnum Tómasar iitla úr
biómyndum og kanasjónvarpinu.
Horft framan í heiminn
Hverskonar myndir eiga börnin okkar aö horfa á?
EFTIR ÁSGRÍM SVERRISSON
✓
örsögubók sinni Vor í dal, lýsir Friðrik Þór
Friðriksson leikstjóri sjálfum sér sem
drengnum sem kunni ekki að hræðast. Segir
hann svo frá: "Tolli bróðir minn hafði verið á Höfða
í mörg sumur áður en ég fórþangað fyrst til dvalar.
Það sem honum þótti mest til um í sveitarvistinni
voru þœr sögur sem Toni, gamli maðurinn í
sveitinni, var vanur að segja honum fyrir svefninn.
Þegar ég fór fyrst að Höfða hafði ég því afar háar
hugmyndir um frásagnir þessar sem hermt var að
sendu nístandi hroll niður bak áheyrandans. Strax
fyrsta kvöldið hóf Toni að segja mér sögur. Þœr voru
í þjóðsagnastíl og þótti mér þœr helst til
bragðdaufar. Ég benti honum á að sögur þessar
kœmust ekki í hálfkvisti við það sem ég hafði séð
fyrir sunnan í kanasjónvarpinu. Herti þá Toni
róðurinn í frásögnunum. Urðu þœr sífellt svœsnari
og hrikalegri eftirþví sem á dvöl mína leið. Gengu
þær svo langt að tröllkonurnar sem náðu
smaladrengjunum tóku að búa til úrþeim slátur og
var matreiðslunni og átinu lýst nákvœmlega. En
allt kom fyrir ekki. Ævinlega gat ég bent á
viðbjóðslegri atriði af skjánum. Svo fór að lokum
að Toni missti þolinmœðina, danglaði í mig með
stafnum og hœtti að segja mér sögur".
Mörgum árum síðar vann Friðrik Þór úr þessari
bernskuminningu og öðrum í kvikmyndinni
Bíódögum, sem í kjarnann fjallar um sköpun
nútíma sagnaþuls, kvikmyndaleikstjórans. Þessi
saga hans leggur út af því sem kalla má
"kynslóðaskipti" sagnahefðarinnar, að böm nú-
tímans upplifi sögur sínar og ævintýri í gegnum
miðil myndarinnar umfram miðil orðanna. Hún
veltir jafnframt upp þeirri spurningu hvort
myndupplifunin hafi sterkari áhrif á ómótaðar
sálir en bóklestur eða það sem mælt er af munni
fram. Þó hæpið sé að halda slíku til streitu er engu
að síður ljóst að frásögn í myndum felur oft í sér
mun afdráttarlausari áreiti til viðtakandans. Um
þetta reyna góðir kvikmyndagerðarmenn að vera
sér meðvitaðir með því að gefa í skyn frekar en að
sýna beint, því oftar en ekki er heillavænlegra að
leyfa þeim sem meðtekur sögu í myndum, eða
raunar hvaða formi sem er, að nota ímyndunar-
aflið, túlka áreitin á eigin forsendum og finna
merkinguna með sjálfum sér. í þeim samhljómi við
sálu þess sem sér, hlustar eða les hlýtur að vera
fólginn kjarni góðrar sagnalistar.
Sögur af öllu tagi
Saga Friðriks Þórs vísar jafnframt til þeirrar
gömlu hugmyndar að böm eigi að meðtaka sögur
af öllu tagi. Sögumar sem haldið var að Tona
gamla - og hann telur sér skyit að koma áfram til
yngri kynslóða - vom krassandi og æsilegar, í þeim
var ekki vikist undan því að taka á óhugnanlegum
viðfangsefnum sem geta lagst þungt á ungar sálir.
Þar koma fyrir rammir draugar, tröll, foiynjur,
huldufólk og allskyns önnur varasöm kvikindi. Og
ekki verður það huggulegra þegar kemur að
12 Land & synir