Land & synir - 01.04.2001, Qupperneq 12

Land & synir - 01.04.2001, Qupperneq 12
UppIifa börn nútimans sögur sínar og ævintýri i gegnum miöil myndarinnar umfrain miöil orðanna? Hefur myndúþplifunin stérkari áhrif á ómótaöar sálir en bóklestur eða það sem mælt er af munni fram? I Biódögum Friðriks Þors Friörikssonar mega hinar svæsnu sögur Tona gamla sín litils gegn enn æsilegri frásögnum Tómasar iitla úr biómyndum og kanasjónvarpinu. Horft framan í heiminn Hverskonar myndir eiga börnin okkar aö horfa á? EFTIR ÁSGRÍM SVERRISSON ✓ örsögubók sinni Vor í dal, lýsir Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri sjálfum sér sem drengnum sem kunni ekki að hræðast. Segir hann svo frá: "Tolli bróðir minn hafði verið á Höfða í mörg sumur áður en ég fórþangað fyrst til dvalar. Það sem honum þótti mest til um í sveitarvistinni voru þœr sögur sem Toni, gamli maðurinn í sveitinni, var vanur að segja honum fyrir svefninn. Þegar ég fór fyrst að Höfða hafði ég því afar háar hugmyndir um frásagnir þessar sem hermt var að sendu nístandi hroll niður bak áheyrandans. Strax fyrsta kvöldið hóf Toni að segja mér sögur. Þœr voru í þjóðsagnastíl og þótti mér þœr helst til bragðdaufar. Ég benti honum á að sögur þessar kœmust ekki í hálfkvisti við það sem ég hafði séð fyrir sunnan í kanasjónvarpinu. Herti þá Toni róðurinn í frásögnunum. Urðu þœr sífellt svœsnari og hrikalegri eftirþví sem á dvöl mína leið. Gengu þær svo langt að tröllkonurnar sem náðu smaladrengjunum tóku að búa til úrþeim slátur og var matreiðslunni og átinu lýst nákvœmlega. En allt kom fyrir ekki. Ævinlega gat ég bent á viðbjóðslegri atriði af skjánum. Svo fór að lokum að Toni missti þolinmœðina, danglaði í mig með stafnum og hœtti að segja mér sögur". Mörgum árum síðar vann Friðrik Þór úr þessari bernskuminningu og öðrum í kvikmyndinni Bíódögum, sem í kjarnann fjallar um sköpun nútíma sagnaþuls, kvikmyndaleikstjórans. Þessi saga hans leggur út af því sem kalla má "kynslóðaskipti" sagnahefðarinnar, að böm nú- tímans upplifi sögur sínar og ævintýri í gegnum miðil myndarinnar umfram miðil orðanna. Hún veltir jafnframt upp þeirri spurningu hvort myndupplifunin hafi sterkari áhrif á ómótaðar sálir en bóklestur eða það sem mælt er af munni fram. Þó hæpið sé að halda slíku til streitu er engu að síður ljóst að frásögn í myndum felur oft í sér mun afdráttarlausari áreiti til viðtakandans. Um þetta reyna góðir kvikmyndagerðarmenn að vera sér meðvitaðir með því að gefa í skyn frekar en að sýna beint, því oftar en ekki er heillavænlegra að leyfa þeim sem meðtekur sögu í myndum, eða raunar hvaða formi sem er, að nota ímyndunar- aflið, túlka áreitin á eigin forsendum og finna merkinguna með sjálfum sér. í þeim samhljómi við sálu þess sem sér, hlustar eða les hlýtur að vera fólginn kjarni góðrar sagnalistar. Sögur af öllu tagi Saga Friðriks Þórs vísar jafnframt til þeirrar gömlu hugmyndar að böm eigi að meðtaka sögur af öllu tagi. Sögumar sem haldið var að Tona gamla - og hann telur sér skyit að koma áfram til yngri kynslóða - vom krassandi og æsilegar, í þeim var ekki vikist undan því að taka á óhugnanlegum viðfangsefnum sem geta lagst þungt á ungar sálir. Þar koma fyrir rammir draugar, tröll, foiynjur, huldufólk og allskyns önnur varasöm kvikindi. Og ekki verður það huggulegra þegar kemur að 12 Land & synir

x

Land & synir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.