Víkurfréttir - 28.03.2018, Síða 12
12 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 28. mars 2018 // 13. tbl. // 39. árg.
Elísabet Diljá Steinþórsdóttir,
nemandi í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, glímir við kvíða og hjálpar
hundurinn hennar, Bangsi henni
þegar hún er í kvíðaköstum. Elísa-
bet hefur átt erfitt með að mæta í
tíma í skólanum, sökum kvíða og
fær Bangsi að fylgja henni í skólann.
Hún talaði við skólastjóra FS, Krist-
ján Ásmundsson til að kanna hvort
hún fengi leyfi til að taka Bangsa
með sér í skólann, og eftir meðmæli
frá sálfræðingnum hennar, fékk
Elísabet leyfi til að taka hann með
sér í skólann þegar hún fær slæm
kvíðaköst og á slæman dag.
Bangsi fór með Elísabetu í fyrsta sinn
í skólann þann 19. mars sl. og gekk
það vonum framar að hennar sögn.
Fáir hafi verið að spá mikið í Bangsa,
nema kannski fyrst um sinn og liggur
Bangsi við fætur Elísabetar í tímum
en honum líður afar vel í skólanum
að sögn Elísabetar.
Líkaminn neitar
að halda áfram
Elísabet hefur glímt við kvíða í mörg
ár og segist stundum lokast alveg
vegna hans. „Suma daga kemst ég
bara ekki af stað, líkaminn neitar
að hleypa mér áfram og þá hjálpar
Bangsi mér en hann skynjar kvíð-
ann. Það er sannað að það að klappa
hundum er streitulosandi og hjálpi til
með kvíða og stresseinkenni. Ég hef
verið með kvíða frá því að ég man eftir
mér en ég mætti ekki vel í grunnskóla
út af honum og núna er ég á mínu
öðru ári í FS. Eftir að Bangsi fékk að
koma með mér í skólann þá hef ég til
dæmis mætt alla þessa viku, sem er
svolítið afrek fyrir mig.“
Bangsi sefur í tímum
Bangsa gengur vel í skólanum og sefur
oftast nær í tímum, það fer lítið fyrir
honum en hann vill hafa smá líf í
kringum sig. „Hann sefur oftast í
tímum og liggur hjá mér, á göngunum
verður hann smá stressaður og þá
held ég á honum.“ Nemendur FS hafa
tekið Bangsa vel og fá stundum að
klappa honum, flestir biðja um leyfi
til þess áður en það er afar mikilvægt
segir Elísabet til þess að Bangsi læri
sín mörk og ef hann er stilltur, þá
fær hann smá nammi í verðlaun. „Ég
fór og ræddi við skólameistara FS,
Kristján Ásmundsson áður en ég fékk
að koma með Bangsa í skólann, hann
tók vel í þetta og hér erum við í dag.“
Móðir Elísabetar keyrir hana í skól-
ann þar sem að Bangsi fær ekki að
fara með í skólarútunni. „Ég er búin
að eiga hann síðan 2014, eða í fjögur
ár. Það má eiginlega segja að ég hafi
bjargað honum þegar hann kom til
mín níu mánaða gamall og frekar
brothættur og að hann hafi bjargað
mér.“
„Hann
bjargaði
mér“
Elísabet Diljá Steinþórsdóttir, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, glímir við
kvíða og hjálpar hundurinn hennar, Bangsi henni þegar hún er í kvíðaköstum.
Ég fór og ræddi við skólameistara FS, Kristján Ás-
mundsson áður en ég fékk að koma með Bangsa í
skólann, hann tók vel í þetta og hér erum við í dag.
Þvottabjörninn
úr Höfnum kruf-
inn á Keldum
Þvottabjörn fannst við Hafnir á
Reykjanesi í síðustu viku og hefur
Matvælastofnun sent dýrið í sýna-
töku og krufningu til Tilrauna-
stöðvar Háskóla Íslands í meina-
fræði að Keldum.
Rannsakað verður hvort þvottabjörn-
inn hafi borið dýrasjúkdóma með sér
til landsins en hundur sem komst í
snertingu við hann hefur verið settur
í einangrun á heimili sínu, ásamt því
að sýni hafa verið tekin úr honum.
Ekki er vitað hvernig þvottabjörninn
barst til landsins, en innflutningur á
þvottabjörnum er með öllu óheimill
til landsins.
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
Páskaþáttur
Suðurnesjamagasíns
að kvöldi skírdags
kl. 20:00
Heimsókn á
Hótel Keflavík sem
fékk þakkarverðlaun
ferðaþjónustunnar
á Reykjanesi
Fasteignamarkaður
Suðurnesja
skoðaður nánar og
rætt við fasteigna-
sala um stöðuna.
Kvikmynda-
gerðarmaðurinn
Árni Þór með nýtt
innslag í þættinum.
Fylgist með að
kvöldi skírdags
kl. 20:00 á
Hringbraut og vf.is