Fréttablaðið - 30.04.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 30.04.2018, Blaðsíða 12
3 0 . a p r í l 2 0 1 8 M Á N U D a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a B l a ð i ð sport KörFUBolti „Það er ekki hægt að biðja um betri endi. Það er frábært að klára þetta fimm ára skeið á þessu. Ég átti ekki alveg von á þessu þegar ég kom aftur í KR 2013,“ sagði Darri Hilmarsson eftir að hann hafði lyft Íslandsmeistarabikarnum ásamt Brynjari Þór Björnssyni eftir sigur á Tindastóli, 89-73, á laugar- dagskvöldið. Með sigrinum tryggðu KR-ingar sér fimmta Íslandsmeistaratitilinn í röð. Það er eitthvað sem engu liði hafði áður tekist eftir að úrslita- keppnin var tekin upp 1984. KR hefur alls 17 sinnum orðið Íslands- meistari, oftast allra liða. Sterkari liðsheild hjá KR Tindastóll byrjaði báða hálfleikina betur á laugardaginn en KR var fljótt að stöðva áhlaup þeirra. Liðsheildin hjá KR var sterk og margir lögðu lóð sín á vogarskálarnar. Á meðan var sóknarleikur Tinda- stóls borinn uppi af bakvörðunum Pétri Rúnari Birgissyni og Sigtryggi Arnari Björnssyni. Þeir reyndu hvað þeir gátu en vantaði meiri hjálp. Miklu munaði um að Antonio Hester fann sig ekki undir körfunni. Þar réði KR-ingurinn Kristófer Acox ríkjum en hann skoraði 23 stig og tók 15 fráköst. Í leikslok var Krist- ófer svo verðlaunaður fyrir að vera besti leikmaður úrslitaeinvígisins. „Þetta var ekkert ósvipað og þriðji leikurinn. Við byrjuðum ekki vel en náðum að svara. Við náðum forskoti, þeir komu til baka en þá gáfum við aftur í. Við héldum þeim í skefjum,“ sagði Darri. Darri sneri aftur í KR sumarið 2013 eftir þrjú tímabil á Suðurland- inu, eitt með Hamri og tvö með Þór í Þorlákshöfn. Þetta sama sumar gekk Pavel Ermolinskij aftur í raðir KR og Finnur Freyr Stefánsson tók við þjálfun liðsins. Ellefu stórir titlar á fimm árum Árangurinn síðan þá er einstakur. Á síðustu fimm árum hefur KR fimm sinnum orðið Íslandsmeistari, tvisv- ar sinnum bikarmeistari og fjórum sinnum deildarmeistari. Liðið hefur unnið 15 einvígi í úrslitakeppninni í röð og aðeins þrjú þeirra hafa farið í oddaleik. „Finnur er búinn að standa sig frábærlega síðustu árin og hefur náð að hámarka getu okkar. Þetta hefur verið frábært,“ sagði Darri sem hefur alls sjö sinnum orðið Íslands- meistari með KR. Árin 2007 og 2009 var Darri í aukahlutverki en síðan hann sneri aftur í KR hefur hann verið einn af máttarstólpum liðsins, þótt það fari ekki alltaf mikið fyrir honum. Darri fær jafnan þá einkunn að vera van- metinn, þ.e. leikmaður sem fær ekki alltaf það hrós sem hann á skilið. Hann er sjaldnast meðal stiga- hæstu manna en skilar góðu starfi á báðum endum vallarins. Leikurinn á laugardaginn var klassískur Darra- leikur. Hann skilaði 11 stigum, fimm fráköstum, sjö stoðsendingum og spilaði góða vörn. Nú er komið að leiðarlokum hjá Darra og KR en hann flyst búferlum til Svíþjóðar í sumar þar sem kona hans er á leið í sérnám í svæfingar- lækningum. Það verður stórt skarð að fylla fyrir KR-inga. Titlarnir 2014 og 2018 sætastir Darri segir erfitt að gera upp á milli Íslandsmeistaratitlanna en segir þann síðasta þó vera afar sætan, sérstaklega í ljósi þess sem gekk á hjá KR í vetur. „Það er erfitt að velja á milli titilsins 2014 og þetta árið. Þeir eru báðir mjög sætir,“ sagði Darri. „Allur veturinn var brösóttur. Það voru meiðsli, spilamennskan upp og niður, skiptum um útlendinga og brotnuðum í leikjum sem er ólíkt okkur. En það er frábært að enda þetta svona.“ Grét í leikslok Darri segir að sjálfsögðu erfitt að kveðja félaga sína í KR. „Þetta er rosalega erfitt og maður grét þegar leikurinn kláraðist. Því miður getur maður ekki verið lengur með strákunum. En það verður að hafa það. Ég var búinn að ákveða að fara út með konunni 2018. En það tekur enginn þessa sjö titla af mér og strákunum. Þetta er frábært,“ sagði Darri áður en ungur KR-ingur gekk upp að svarthvítu hetjunni sinni og bað um verð- launapeninginn hennar. ingvithor@frettabladid.is Ómærð hetja KR-inga kvaddi með fimmta titlinum í röð Karlalið KR í körfubolta varð Íslandsmeistari fimmta árið í röð með sigri á Tindastóli í fjórða leik liðanna í DHL-höllinni á laugardaginn. Þetta var síðasti leikur Darra Hilmarssonar fyrir KR en hann flytur til Sví- þjóðar í sumar. Darri kom aftur í KR árið 2013 og hefur átt stóran þátt í frábærum árangri liðsins síðan þá. Þetta er rosalega erfitt og maður grét þegar leikurinn kláraðist. Því miður getur maður ekki verið lengur með strákunum. Darri Hilmarsson 15 einvígi í úrslitakeppninni í röð hefur Kr unnið. Sara í úrslit Meistaradeildar FótBolti Sara Björk Gunnars- dóttir og stöllur hennar í Wolfsburg tryggðu sér sæti í úrslitum Meistara- deildar Evrópu í gær. Þýskalands- meistararnir unnu þá 2-0 sigur á Chelsea á heimavelli. Wolfsburg vann fyrri leikinn í London 1-3 og einvígið því 5-1 samanlagt. Sara lék allan leikinn á miðjunni í leiknum í gær. Hún hefur farið mikinn í Meistaradeildinni í vetur og skorað sex mörk. Norska lands- liðskonan María Þórisdóttir lék allan leikinn fyrir Chelsea. Sara er fyrsta íslenska fótbolta- konan sem kemst í úrslit Meistara- deildarinnar og annar Íslendingur- inn. Eiður Smári Guðjohnsen varð Evrópumeistari með Barcelona 2009. Wolfsburg mætir Lyon, Evrópu- meisturum síðustu tveggja ára, í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Kænugarði þann 24. maí næstkom- andi. – iþs Aron Einar vonast til að ná HM í Rússlandi. NoRdicpHoToS/GETTy Sara Björk fagnar af innlifun í leiknum í gær. NoRdicpHoToS/GETTy HM í hættu hjá Aroni Einari FótBolti Aron Einar Gunnarsson fer í aðgerð í kvöld vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik Cardiff City og Hull City í ensku B-deildinni á laug- ardaginn. Aron Einar er tognaður á ökkla og með rifu í utanverðum lið- þófa í hné. Hann vonast til að vera orðinn klár í tæka tíð fyrir HM í Rúss- landi en ljóst er að ekki má mikið út af bregða. „Ég fann stingandi sársauka og ég vissi strax að þetta var alvarlegt,“ segir Aron Einar í fréttatilkynningu sem var send út í gær. „Ég fer í litla aðgerð og svo tekur bara við strangt endurhæfingarferli. Ég er í góðum höndum hérna í Wales. Það eru topplæknar og sjúkraþjálf- arar sem meðhöndla mig og mér er sagt að ef allt gengur að óskum þá eigi ég góðan möguleika á að vera kominn í stand áður fyrsti leikurinn okkar verður flautaður á í Moskvu. Tíminn verður að leiða þetta í ljós en ég kýs að vera jákvæður og bjart- sýnn,“ segir Aron Einar. – iþs Félagarnir Brynjar Þór Björnsson og darri Hilmarsson með Íslandsmeistarabikarinn, sem KR hefur unnið fimm ár í röð, á milli sín. FRéTTABlAðið/ANToN BRiNK Kr-ingurinn Kristófer Acox var valinn besti leik- maður úrslitaeinvígisins. 3 0 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F A 0 -B 3 1 8 1 F A 0 -B 1 D C 1 F A 0 -B 0 A 0 1 F A 0 -A F 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.