Fréttablaðið - 30.04.2018, Side 12
3 0 . a p r í l 2 0 1 8 M Á N U D a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a B l a ð i ð
sport
KörFUBolti „Það er ekki hægt að
biðja um betri endi. Það er frábært
að klára þetta fimm ára skeið á
þessu. Ég átti ekki alveg von á þessu
þegar ég kom aftur í KR 2013,“ sagði
Darri Hilmarsson eftir að hann
hafði lyft Íslandsmeistarabikarnum
ásamt Brynjari Þór Björnssyni eftir
sigur á Tindastóli, 89-73, á laugar-
dagskvöldið.
Með sigrinum tryggðu KR-ingar
sér fimmta Íslandsmeistaratitilinn
í röð. Það er eitthvað sem engu liði
hafði áður tekist eftir að úrslita-
keppnin var tekin upp 1984. KR
hefur alls 17 sinnum orðið Íslands-
meistari, oftast allra liða.
Sterkari liðsheild hjá KR
Tindastóll byrjaði báða hálfleikina
betur á laugardaginn en KR var fljótt
að stöðva áhlaup þeirra. Liðsheildin
hjá KR var sterk og margir lögðu lóð
sín á vogarskálarnar.
Á meðan var sóknarleikur Tinda-
stóls borinn uppi af bakvörðunum
Pétri Rúnari Birgissyni og Sigtryggi
Arnari Björnssyni. Þeir reyndu hvað
þeir gátu en vantaði meiri hjálp.
Miklu munaði um að Antonio
Hester fann sig ekki undir körfunni.
Þar réði KR-ingurinn Kristófer Acox
ríkjum en hann skoraði 23 stig og
tók 15 fráköst. Í leikslok var Krist-
ófer svo verðlaunaður fyrir að vera
besti leikmaður úrslitaeinvígisins.
„Þetta var ekkert ósvipað og
þriðji leikurinn. Við byrjuðum ekki
vel en náðum að svara. Við náðum
forskoti, þeir komu til baka en þá
gáfum við aftur í. Við héldum þeim
í skefjum,“ sagði Darri.
Darri sneri aftur í KR sumarið
2013 eftir þrjú tímabil á Suðurland-
inu, eitt með Hamri og tvö með Þór
í Þorlákshöfn. Þetta sama sumar
gekk Pavel Ermolinskij aftur í raðir
KR og Finnur Freyr Stefánsson tók
við þjálfun liðsins.
Ellefu stórir titlar á fimm árum
Árangurinn síðan þá er einstakur. Á
síðustu fimm árum hefur KR fimm
sinnum orðið Íslandsmeistari, tvisv-
ar sinnum bikarmeistari og fjórum
sinnum deildarmeistari. Liðið hefur
unnið 15 einvígi í úrslitakeppninni í
röð og aðeins þrjú þeirra hafa farið
í oddaleik.
„Finnur er búinn að standa sig
frábærlega síðustu árin og hefur
náð að hámarka getu okkar. Þetta
hefur verið frábært,“ sagði Darri sem
hefur alls sjö sinnum orðið Íslands-
meistari með KR.
Árin 2007 og 2009 var Darri í
aukahlutverki en síðan hann sneri
aftur í KR hefur hann verið einn af
máttarstólpum liðsins, þótt það fari
ekki alltaf mikið fyrir honum. Darri
fær jafnan þá einkunn að vera van-
metinn, þ.e. leikmaður sem fær ekki
alltaf það hrós sem hann á skilið.
Hann er sjaldnast meðal stiga-
hæstu manna en skilar góðu starfi á
báðum endum vallarins. Leikurinn
á laugardaginn var klassískur Darra-
leikur. Hann skilaði 11 stigum, fimm
fráköstum, sjö stoðsendingum og
spilaði góða vörn.
Nú er komið að leiðarlokum hjá
Darra og KR en hann flyst búferlum
til Svíþjóðar í sumar þar sem kona
hans er á leið í sérnám í svæfingar-
lækningum. Það verður stórt skarð
að fylla fyrir KR-inga.
Titlarnir 2014 og 2018 sætastir
Darri segir erfitt að gera upp á milli
Íslandsmeistaratitlanna en segir
þann síðasta þó vera afar sætan,
sérstaklega í ljósi þess sem gekk á
hjá KR í vetur.
„Það er erfitt að velja á milli
titilsins 2014 og þetta árið. Þeir
eru báðir mjög sætir,“ sagði Darri.
„Allur veturinn var brösóttur. Það
voru meiðsli, spilamennskan upp
og niður, skiptum um útlendinga
og brotnuðum í leikjum sem er ólíkt
okkur. En það er frábært að enda
þetta svona.“
Grét í leikslok
Darri segir að sjálfsögðu erfitt að
kveðja félaga sína í KR.
„Þetta er rosalega erfitt og maður
grét þegar leikurinn kláraðist.
Því miður getur maður ekki verið
lengur með strákunum. En það
verður að hafa það. Ég var búinn
að ákveða að fara út með konunni
2018. En það tekur enginn þessa sjö
titla af mér og strákunum. Þetta er
frábært,“ sagði Darri áður en ungur
KR-ingur gekk upp að svarthvítu
hetjunni sinni og bað um verð-
launapeninginn hennar.
ingvithor@frettabladid.is
Ómærð hetja KR-inga kvaddi
með fimmta titlinum í röð
Karlalið KR í körfubolta varð Íslandsmeistari fimmta árið í röð með sigri á Tindastóli í fjórða leik liðanna
í DHL-höllinni á laugardaginn. Þetta var síðasti leikur Darra Hilmarssonar fyrir KR en hann flytur til Sví-
þjóðar í sumar. Darri kom aftur í KR árið 2013 og hefur átt stóran þátt í frábærum árangri liðsins síðan þá.
Þetta er rosalega
erfitt og maður grét
þegar leikurinn kláraðist.
Því miður getur maður ekki
verið lengur með strákunum.
Darri Hilmarsson
15
einvígi í úrslitakeppninni í
röð hefur Kr unnið.
Sara í úrslit
Meistaradeildar
FótBolti Sara Björk Gunnars-
dóttir og stöllur hennar í Wolfsburg
tryggðu sér sæti í úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í gær. Þýskalands-
meistararnir unnu þá 2-0 sigur á
Chelsea á heimavelli. Wolfsburg
vann fyrri leikinn í London 1-3 og
einvígið því 5-1 samanlagt.
Sara lék allan leikinn á miðjunni
í leiknum í gær. Hún hefur farið
mikinn í Meistaradeildinni í vetur
og skorað sex mörk. Norska lands-
liðskonan María Þórisdóttir lék allan
leikinn fyrir Chelsea.
Sara er fyrsta íslenska fótbolta-
konan sem kemst í úrslit Meistara-
deildarinnar og annar Íslendingur-
inn. Eiður Smári Guðjohnsen varð
Evrópumeistari með Barcelona 2009.
Wolfsburg mætir Lyon, Evrópu-
meisturum síðustu tveggja ára, í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar í
Kænugarði þann 24. maí næstkom-
andi. – iþs
Aron Einar vonast til að ná HM í
Rússlandi. NoRdicpHoToS/GETTy
Sara Björk fagnar af innlifun í
leiknum í gær. NoRdicpHoToS/GETTy
HM í hættu hjá
Aroni Einari
FótBolti Aron Einar Gunnarsson fer
í aðgerð í kvöld vegna meiðsla sem
hann varð fyrir í leik Cardiff City og
Hull City í ensku B-deildinni á laug-
ardaginn. Aron Einar er tognaður á
ökkla og með rifu í utanverðum lið-
þófa í hné. Hann vonast til að vera
orðinn klár í tæka tíð fyrir HM í Rúss-
landi en ljóst er að ekki má mikið út
af bregða.
„Ég fann stingandi sársauka og ég
vissi strax að þetta var alvarlegt,“
segir Aron Einar í fréttatilkynningu
sem var send út í gær.
„Ég fer í litla aðgerð og svo tekur
bara við strangt endurhæfingarferli.
Ég er í góðum höndum hérna í Wales.
Það eru topplæknar og sjúkraþjálf-
arar sem meðhöndla mig og mér er
sagt að ef allt gengur að óskum þá
eigi ég góðan möguleika á að vera
kominn í stand áður fyrsti leikurinn
okkar verður flautaður á í Moskvu.
Tíminn verður að leiða þetta í ljós
en ég kýs að vera jákvæður og bjart-
sýnn,“ segir Aron Einar. – iþs
Félagarnir Brynjar Þór Björnsson og darri Hilmarsson með Íslandsmeistarabikarinn, sem KR hefur unnið fimm ár í röð, á milli sín. FRéTTABlAðið/ANToN BRiNK
Kr-ingurinn Kristófer
Acox var valinn besti leik-
maður úrslitaeinvígisins.
3
0
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
0
-B
3
1
8
1
F
A
0
-B
1
D
C
1
F
A
0
-B
0
A
0
1
F
A
0
-A
F
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K