Fréttablaðið - 30.04.2018, Page 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Guðmundar
Brynjólfssonar
BAkþAnkAR
Ávextir í áskrift kosta um 550 kr.
á mann á viku og fyrirhöfn
fyrirtækisins er engin.
á viku
á starfsmann
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Aðeins
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Á morgun er 1. maí. Þá fara margir í göngur – og nánast í réttir líka. 1. maí göngur
hafa löngum verið sundrungin
ein, fjöldi fólks hefur talið að
það ætti ekki erindi í göngu með
næsta manni, næsti maður hefur
hugsað eitthvað svipað og hópur
fólks verið á sama máli – og haldið
sig sér. Þetta hafa verið dreifðar
hjarðir á stangli – sem hafa sjálfar
séð um að draga sig í dilka.
Nú má búast við enn einni
göngunni. Víðfrægur peninga
burðarmaður auðvaldsins hefur
nefnilega keypt sér köflótta
skyrtu, því þannig heldur hann að
verkamenn séu klæddir, og hyggst
hann ganga í átt að hinu sósíalíska
framtíðarlandi hvar fyrirtækin sjálf
þurfa ekki að greiða laun heldur
geta allir fengið eins og þeir vilja úr
Ábyrgðarsjóði launa. Rétt á milli
þess að fyrirtækin stofna sig upp á
nýtt með nýjar kennitölur og nýjar
ambisjónir; dýrðin ein.
Síðustu ár hefur íslenskur verka
lýður ekki borið gæfu til þess að
ráðast gegn óvinum sínum: Kenni
töluflökkurum, glæpamönnum
sem falsa reikninga til þess að leika
á virðisaukaskattinn, skítmennum
sem hlaupa frá fyrirtækjum sem
þeir viljandi keyra í þrot, gang
sterum sem borga helst enga skatta.
Nei, talsmenn verkalýðsins hafa
verið uppteknir af því að djöflast
í bændum og tilbiðja Evrópusam
bandið – en það eru reyndar mikið
til sömu trúarbrögðin.
Á morgun er 1. maí. Þá fara
margir í göngur og sumir gera sér
jafnvel grein fyrir því hvað er þeim
fyrir bestu. Þau vísindi uppgötva
menn yfirleitt á eigin skinni, aldrei
undir handarkrikum manna sem
halda að þeir verði byltingarmenn
á milli einkaþotunnar og skyrtu
stæðunnar í Rúmfatalagernum,
aldrei undir væng þeirra sem halda
að Brussel sé ígildi himnaríkis – og
mannkerti ígildi Krists.
1. maí
3
0
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
0
-8
B
9
8
1
F
A
0
-8
A
5
C
1
F
A
0
-8
9
2
0
1
F
A
0
-8
7
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K