Morgunblaðið - 15.09.2017, Síða 2
Snjallsíminn frá Apple fagnar um
þessar mundir 10 ára afmæli sínu.
Að mínu mati besta vara sem hefur
nokkurn tíma verið búin til. Ég er
með + stærðina því hún er með enn
betri myndavél sem ég nota mikið
við starf mitt. Það er hægt að gera
allt með iPhone og því er tækið mjög
nauðsynlegt fyrir mig þar
sem ég er á ferð-
inni alla daga
og sit lítið
við skrif-
borð.
Apple
iPhone 7+
H
vers vegna sækjum við sífellt á ókunnar lendur? Hvers vegna yfir-
gefum við heimahagana og skoðum heiminn? Yfirgefum þæg-
indarammann margnefnda og spreytum okkur á því að troða
slóðir sem við rötum ekki á?
Það er vegna þess að forvitni er okkur flestum eðlislæg og tilbreyting er
okkur lífsnauðsynleg. Annars erum við stöðnuð og stöðnun er upphafið að
endalokunum, stendur einhvers staðar. Það held ég að sé rétt.
Í þessu tölublaði M Herra vill svo til að þörfin fyrir að kanna ókunnar lend-
ur er sem rauður þráður gegnum efnið. Miðopnuviðtalið er við Sölva Blön-
dal, sem hafði haslað sér rækilega völl sem tónlistarmaður en langaði að
prófa aðra hluti og lagði talsvert á sig til að ná tökum á þeim. Hann hefur í
dag náð að minnsta kosti jafn langt sem hagfræðingur og hann gerði sem
tónlistarmaður; valinn „hagfræðingur ársins 2017“ af FVH í vor, Félagi við-
skiptafræðinga og hagfræðinga. Sá hann það fyrir þegar hann böðlaðist í
gegnum aukastærðfræðiáfanga í kvöldskóla til að komast þangað sem
hann vildi. Og þangað er hann kominn.
Sama er að segja um Sindra Snæ Jensson, sem er einn eigenda Húrra
Reykjavík, einnar vinsælustu tískubúðar landsins. Tískubransinn er ein-
staklega hverfull og óútreiknanlegur, og það kostar kjark og þor að opna
nýja búð á þeim vettvangi. Það hafa ekki allir sótt gull í greipar tískugyðj-
unnar, það veit sá sem allt veit, og sagan er full af tískubúðum sem töldu sig
hafa fundið taktinn – til þess eins að hverfa í glatkistuna, fljótt og vel.
Stundum lendum við óumbeðið á ókunnugum slóðum, af ástæðum sem
við skiljum ekki og stundum tökum við sjálf af skarið og leggjum í hann. Við
höfum óendanlega gott af því gera nýja hluti og hver vegferð um „Terra
incognita“ er eitthvað lærdómsríkt sem ber að fagna og draga lærdóm af
eins og hægt er. Spreyttu þig á nýju tungumáli. Prófaðu að taka strætó í
vinnuna, jafnvel þótt þú eigir bíl. Finndu nokkur vel valin hlaðvörp (e. pod-
cast) til að hlusta á fólk tala um hluti sem þú vissir ekki. Hertu upp hugann
og eldaðu mat sem þig hefur alltaf langað að kunna. Lærðu að hnýta þver-
slaufu og að festa tölu á skyrtu. Kauptu þér nýjan herrailm. Flyttu til útlanda
til lengri eða skemmri tíma. Finndu þér uppáhaldskvæði og lærðu það utan
að. Náðu tökum á því að raka þig með gamaldags „straight-edge“ rakhníf.
Gerðu eitthvað nýtt og hafðu gaman af því. Þú munt finna hvernig rykið
sem var farið að setjast á heilann þyrlast upp og hugurinn frískast allur. Fátt
er betra en að þankagangurinn fái svolitlar harðsperrur af nýjum verkefnum
– og fátt um leið verra en að rígfestast í sömu hjólförunum þar sem hver
dagur er öðrum líkur.
Ég óska yður góðrar ferðar um yðar ókunnu lendur; hverjar sem þú
kannt að kjósa þér, og hverjar sem kunna að kjósa þig.
Morgunblaðið/RAX
„Terra incognita“
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2017
Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason Blaðamaður Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Auglýsingar
Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók RAX
Lífsgæða5a
Sindri Snær Jensson
er einkum þekktur fyrir
tvennt – að vera einn
forsprakka Húrra
Reykjavík, einnar vin-
sælustu fatabúðar borg-
arinnar, og svo fótbolta-
iðkun en hann stendur
milli stanganna hjá KR
og gerir sitt besta að
vera þar fyrir boltanum.
M Herrar afréð að taka
hús á Sindra Snæ og
heyra hvaða hluta hann
getur ómögulega verið
án í lífinu.
Morgunblaðið/Golli
Hinn fullkomni strigaskór sem passar við öll tilefni. Common Projects er
ítalskt/amerískt merki stofnað árið 2004. Allir skórnir eru handsaumaðir á
Ítalíu úr nappa-leðri. Fyrirtækið liggur aldrei með neitt á lager heldur fram-
leiðir einungis eftir pöntunum frá verslunum. Ótrúlega einföld og falleg
hönnun, skórnir eru svo góðir og þægilegir að ég á tvö pör, eitt fyrir daglega
notkun og annað til að nota við jakkaföt og betri tilefni. Fá mín hæstu með-
mæli, það eru mikil lífsgæði fólgin í góðum skóbúnaði.
Common Projects –
Achilles Low White
Uppáhaldsborgin mín, ekki spurning. Ég
bjó í Kaupmannahöfn yfir 18 mánaða
tímabil árin 2013-2014 og gjörsamlega
féll fyrir borginni. Nú ferðast ég þangað
að minnsta kosti fjórum sinnum á ári fyr-
ir Húrra Reykjavík. Stærðin á borginni
er eitthvað svo hæfileg og allt svo létt-
leikandi, fólkið, samgöngur, matarmenn-
ing o.s.frv. Þegar ég bjó þar kynntist ég
borginni alveg á nýjan máta og eignaðist
marga góða vini. Það er eitthvað svo
yndislegt við að hjóla um í rólegheit-
unum, setjast niður með svalandi drykk í
almenningsgarði og njóta stundarinnar.
Tískan í Kaupmannahöfn á einnig vel við
mig, afslappaður en vandaður klæða-
burður. Mig dreymir um að kaupa íbúð í
Kaupmannahöfn einn daginn.
Kaupmannahöfn
Síðan ég man eftir mér hef
ég verið að sparka í fót-
bolta. Ég mætti á mínu
fyrstu æfingu hjá Þrótti í
Sæviðarsundi þegar ég
var fimm ára gamall og
það varð ekki aftur snúið.
Það hafa verið hæðir og lægð-
ir í boltanum eins og flestu öðru. Í gegnum fótbolt-
ann hef ég eignast marga af mínum bestu vinum
og lært svo ótrúlega margt sem hjálpar mér á
hverjum einasta degi í fyrirtækjarekstrinum. Nú
spila ég með KR, félaginu sem fólk annaðhvort
elskar eða hatar, og ég gæti ekki verið ánægðari
þar. Ég hef aldrei verið duglegur í ræktinni svo
fótboltinn er frábær leið fyrir mig til að fá útrás og
hreyfingu, það eru svo sannarlega mikil lífsgæði
fólgin í því að æfa fótbolta með vinum sínum sex
sinnum í viku.
Fótbolti
Bestu sólgleraugu sem ég hef nokkurn tíma eignast, svo
einfalt er það. Sniðið er eins og nafnið gefur til kynna
tímalaust og danska merkið Han Kjobenhavn er þekkt
fyrir gæði enda umgjörðin ítölsk og glerin frá Carl Zeiss.
Þegar ég finn eitthvað sem mér líkar við reyni ég að
kaupa nokkra liti og á því núna nokkur til skiptanna. Ég
gjörsamlega elska sólgleraugu og reyni að bera þau eins
oft og mögulegt er. Eftir að ég fór í laser-aðgerð árið 2010
er það meira að segja samkvæmt læknisráði; alls ekki
gleyma sólgleraugunum.
Han Kjobenhavn
Timeless