Morgunblaðið - 15.09.2017, Qupperneq 8
S
ölvi hefur í millitíðinni lokið
prófi í hagfræði, ráðið sig til
fjármálafyrirtækisins GAMMA,
verið valinn hagfræðingur ársins
og stofnað útgáfufyrirtæki, Alda
Music, í félagi við vin sinn, Ólaf
Arnalds. Sá síðarnefndi titlar sig réttilega
tónlistarmann en það gerir Sölvi ekki leng-
ur, eins og hann útskýrir þegar við tyllum
okkur í afslappað umhverfi hinna dumb-
rauðu leðursófa í setustofu Hótel Holts.
Alda og íslensk tónlistarsaga
„Það er góð spurning,“ svarar Sölvi og lít-
ur hugsi útundan sér þegar ég spyr hann að
því hvernig Alda Music hafi orðið til. „Það
átti sér smá aðdraganda, eins og flest góð
mál. Ég fékk veður af því að líklega væri
hægt að setjast niður með Jóni Diðriki hjá
Senu og ræða þetta. Ég og Óli Arnalds er-
um svo staddir á sinfóníutónleikum þegar ég
nefni þetta við hann, hvort hann hefði áhuga
á að koma inn í þetta með mér, því hug-
myndin er að við séum „curatorar“ fyrir út-
gáfuna, veljum hverjir komi þar inn, hvernig
staðið sé að markaðssetningu og þess háttar.
Hann tók tiltölulega jákvætt í þetta og í
framhaldinu hófst mjög langur prósess.“
Sölvi útskýrir að málið sé í eðli sínu býsna
flókið, umfangið sé í kringum 40.000 lög,
meira en 2.000 samningar, löng saga og ólík-
ir listamenn. „Við Óli vorum sammála um að
ef við ætluðum út í þetta á annað borð þá
vildum við gera þetta vel, af natni og virð-
ingu gagnvart þessum listamönnum sem
eiga músíkina. Það var að okkar mati eig-
inlega mikilvægara en peningarnir. Samn-
ingsferlið sem svo hófst tók eina fjóra mán-
uði enda í mörg horn að líta. Þegar við
klárum svo dílinn og tökum við fyrirtækinu í
kjölfarið, þann 1. október, þá gerist það yfir
kebab-hádegisverði að nafnið kemur upp. Ég
held að það hafi verið Óli sem kom með hug-
myndina,“ bætir hann við hugsi, og heldur
svo áfram: „Alda er fyrirtæki sem á alla tón-
list sem var hér gefin út árin 1940, ’50, ’60,
’70, allt frá Elly yfir í Trúbrot yfir í Manna-
korn og svo framvegis, og þarf því að vera
fyrirtæki sem stendur fyrir þessa tímalausu
tónlist, en þarf um leið líka að geta gefið út
Ella Grill og aðra „edgy“ og blótsyrðum
hlaðna neðanjarðarmúsík,“ bætir hann við.
„Þetta þarf að spanna allt þetta svið.“
Tónlistarskórnir lagðir á hilluna
– alltént í bili
Það var og – þetta hljómar ekki eins og
neitt smáverkefni. Þar sem hagfræðin er fag
Sölva vaknar óneitanlega sú spurning hvort
það sé hreinlega til nóg af Sölva til að fást
við þetta allt saman; fullt starf og rúmlega
það hjá GAMMA, útgefandi hjá Alda Music,
forsprakki Quarashi, annar helmingur dú-
ettsins Halleluwah á móti Rakel Mjöll Guð-
mundsdóttur … er ég að gleyma einhverju?
Sölvi brosir við. „Nei, en Quarashi er ekki
lengur til og Halleluwah er í raun ekki starf-
andi heldur. Það var bara eitthvað sem ég
ákvað þegar Alda Music fór af stað, að ég
legði minn persónulega tónlistarferil niður,
þannig lagað.“
Þetta þykir undirrituðum afleitt að heyra
því samnefnd plata Halleluwah, sem kom út
haustið 2015, er sérdeilis prýðileg – ekki
bara sem frumraun heldur almennt sem
plata; full af lipurlega sömdum lögum í evr-
ópskum poppstíl frá 7. áratugnum, hæfilega
dekadent og smekklega smituðum af sæ-
kadelíu. Sölvi flýtir sér að hugreysta blaða-
mann, sem er sýnilega sleginn yfir þessum
tíðindum. „Sko, ég varð bara að forgangs-
raða og mitt starf hjá GAMMA er númer
eitt. Auk þess er ég stjórnarformaður hjá
Öldu, ásamt því að vera pabbi og fjöl-
skyldumaður með eigið líf. Á einhverjum
tímapunkti fann ég bara að ég hef ekki
áhuga á að standa í því að gera tónlist í dag.
Kannski kemur það aftur seinna, ég veit
ekki. En ef ég myndi vekja eitthvað af mín-
um projektum upp aftur þá væri það Hal-
leluwah með Rakel.“
Ég róast nokkuð við að heyra það og Sölvi
segir mér að tónlist dúettsins lifi ágætu lífi
því eftirspurnin sé svo mikil í að fá að nota
lög Halleluwah í erlendar auglýsingar. Sem
dæmi má nefna að hið frábæra lag Dior
heyrist í rúmlega ársgamalli auglýsingu fyr-
ir Samsung S8 snjallsímann. Ekki amalegt
það.
Sölvi sýpur á svörtu kaffinu. „Þetta er
plata sem hefur lifað góðu lífi og ég er auk
þess í stöðugu sambandi við listamenn.
Margir af þeim eru mínir bestu vinir og
þannig hef ég snertipunkt við tónlistar-
útgáfu frá mjög mörgum hliðum. Ég er
lærður í fjármálum og hagfræði og hef
þannig kannski svolítið furðulega stöðu því
ég get skilið og tengt við það sem listamenn-
irnir segja en líka það sem peningamenn-
irnir segja.“
Endalok allrar tónlistarútgáfu?
Það er einmitt þessi glöggskyggni Sölva,
bæði frá hlið tónlistarmannsins og um leið
tónlistarútgefandans, sem gerir honum kleift
að greina hina síbreytilegu heimsmynd tón-
listar síðustu mánuði og misseri. Það hefur
allt gerbreyst, vægast sagt. „Plötufyrirtæki
á borð við EMI og Sony, sem voru með
skrifstofur á mörgum hæðum á besta stað á
Manhattan, hafa þurft að segja upp megninu
af starfsfólki sínu og flutt höfuðstöðvarnar í
framhaldinu til Nashville eða Toronto, svo
dæmi sé tekið. Fremur en aðrir kimar af-
þreyingariðnaðarins, kvikmyndabransins,
tölvuleikjabransinn og bókaútgáfa, þá hefur
tónlistariðnaðurinn krassað og farið í gegn-
um algert armageddon – við getum í raun
talað um ragnarök. Margir lýstu því þá yfir
að formlegri tónlistarútgáfu væri lokið,
henni væri hreinlega sjálfhætt því þetta
væri ekki þess virði á tímum starfrænnar
deilingar á efni, hefði ekki tilgang lengur og
hvað hefði þá útgáfufyrirtæki að leggja til
málanna? En síðasta árið hefur verið að
koma í ljós, og hér er ég að tala um al-
þjóðlega þróun, að þetta er bara ekki rétt.“
Sölvi hallar sér fram í sætinu, svo brakar í
eldfornu leðri hægindastólsins, og það blasir
við að hér talar maður af ástríðu. Hér fer
maður með köllun.
„En er bransinn allt öðruvísi en hann var?
Klárlega. Allt öðruvísi. Það er bara tækifæri
í því líka. Fólk hefur eftir sem áður, og
meira að segja flest fólk, áhuga á að hlusta á
áhugaverða tónlist. Boðleiðin hefur bara
breyst. Þetta er þróun og þú getur ann-
aðhvort tekið þátt og látið jafnvel gott af
þér leiða, eða þú getur setið eftir.“
Framtíðin í miðlun efnis
Heyrið það, góðir hálsar? Spámaðurinn
hefir talað – eða réttara sagt hagfræðing-
urinn. Nema hvorttveggja sé. Jafn vel gef-
inn maður og handhafi titilsins „hagfræð-
ingur ársins 2017“, eins og Sölvi var valinn
við hátíðlega athöfn Félags viðskipta- og
hagfræðinga í apríl síðastliðnum, færi varla
að kasta fjármunum á glæ í einhverju flippi.
Hvað þá í félagi við annan jafn vel gefinn
Hipphopparinn sem varð
Sölvi Blöndal varð þjóðþekktur
sem aðalsprauta hipphoppsveit-
arinnar Quarashi en sveitin sló í
gegn með fyrstu plötu sinni haustið
1997. Á þeim 20 árum sem síðan
eru liðin hefur eitt og annað breyst,
ekki síst að strákurinn sem þá gekk
í Stüssy og Fresh Jive gengur í dag
í aðsniðnum dökkum jakkafötum –
og það er minnsta breytingin.
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2017