Morgunblaðið - 15.09.2017, Page 10

Morgunblaðið - 15.09.2017, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2017 V ið þekkjum allir goðsögnina um gamaldags rakarastof- una þar sem maður sest, varpar af sér amstri dagsins og annarri óáran, en gleym- ir sér þess í stað við karlmannlegt spjall um landsins gagn og nauðsynjar meðan fagmenn snyrta bæði hár og skegg. Gauramóment með góðri tón- list og glögg í glasi, ef vill. Jæja, það ætti að gleðja alla góða menn að svona stofa er til hér í borginni, allavega ein og ef til vill fleiri. Við heimsóttum Bar- ber og fengum skinfade og meððí. Undir hljómar músík og stemningin er býsna skemmtileg, satt að segja. Mannlíf í gegnum glerið „Við opnuðum hér þann 10. október 2014,“ segir Halli þegar ég spyr kapp- ana hvað Barber hafi verið lengi í rekstri þarna í húsinu. Þriggja ára af- mælið er því handan hornsins. En hvað dregur viðskiptavini til Barber, umfram aðrar stofur í bænum? Morgunblaðið/RAX Við erum með bestu kúnnana Á jarðhæð húss númer 66- 68 við Laugaveg, þar sem ALDA Hótel er til húsa, er að finna litla en þó gríðar- stóra rakarastofu að nafni Barber. Þar ráða hressir þremenningar ríkjum, þeir Halli, Grjóni og Daði. Sestu, lestu, sötraðu og spjallaðu. Hamingjan er hér. Gaurar Grjóni, Halli og Daði: „Við tölum eins og við viljum, fíflumst eins og við viljum og þannig er það bara.“ Rexton™ heyrnartækin gera meira en að hjálpa þér að heyra betur. Þau opna nýjar leiðir í samskiptum, rjúfa þögnina og gefa tóninn. Þau auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.