Morgunblaðið - 15.09.2017, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2017
L
exus hefur verið aðal-
bakhjarl Milano Design
Week í áratug og fer vel á
því enda endurspeglar
Lexus um margt þau gildi
sem lýsa Mílanóborg. Í brennidepli
viðburðarins var lykilorðið YET,
sem Lexus notar til að tákna kjarn-
ann í hönnun hvers einasta bíls sem
framleiddur er undir merkjum fyr-
irtækisins: að skapa nýja upplifun
og verðmæti með því að sameina
fullkomlega hugtök sem virðast
ekki eiga saman. Með þessu vill fyr-
irtækið sífellt sækja út fyrir endi-
mörk sköpunarkraftsins í leit sinni
að nýjum lausnum. Samruni ósam-
stæðra hugmynda leiðir þannig af
sér nýjar og byltingarkenndar upp-
götvanir og hið óvænta á sér stað.
Hátæknilegt en þó notendavænt;
mögnuð upplifun en þó umhverf-
isvæn.
Þannig mætti útskýra orðið YET
í þessu samhengi sem „en þó“.
Það sem er eitthvað en þó líka
annað.
Dómkirkja og
draumkennd innsetning
Til að skerpa á tilfinningu þátt-
takenda út blaðamannastétt var
gist á Excelsior Hotel Gallia, rétt
við gömlu járnbrautarstöðina við
Piazza Duca d’Aosta. Það má segja
að hótelið endurspegli þá japönsku
hugmyndafræði Lexus sem kallast
„omotenashi“ en það merkir að
þjóna sínum viðskiptavinum rétt
eins og þeir væru gestir. Það fer
ekki á milli mála að maður er meira
en velkominn gestur á Excelsior
Hotel Gallia, þar er ekkert til spar-
að til að gera dvölina sem eftir-
minnilegasta. Að loknum framúr-
skarandi Whiskey Sour á opna
hótelbarnum á 7. hæð var haldið að
Piazza del Duomo, Dómkirkjutorg-
inu, en við það stendur magnaðasta
mannvirki Mílanó, gotneska dóm-
kirkjan sem kallast Il Duomo. Al-
gerlega stórfengleg bygging sem
lætur engan ósnortinn sem lítur
hana augum, og hvað þá gefi maður
sér tíma til að skoða hana að innan
og ganga þrönga stigana upp á þak.
Þessu fæ ég ekki nógsamlega mælt
með.
Seinni part dags var haldið í lista-
safnið Triennale di Milano, þar sem
gat að líta magnaða innsetningu
bandarísku listakonunnar Neri
Oxman, Static YET Dynamic,
ásamt þeim verkum sem tilnefnd
voru til hönnunarverðlauna Lexus
2017. Innsetning Oxman fólst í
margra metra háum glersúlum, hol-
um að innan, með ljós sem ferðaðist
upp og niður holrýmið. Þó súlurnar
hafi verið grafkyrrar, þá varpaði
ljósið draumkenndri og dáleiðandi
birtu á gólfið umhverfis súlurnar,
birtu sem myndaði síbreytileg og
seiðandi mynstur.
Tryllitækjaprófun og
tískuhúsaprjón
Næsta dag lá leiðin til La Pista,
en það er akstursbraut ætluð til bíl-
prófana rétt utan við Mílanó. Þarna
gafst kostur á að setja upp hjálm og
aka svo sem fjandinn! Ekki þurfti
að segja undirrituðum það tvisvar
og naut hann sín við að þenja mis-
munandi gerðir sprækra Lexus-
bíla. Ekki vakti minni hrifningu að
fá fágætt tækifæri til að berja aug-
um nýjasta flaggskip Lexus, sjálfan
LS-bílinn, en þar er á ferðinni form-
gert efstastig í fágun, afli og mun-
aði. Ekki leyfðist að prófa dýrgrip-
inn að svo stöddu en þegar að því
kemur lofar sá sem þetta ritar að
segja ykkur skilmerkilega frá því.
Að hamaganginum á brautinni af-
loknum var rétt að taka það rólega
við akstur glæsivagns frá Lexus
áleiðis til þorpsins Sumirago og
heimsækja þar verksmiðju hátísku-
merkisins Missoni, sem býr meðal
annars til einn eftirsóttasta prjóna-
fatnað veraldar, í mynstri og lita-
samsetningum sem enginn leikur
eftir.
Snemmsumars bauð Lexus blaðamönnum hvaðanæva úr veröldinni að hittast í Mílanó til að kynnast nánar
gildunum og sýninni sem býr að baki merkinu og bílunum sem fyrirtækið framleiðir. Víða var komið við í borginni
sem er þekkt fyrir óviðjafnanlegt handverk, hönnun, smekkvísi og fágaðan stíl.
Morgunblaðið/Jón Agnar
Menning með Lexus í Mílanó
Hamagangur Lexus-bílar af ýmsum gerðum voru teknir til kostanna og ekkert gefið eftir – bæði á þurri akstursbraut og sérstakri bleytubraut.
Tignarleg Duomo-kirkjan í
Mílanó er með tilkomumeiri
byggingum borgarinnar
og með allra fallegustu got-
nesku dómkirkjum Evrópu.