Morgunblaðið - 15.09.2017, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2017 MORGUNBLAÐIÐ 13
Að lokinni einstakri leiðsögn um
húsakynnin undir handleiðslu Ot-
tavio Missoni, eins erfingja veld-
isins, var undirritaður leystur út
með sérlega fallegu silkibindi,
mynstruðu að hætti hússins. Höfð-
ingjar heim að sækja, Missoni-
fólkið. Það er ekki laust við að und-
irritaður hafi öðlast nokkuð ríkari
sýn á það sem knýr Lexus áfram,
þar sem dirfska í hönnun ræður för
en þó með ýtrustu virðingu fyrir
fornum hefðum og handverki, hjá
bílaframleiðanda sem fer algerlega
eigin leiðir en þó ávallt með við-
skiptavin sinn í öndvegi. Ég skil
núna fullkomlega út á hvað Lexus
YET gengur.
Skál Greinarhöfundur brá sér á barinn þegar
tækifæri gafst og akstur ekki á dagskrá.
Flaggskipið Hinn glænýi LS600 er flaggskip Lexus, og fengu áhugasamir
að berja dýrðina augum. Reynsluakstur bíður þangað til síðar í haust.
Stællegir Missoni-
bræður voru höfðingjar
heima að sækja. Ottavio,
sem var leiðsögumaður
undirritaðs, er til hægri.
Eðalvagnar Lexus-bifreiðar af öllum gerðum
og í ýmsum litum biðu þess tilbúnar
að þeytast um akstursbrautina í La Pista.
Sigurvegari Hiroto
Yoshizoe tekur við
aðalverðlaununum í
hönnunarkeppni
Lexus frá forstjóran-
um, Yoshihiro Sawa.
Framtíðin Eitt framtíðar-
verkefna Lexus er Skyjet,
smágerð farþegaþota.
Þ egar undirritaður prófaði fyrst Lexus GS man ég hvað mér þóttiútlitið lágstemmt og yfirvegað. Öðru máli gegndi um aksturinnþví urrandi vélarhljóð, aðdáunarvert tog og almennt frábærir
aksturseiginleikar komu
mér nokkuð í opna skjöldu.
„Nújá, þetta er svona
reffilegur úlfur í settlegri
sauðargæru.“
Það sama er sumpart
upp á teningnum þegar GS
er prófaður í F-sport útgáf-
unni, nema hvað nú er útlit-
ið aðeins gæjalegra og aflið
enn meira undir húddinu.
Úlfurinn er enn tilkomu-
meiri og nú er hann kominn
í kasmírullarfrakka.
Liggur eins og klessa
Upptakið er aðdáunarvert í Lexus GS og unaðslegt hljóðið liggur ein-
hvers staðar milli þess að vera hvinur og urr. Vinnslan og togið er til
fyrirmyndar og þessi bíll sprettir rækilega úr spori sé beðið um það.
Hins vegar er hönnunin og yfirbragðið þesslegt að það fer honum jafn
vel að sigla um á yfirvegaðri keyrslu. Fjölhæfur bíll, Lexus GS.
Úlfur í kasmír-
ullarfrakka
Morgunblaðið/RAX
Í tengslum við Lexus-ferðina til Mílanó var
sjálfsagt og eðlilegt að rifja upp stuðið
með því að taka einn góðan til kostanna
hér heima. Við RAX brugðum okkur í bíltúr.
Lúxus Innviðir í Lexus GS F-sport eru
jafn glæsilegir og bíllinn að utan.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon