Morgunblaðið - 15.09.2017, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.09.2017, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2017 Þ etta flokkast sem Old Tom gin, sem flokkast sem afi London Dry gins, sem er ginið sem við þekkjum sem hefð- bundið gin,“ útskýrir Óskar Erics- son þegar ég spyr hann út í það hvað geri Himbrima frábrugðinn því gini sem flestir þekkja. „Það er ginið sem enskir hermenn drukku þegar þeir komu heim frá Hollandi eftir 80 ára stríðið. Í Hollandi kynntust þeir sénever, sem er í rauninni bara einiberjabrandí. Þeir voru svo hrifnir að drykknum að þeir reyndu að útbúa hann með því að blanda saman terpentínu, einiberjum og rósavatni,“ segir Óskar. „En af því að allir „master distiller“ blandararnir voru upp- teknir við viskígerð í skosku há- löndunum þá lék almenningur lausum hala við gingerðina, árang- urinn misjafn eftir því og þegar allt kemur til alls þá er gin ekki annað en sénever-líki, dálítið eins og bjórlíkið forðum,“ segir Óskar og hlær. „En Old Tom ginið var alltaf sætara, alls ekki gert til blanda saman við eitt eða neitt og í rauninni hugsað til að drekka eins og brandí – dreypa á því og njóta.“ Old Tom í dvala alla 20. öldina Undir lok 19. aldar hverfur svo Old Tom ginið nánast af mark- aðnum þegar afbrigði á borð við Navy Strength Plymouth og Lond- on Dry verða allsráðandi. „Old Tom er nánast ófáanlegt alla 20. öldina og það er ekki fyrr en í upphafi 21. aldarinnar að menn fara að búa þetta til aftur,“ bendir Óskar á. „Þar sem faðir minn er hollenskur langaði mig svo að búa til eitthvað sem myndi líkjast meira sénever, eitthvað sem ég gæti tekið með í veiðitúra og sötr- að þar óblandað, en gæti engu að síður blandað ef ég vildi,“ segir hann. „Upprunalega átti þetta svo að vera til heimilis- og einkanota, bara fyrir mig og mína fjölskyldu, en svo þróaðist þetta þannig áfram að aðrir fengu að smakka, ginið fékk gríðarlega góðar viðtökur og framleiðslan vatt upp á sig. Ginið hefur haldið áfram að fá frábærar viðtökur og nú er það komið í sölu um alla Evrópu, og við stefnum á Bandaríkin og Japan í framhald- inu. Himbrimi er að vaxa hratt um þessar mundir.“ Fleira en einiber í bragðinu London Dry gin – glæra af- brigðið sem við þekkjum sem „hefðbundið gin“ – gengur út á bragð af einiberjum. Himbrimi er heldur margslungnari en það. Um leið er liturinn talsvert dekkri. „Í bragðinu af Himbrima er að finna einiber en einnig blóðberg, hunang og hvönn,“ segir Óskar. „Ég valdi þessa bragðgjafa því þetta eru allt hráefni sem vaxa meðfram ánni, eitthvað sem þú verður var við þegar þú ert að veiða. Himbrimi er einhvers konar óður til árinnar. Þegar ég fór um landið í sumar til að kenna barþjónum að bera Him- brima fram og drekka hann, þá benti ég þeim á að fullkomin fram- reiðsla á þessu gini væri einfald- lega óblönduð, drukkin niðri við á með hrossagaukinn fljúgandi yfir og humlurnar suðandi í lynginu allt í kring, blóðberg og hvönn sömuleiðis. Menn kunna vel að meta þetta upplegg, þessa nátt- úrulegu framsetningu á íslenskum drykk. Þeir eru hrifnir af því að við séum ekkert að flækja þetta.“ Þarf að blanda með virðingu Engu að síður er það svo að Himbrimi blandast fantavel, fyrir þá sem langar að bragða hann sem stofninn í góðu hanastéli. Með það í huga efndu Óskar og félagar hjá Himbrima til kokteilkeppni fyrr í sumar. „Gin & tónik úr Himbrima er fantagott, einkum ef tónikið er með ylblómum, sem heitir elderflo- wer á ensku. Það kemur ótrúlega vel út enda „komplementar“ það bragðið af blóðberginu einstaklega vel,“ segir Óskar. „En umfram allt þá er alltaf mikilvægt að blanda Himbrima einfaldlega 50/50. Byrj- aðu bara með 50 millilítra af Him- brima og 50 millilítra af tónik og bættu svo í eftir þörfum. Hið fín- gerða bragð sem er af Himbrima- gini, keimurinn af blóðbergi, hun- angi og hvönn – sem er þess valdandi að Íslendingar segja ein- faldlega að þetta bragðist eins og íslensk náttúra – fer út um þúfur ef maður blandar ginið óvarlega með einhverju öðru yfirþyrmandi bragði.“ Óskar segist sjálfur sér- staklega hrifinn af Himbrima bornum fram sem Tom Collins, sem er klassískur kokteill af gamla skólanum. „Í honum eru tveir hlut- ar Himbrima, tveir hlutar af syk- ursírópi, og svo einn hluti af sí- trónusafa. Svo er hellt upp í glasið með dassi af sódavatni, og við skreytum glasið gjarna með stilk af blóðbergi eða hvönn. Óskar segir að verðlaunakokteil- arnir úr keppninni séu einstaklega metnaðarfullir enda séu íslenskir barþjónar hreinir listamenn. „Það sem kom mér ánægjulega á óvart var að fólk hélt sig við náttúrulegt, íslenskt bragð, í stíl við ginið. Blá- ber, rabarbari og fleira í þeim dúr. Það fannst mér skemmtileg pæl- ing. Menn héldu sig við árbakk- ann.“ Lesendur geta svo virt fyrir sér verðlaunadrykki frá keppninni hér á síðunni og spreytt sig á þeim heima. Varla þarf að taka fram að þegar úrvalsáfengi á borð við Him- brima er annars vegar skal ávallt neyta þess af skynsemi, gott fólk. jonagnar@mbl.is Gin sem minnir á árbakkann G&T er einn allra vinsælasti drykkur Íslendinga og ginið sem notað er hverju sinni er kristaltært og ber með sér hefðbundið bragð eini- berja. Nú hafa nokkrir hæfi- leikaríkir Íslendingar búið til gin með talsvert marg- slungnara bragði, enda koma þar við sögu blóð- berg og hunang, hvorki meira né minna. MATUR & DRYKKUR Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ginbræður Óskar Ericsson og Junio Carchini eru mennirnir á bakvið Himbrima, íslenska ginið sem er eins konar óður til árbakkans og þess sem þar vex. Fyrsta sæti Gljúfrabotn 40 ml Himbrimi 40 ml heimagerð krækiberjasaft 30 ml sour mix 20 ml Elder-flower-líkjör 10 ml blóðbergssíróp 10 ml börkur bitter Borinn fram á náttúrubeði og skreyttur með aðalbláberjum. Kokteillinn dregur nafn sitt af æskuslóðum keppanda, fjalllendi Setbergs í Hornafirði. Jóhann Helgi Stefánsson Sushi Social Annað sæti Hugmyndin á bak við drykkinn er að nota eingöngu íslensk hrá- efni og eingöngu hráefni sem upp- hefja bragðið af Himbrima sjálf- um. Það hefur verið mikið talað um sjálfbærni á Apótekinu upp á síðkastið og það er hugmyndin á bak við hráefnin. Hráefni sem ekki þarf að flytja inn og sum sem hefðu annars farið til spillis. „Heaven howler“ Tvær skvettur heimatilbúinn rabarbara-bitter 45 ml of Himbrimi gin 20 ml rabarbara bitter 35 ml hunangssýróp 35 ml rabarbarasaft 7 ml villt spánarkerfilssaft 20 ml Börkur bitter Hunangssírópið er búið til úr íslensku hunangi og í stað þess að þynna það út með heitu vatni er það þynnt út með tei úr íslenskum jurtum og kryddjurtum, m.a. blóðbergi, brenninetlum og sí- trónumelissu. Kokteillinn er hristur og borinn fram án klaka. Skreyttur með íslenskum krydd- jurtum. Jónmundur Þorsteinsson Apótek Þriðja sæti „Snifter“ 30 ml Himbrimi 15 ml rabarbaralíkjör 15 ml Carpano Antica Formula 10 ml Campari skraut: sítrónubörkur Ivan Svanur Corvasce Geiri Smart Tom Collins 50 ml Himbrimi gin 50 ml sykursíróp 25 ml sítrónusafi Hrist með klökum, borið fram með skvettu af sódavatni og skreytt með blóðbergi. Verðlauna- kokteilar Himbrima Gljúfrabotn Heaven howler Snifter

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.