Feykir - 06.02.2014, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
05
TBL
6. febrúar 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Forvitnast í fataskápa:
Anna María Oddsdóttir
Klútar, kjólar og
kósíheit par exelans!
Fataskápsgestgjafi seinasta innlits, hún
Guðrún Jóhannsdóttir sá fyllstu ástæðu
til að Fröken Fabjúlöss hefði samband við
ljósmóður okkar Skagfirðinga, hana
Önnu Maríu Oddsdóttur.
Anna María ku vera smekkmanneskja mikil og
einstaklega stylish svo við slettum nú upp á engil-
saxneskuna! Anna María er sem áður sagði starfandi
ljósmóðir á Sauðárkróki og sér um barnshafandi
konur sveitarfélagsins af alúð og umhyggju. Hún er
aðflutt en ræturnar liggja á Akureyri þar sem hún ólst
upp og hefur búið mest allt sitt líf.
En hvaða flík er það svo sem á hug og hjarta þessarar
yndislegu ljósmóður?
„Þegar kemur að fötum hef ég mjög einfaldan smekk.
Mér finnst skipta máli að vera fín og snyrtileg í
vinnunni. Ég kaupi mér klassísk föt og nota fötin mín
mikið. Mjög oft verður svartur fyrir valinu og poppa
svo flíkina upp með klút. Ef það er eitthvað sem ég
gæti ekki verið án og er í miklu uppáhaldi þá eru það
klárlega klútar, kjólar og gallabuxur. Á meðfylgjandi
mynd er ég í gallabuxum sem ég keypti í Kultur og eru
geggjað þægilegar. Ég hef oft verið spurð hvort ég hafi
virkilega tímt að borga fyrir buxur með götum og
vekja þær oft athygli útaf útlitinu. Jakkinn er einnig í
miklu uppáhaldi, keyptur í flýti í HM og hefur svo
sannarlega staðið fyrir sínu. Andrea fatahönnuður í
Hafnarfirði er í miklu uppáhaldi hjá mér og er
klúturinn frá henni, ef ég vil gera vel við mig kaupi ég
mér flík hjá henni.“
Að sjálfsögðu vantar okkur arftaka í gestgjafahlut-
verkið og stendur ekki á svari frá Önnu Maríu: „Ég vil
UMSJÓN MEÐ FRÖKEN FABJÚLÖSS
Hrafnhildur Viðarsdóttir [ frokenfab@feykir.is ]
skora á Gunnhildi Gísladóttir frá Álftagerði, hún er
töff týpa og glæsileg kona sem ég veit að lumar á
fullum fataskáp sem hana langar að deila með
lesendum í næsta blaði“
Við hlökkum til að sjá hvaða dásemdir Gunn-
hildur kemur til með að draga fram í dagsljósið!
Olíukerra á hliðina
Flughált á Sauðárkróksbraut
Óhapp hafði orðið
skammt frá bænum
Stóru-Gröf syðri, við
þjóðveg 75
Sauðárkróksbraut,
þegar blaðamaður
átti leið þar um
síðastliðinn fimmtudag.
Kerra aftan í olíubíl fór á hliðina utan við veg en
bílstjóra sakaði ekki og olíubílinn stóð á öllum hjólum á
vegarslóða skammt utan vegar. Óhappið varð með þeim
hætti að vegna flughálku sem var á staðnum ákvað
bílstjórinn að keyra inn á vegarslóða sem liggur með-
fram veginum á þessum slóðum og skilja kerruna eftir.
Ekki vildi betur til en svo að þegar hann hugðist bakka
kerrunni stuttan spöl rann hún til og fór á hliðina. /KSE
KJARNANUM HESTEYRI 2 550 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 455 4570
Bílaverkstæði
Verið velkomin í Kjarnann!
með Meguiar’s bílahreinsvörum
Eigum mikið úrval af
hágæða bílahreinsivörum frá Meguiar’s