Feykir - 05.06.2014, Blaðsíða 1
á
BLS. 6-7
BLS. 10
Feykir farinn
á faraldsfótinn
Gengið á
Hrollleifshöfða
í Sléttuhlíð
BLS. 9
Ragnhildur Friðriksdóttir nemi í
York í opnuviðtali Feykis
Hef alltaf
verið mikið
náttúrubarn
Fríður Finna segir
ferðasögu sína
Klífur Kilimanjaro
í Afríku
21
TBL
5. júní 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Verður opnuð á næstunni á Sauðárkróki
Ný vistvæn lífeldsneytisstöð
Íslenskt eldsneyti ehf. mun á
næstunni opna fyrstu vistvænu
lífeldsneytisstöðina sína á Íslandi á
Sauðárkróki.
Á stöðinni verður selt vistvænt líf-
eldsneyti sem nota má 100% á flesta
díselknúna bíla. Stöðin var tilrauna-
keyrð og dælt á fyrsta bílinn sl. föstu-
dag en sala á lífeldsneyti til almennings
mun hefjast á næstu vikum.
Stöðin á Sauðárkróki er hin fyrsta í
röð fleiri slíkra stöðva sem fyrirhugað
er að koma fyrir vítt og breytt um
landið. Lífeldsneytið sem notað er
kemur frá framleiðsluverksmiðju
Íslensks lífeldsneytis sem staðsett er í
Reykjanesbæ og er eldsneytið unnið
úr innfluttri repjuolíu frá Svíþjóð. Á
nýju stöðinni verður einnig hægt að
hlaða rafmagnsbíla. /Fréttatilk.
„Erum auðmjúk og þakklát“
Framsóknarflokkurinn í Sveitarfélaginu Skagafirði með hreinan meirihluta
„Við erum auðmjúk og þakklát fyrir
þessa góðu kosningu sem við fengum,
sem er besta kosning Framsóknar-
flokksins í Skagafirði frá upphafi. Af
stærstu sveitarfélögum landsins er
Framsóknarflokkurinn með mest fylgi
í Skagafirði,“ segir Stefán Vagn
Stefánsson, oddviti framsóknarmanna
í sveitarfélaginu Skagafirði.
„Við erum sömuleiðis afar þakklát
fyrir góðar móttökur sem við fengum alls
staðar í kosningabaráttunni. Við vorum í
meirihluta á síðasta kjörtímabili og þau
verk sem við unnum þá voru lögð í dóm
kjósenda, sem greinilega hafa verið
ánægðir með það sem hér var gert. Við
erum með flott og frambærilegt fólk á
þessum lista, sem lagði mikið á sig í
aðdraganda kosninga“ segir Stefán
aðspurður um hverju hann þakki þessi
úrslit. Að sögn Stefáns eru hafnar við-
ræður við sjálfstæðismenn um að mynda
meirihluta á breiðari grunni og ganga
þær vel. Hann segir það fyrsta kost að
semja við núverandi sveitarstjóra og gerir
ráð fyrir að Ásta B. Pálmadóttir sitji
áfram, enda hafi hún staðið sig afskap-
lega vel.
Nánar er fjallað um úrslit kosning-
anna og viðbrögð við þeim á bls. 4. /KSE
Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Skagafirði. MYND: Gunnhildur Gísladóttir
Lífeldsneytistankurinn var prufukeyrður sl. föstudag.
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N