Feykir - 05.06.2014, Side 8
8 Feykir 21/2014
„Systur sem vinna að því besta“
Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar fagnar 25 ára afmæli
Frá fundi með erlendum konum í Kakalaskála í mars sl.
Soroptimistarklúbbur
Skagafjarðar fagnaði 25 ára
afmæli í síðustu viku en
klúbburinn var stofnaður
þann 27. maí 1989. Soropti-
mistar eru alþjóðasamtök
fyrir vinnandi konur í öllum
störfum og vinna samtökin að
bættri stöðu kvenna um allan
heim og að mannréttindum
öllum til handa.
Evelyn Kuhne formaður
Soroptimistarklúbbs Skaga-
fjarðar segir nafn klúbbsins
gjarnan vekja athygli þar sem
það geti reynst erfitt að bera
nafn hans fram. Orðið er sam-
sett úr orðunum „sorores ad
optumum“ og þýðir systur sem
vinna að því besta.
Um er að ræða starfsgreina-
klúbb en á Íslandi eru um 500
konur í 19 klúbbum víðsvegar
um landið. „Í klúbbnum í
Skagafirði eru nú 27 konur, eða
systur eins og við köllum okkur
gjarnan, og erum við úr flestum
starfsgreinum sem finnast hér á
svæðinu,“ segir Evelyn. Klúbb-
urinn fundar einu sinni í
mánuði og þá er fundarstöðum
dreift um allan fjörð.
Evelyn segir klúbbinn styrkja
ýmis verkefni á alþjóðarvísu,
landsvísu og í heimabyggð.
„Einn fastur liður á vetradagskrá
klúbbsins er að bjóða erlendum
konum, búsettum á svæðinu, til
samveru einu sinni á ári og er
það gert til að kynnast betur og
rækta vinskap. Þessi samveru-
fundir hafa verið skemmtilegir
og fræðandi bæði fyrir erlendar
og íslenskar konur.“ Evelyn segir
klúbbinn eiga vinaklúbb í Hol-
landi og stendur til að heimsækja
hann í sumar í tilefni af 25 ára
afmælinu.
En hvernig kom það til að Sor-
optimistaklúbbur var stofn-
aður? „Landsamtökin Soropti-
mistar Íslands (SÍ) voru að leita
að konum til að stofna klúbb í
Skagafirði. Það var hringt í
konur, þeim boðið á kynning-
arfund og í kjölfarið til þátttöku.
Eftir nokkurra mánaða undir-
búningsvinnu var klúbburinn
tilbúinn og hann stofnaður með
hátíðarbrag en á stofnfundinum
voru 24 konur. Á fyrstu árum
klúbbsins rak hann smá verslun
á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki,
sem örugglega flestir muna eftir,
og var það fjáröflunarverkefni
klúbbsins,“ segir hún um upp-
hafsár klúbbsins.
Nú er helsta fjáröflunarverk-
efni hans unnið í samvinnu við
Sveitarfélagið Skagafjörð. Þá
fara Soroptimistakonur um
sveitarfélagið og meta býli,
fyrirtæki, stofnanir, götur og
garða til umhverfisverðlauna.
„Við teljum svo að verkefnið
hafi borið sýnilegan árangur.
Umhverfisvakning hefur átt sér
stað í samfélaginu og fólk virðist
gefa næsta umhverfi sínu betri
gaum. Það er ótrúlega gaman að
fylgjast með uppbyggingu og
breytingum á mörgum stöðum í
Skagafirði. Við vonum að íbúar
Skagafjarðar taki vel á móti
okkur í sumar, eins og undan-
farin ár, þegar við kíkjum í garða
og keyrum heim á bæjarhlöð,“
segir Evelyn að endingu. /BÞ
Soroptimistar vinna að ýmsum verkefnum heimamönnum til góða, líkt og sjá má á
þessari mynd en hér gefa þær bekk á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki.
Veðrið lék við okkur líkt og fyrir 10 árum
Fjölmenni á fjölumdæmisþingi Lions
Á fimmtudag og föstudag í
síðustu viku var fjölumdæmis-
þing Lionshreyfingarinnar á
Íslandi haldið á Sauðárkróki.
Að sögn Sveins Sverrissonar,
formanns Lionsklúbbs
Sauðárkróks, voru um 200
gestir á þinginu, auk
félagsmanna í skagfirsku
klúbbunum fjórum.
„Ég held að undirbúningur hafi
tekist mjög vel í flesta eða alla
staði og fólkið var mjög ánægt,“
sagði Sverrir í samtali við Feyki.
Eins og greint hefur verið frá á
Feyki.is var heilmikil dagskrá
báða þingdagana. En auk
fundarstarfa fengu gestir líka að
kynnast broti af því besta sem
skagfirsk menning hefur upp á
að bjóða.
Á kynningarkvöldi sem
haldið var í reiðhöllinni Svaða-
stöðum á fimmtudagskvöldinu
sáu Jón Hallur Ingólfsson,
Gunnar Rögnvaldsson og Sig-
valdi Gunnarsson um að
skemmta viðstöddum. Þórarinn
Eymundsson var með fræðslu
um gangtegundir íslenska
hestsins og nokkur ungmenni
sýndu listir sínar á hestum. Þá
tóku hestamenn lagið að
skagfirskum sið, líkt og best
gerist í réttum. Boðið var upp á
smakk af réttum úr skagfirsku
matarkistunni og bjórinn Gæð-
ing frá brugghúsinu í Útvík.
Á lokahófinu sem haldið var
í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
var snæddur hátíðarkvöldverð-
ur. Veislustjóri var Einar
Einarsson á Skörðugili. Þá léku
Halli Ísfjörð og Jón í Miðhúsum
á harmónikkur og Íris í Flata-
tungu söng. Halli í Enni las upp
úr „væntanlegri ævisögu sinni,“
kafla eftir Pálma Rögnvalsson.
„Menn hafa lengi minnst
þingsins sem haldið var hér árið
2004, ég held að þetta hafi alla
vega slagað hátt upp í það,“ sagði
Sveinn Sverrisson í samtali við
Feyki. /KSE
Lionsfélagar voru afar ánægðir með hvernig til tókst með þinghald. MYMDIR: Sveinn Sverris og KSE