Feykir - 21.08.2014, Page 2
2 Feykir 31/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Forsíðumynd: Bergrún Lauga frá Stórhóli í gamla Lýtingsstaðahreppi. Mynd: KSE
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Hugað að haustverkum
Enn eitt sumarið er nú að renna sitt skeið, senn tekur haustið
við og fólk hugar að haustverkum. Flestir skólar hefja göngu
sína á ný í vikunni, börnin byrja þá nýtt skólaár, spennt yfir því
að hitta félaga sína á ný eftir
sumarfríið, og skiptast eflaust
á óteljandi sögum af ævintýr-
um sumarsins. Árstíminn
vekur hjá mörgum mikla
tilhlökkun, enda mikið um að
vera og tilbreytingin mikil.
Bændur keppast nú við að
tína heyrúllur heim á bæi eftir
seinni slátt og það styttist í
göngur og réttir. Aðrir fara á
fjall í öðrum tilgangi en að
smala búfénaði, t.d. í berjamó
til að njóta þeirra ávaxta sem
lággróður fjallshlíðanna gefur af sér og einnig og ekki síður til
að njóta kyrrðarinnar og ferska fjallaloftsins.
Í þessu blaði eru þessum haustverkum einmitt gerð góð skil,
Ágúst Andrésson framkvæmdastjóri Kjötafurðastöðvar KS
segir frá nýjungum og nýjum tækifærum í aðdraganda
sláturtíðar, rætt er við Árnýju Árnadóttur gæðastjóra hjá SAH
Afurðum en fyrirtækið er eina sláturhúsið sem hefur vottun til
að slátra lífrænt vottuðu sauðfé- og nautgripum. Guðrún
Lárusdóttir bóndi í Keldudal stýrir áskorendapennanum og
ræðir um sveitasæluna, búsetuskilyrðin í Skagafirðinum og
hvernig þau hafa tekið breytingum frá því hún settist að og hóf
búskap í Keldudal.
Um næstu helgi verður einmitt hátíð helguð landbúnaði og
bændum, Sveitasæla 2014, og fer hún fram í reiðhöllinni
Svaðastöðum á Sauðárkróki. Þar verður skellt upp glæsilegri
sýningu sem áhugasamir um landbúnað, handverk og vinnu-
vélar ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Viðburðir af þessu tagi
eru hverju samfélagi mikilvægir og stuðla að samheldni íbú-
anna, eins og Laufey Kristín Skúladóttir nefnir, í umfjöllun um
Tónlistarhátíðina Gæruna. Mikilvægt er að sýna slíku framtaki
stuðning svo hægt sé að halda áfram að bjóða uppá fjölbreytta
afþreyingu og menningarviðburði en það er einfaldlega gert
með því láta sjá sig, blanda geði og hafa gaman.
Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri
Ákærð fyrir fjárdrátt í opinberu starfi
Héraðsdómur Norðurlands vestra
Sérstakur saksóknari gaf út
ákæru á hendur fyrrverandi
starfsmanni Sveitarfélagsins
Skagafjarðar fyrir fjárdrátt í
opinberu starfi. Málið átti að
þingfesta fyrir Héraðsdómi
NLV sl. þriðjudag en
samkvæmt upplýsingum frá
embætti sérstaks saksóknara
frestast fyrirtaka málsins
vegna þess að skipta þarf um
sækjanda málsins. Engin
efnisbreyting verður þó á
ákærunni.
Í ákærunni kom fram að
hinni ákærðu væri gefið að sök
að hafa dregið sér og notað
heimildarlaust í eigin þágu,
rúmar 26 milljónir króna á
þriggja ára tímabili. Í ákærunni
segir að á tímabilinu frá október
2009 til ársloka 2013 hafi ákærða
millifært rúmar 24,8 milljónir
króna í 56 færslum af reikningi í
eigu sveitarfélagsins yfir á eigin
bankareikninga. Jafnframt er
henni gert að sök að hafa
millifært rúmar 1,2 milljónir
króna af reikningi Upplýsinga-
miðstöðvar Norðurlands vestra
og 200 þúsund krónur af reikn-
ingi Byggðasafns Skagafjarðar
yfir á eigin bankareikninga. Þess
er krafist að ákærða verði dæmd
til refsingar og greiðslu alls
sakakostnaðar. Jafnframt er þess
krafist að ákærða greiði Sveitar-
félaginu Skagafirði tæpar 26,7
milljónir króna með vöxtum og
sæti upptöku á rúmum 3,1
milljón króna sem embætti
sérstaks saksóknara haldlagði af
bankareikningi ákærðu.
Á mánudaginn var kom í ljós
að Ríkissaksóknari hefði átt að
gefa út ákæruna en ekki embætti
sérstaks saksóknara. Þær
skýringar fengust frá embætti
sérstaks saksóknara að sérstakur
saksóknari hefði forræði á
ákæruvaldi yfir málum er varða
efnahagsbrot, m.a. fjárdrátt, en
þegar um fjárdrátt er að ræða í
opinberu starfi er það til
refsiþyngingar. Ríkissaksóknari
fer með mál er varða brot í
opinberu starfi og því hefði
ákæran með réttu átt að vera
undirrituð af Ríkissaksóknara.
Ákveðið var að fella málið niður
og erindi sent til Ríkis-
saksóknara um að gefa ákæruna
út á ný í sömu mynd.
Embætti sérstaks saksóknara
mun áfram fara með málið fyrir
dómi. /BÞ
Gestkvæmt á Mælifellshnjúki
Rúmlega 1700 nöfn í gestabókinni
Á fimmtudaginn í síðustu
viku fór föruneyti Hólamanna
upp á Mælifellshnjúk með
það eina verkefni fyrir
höndum að skipta um
gestabók. Gamla bókin hafði
verið á tindinum síðan 22.
ágúst 2009 og var orðin
yfirfull.
Til gamans má geta þess að
árið 2009 höfðu 74 ritað nafn
sitt í gestabókina, 291 árið 2010,
254 árið 2011, 485 árið 2012,
316 árið 2013 og 302 það sem af
er þessu ári. Samtals eru þetta
rúmlega 1700 manns sem hafa
skrásett nafn sitt í gestabókina
sem sú nýja leysir af hólmi.
Ágætisveður var á meðan
göngunni stóð en þegar komið
var upp á hrygginn og svo
Föruneyti Hólamanna á toppi Mælifellshnjúks. Mynd: fengin af facebooksíðu
Guðmundar Björna Eyþórssonar
Austur-Húnavatnssýsla
Í fundargerð sveitarstjórnar
Skagastrandar frá 13. ágúst
sl. kemur fram að unnið er að
gerð viljayfirlýsingar á milli
ríkisstjórnar Íslands, Blöndu-
ósbæjar, Sveitarfélagsins
Skagastrandar, Húnavatns-
hrepps og Skagabyggðar.
Viljayfirlýsingin byggir á
þingsályktun Alþingis frá 17.
október 2013 þar sem ríkis-
stjórninni er falið að koma á
samstilltu átaki stjórnvalda og
sveitarfélaga í Austur-Húna-
vatnssýslu um eflingu atvinnu-
lífs og sköpunar nýrra starfa
með nýtingu raforku sem fram-
leidd er í Blönduvirkjun. Í
tillögunni frá Alþingi kemur
fram að markmiðið með átak-
inu er að efla samkeppnishæfni
svæðisins og undirbúa það fyrir
þá uppbyggingu sem fylgir
orkunýtingu Blönduvirkjunar
og jafnframt vinna að markaðs-
setningu svæðisins sem iðnað-
arkosts, svo sem fyrir gagnaver.
Í greinargerðinni kemur
fram að Norðurland vestra
hefur gengið í gegnum miklar
breytingar er varða atvinnu-
hætti mörg undanfarin ár.
Fækkun starfa í hefðbundnum
atvinnugreinum, svo sem
sjávarútvegi og landbúnaði,
hefur leitt til mikillar byggða-
röskunar sem birtist í mikilli
fólksfækkun sem vart á sér
hliðstæður hér á landi hin síðari
ár. Samkvæmt upplýsingum
Byggðastofnunar hefur íbúum á
svæðinu fækkað um tæplega
1000 milli áranna 1997 og 2010.
Sveitarstjórn Skagastrandar
samþykkti aðild að viljayfirlýs-
ingunni og fól oddvita að undir-
rita hana þegar hún yrði full-
búin. /GSG
Viljayfirlýsing vegna atvinnu-
uppbyggingar í A-Hún
Kalla eftir svörum
Yfirlýsing frá Hollvinasamtökum HS
Hollvinasamtök Heilbrigðis-
stofnunarinnar Sauðárkróki
bíða enn eftir upplýsingum
um það hvernig heilbrigðis-
ráðherra hyggst ná fram þeim
markmiðum sem boðuð eru
með sameiningu heilbrigðis-
stofnana frá 1. október nk.
Í fréttatilkynningu frá Holl-
vinasamtökunum segir að marg
oft hafi verið kallað eftir svörum
við því t.d. hvernig aukið öryggi
íbúanna í heilbrigðismálum
verði tryggt og hvernig ákvarð-
anataka verði færð frá ráðuneyti
til heimamanna. „Hollvinum er
ekki ljóst hvað er í vegi fyrir því
að opinbera þessar upplýsingar
nú, þegar einungis 45 dagar eru í
að aðgerðirnar komi til fram-
kvæmda og má segja að þetta
upplýsingaleysi auki óöryggi
íbúa en ekki öryggi eins og mark-
miðið er,“ segir í tilkynningunni.
Enn á ný skora því Hollvinir á
heilbrigðisráðherra að kynna nú
þegar fyrir heimamönnum
fyrirhugaðar breytingar. /BÞ
tindinn fóru vindhviður upp í
28 m/s. Í umræddu föruneyti
voru þau Broddi Reyr Hansen,
Erla Björk Örnólfsdóttir,
Guðmundur Björn Eyþórsson
og Hjalti Þórðarson. /KSE