Feykir - 21.08.2014, Qupperneq 9
31/2014 Feykir 9
Ágúst segir mikla eftirspurn
vera eftir íslensku lambakjöti
þar ytra og að hún sé sífellt að
aukast. „Rússar hafa mjög
mikinn áhuga fyrir Íslandi og
íslenskum vörum, sem eiga
gríðarlega mikil og góð tækifæri
á þessum stóra markaði. Þetta er
það sem við erum búin að vera
vinna í og afla okkur þekkingar
um og við erum klár í slaginn
núna,“ segir Ágúst og heldur
áfram: „Við erum að klára
samninga núna við „high end“
verslunarkeðju sem kallast
Azbuka Vkusa en henni svipar
mikið til og hefur sömu
gæðaviðmið og Whole Foods
verslunarkeðjan í Bandaríkjun-
um. En við höfum verið í mark-
aðssetningu í Bandaríkjunum á
undan förnum 15 árum og erum
búin að byggja þar upp markað.
Afurðastöðin á Hvamms-
tanga hóf að framleiða og flytja
kjöt til Whole foods fyrir sex
árum og leiðir það verkefni í
dag. Hugmyndin er að heim-
færa þá þekkingu sem búið er að
byggja upp þar yfir á Rúss-
landsmarkað.“ Azbuka Vkusa
verslunarkeðja rekur alls 68
verslanir í Moskvu og fimm í
Pétursborg og segir Ágúst hana
vera í örum vexti. „Við erum
komin með fyrstu pöntunina
sem við förum í um leið og við
byrjum að slátra. Þetta verður
ferskt kjöt sem við fljúgum
þangað út og sjáum hver
viðbrögðin verða. Þetta verður
ekki mikið magn núna í haust
en við höfum trú á þessu
verkefni og að þetta muni
byggjast upp í að verða eitthvað
meira.“ Ágúst segist eiga von á
aðilum frá verslunarkeðjunni
um miðjan september en þá
ætlar hann að kynna fyrir þeim
„kúlturinn“ í kringum lamba-
kjötið, eins og hann orðar það.
„Þá ætla þau að koma og
heimsækja okkur, sjá aðeins
hvernig þetta gengur fyrir sig hjá
okkur, fara í göngur og réttir og
slátrun og sjá úrvinnsluna. Það
er svipað og við gerðum varð-
andi Ameríkanana, að byggja
upp góð tengsl.“
Ágúst viðurkennir að það
hafi verið léttir þegar í ljós kom
að Ísland var ekki á lista yfir þær
þjóðir sem Rússland setti við-
skiptabann á, þar sem miklir
viðskiptahagsmunir séu í húfi
fyrir fyrirtækið og Ísland allt. „Í
ljósi þeirra aðstæðna sem eru í
Rússlandi núna þá prísum við
okkur sæla að vera ekki á
þessum lista. Það er mikill
velvilji Rússa í okkar garð.
Þannig að ég held að við eigum
gríðarlega mikil tækifæri núna
Ágúst Andrésson framkvæmdastjóri Kjötafurðastöðvar KS.
sem Íslendingar þurfa að nýta
sér og meiningin hjá okkur,
þegar við erum komin af stað
með þetta fyrirtæki, er að geta
þá orðið öðrum að liði við
markaðssetningu á íslenskum
vörum.“
Aukin tækifæri í
austri með tilkomu
fríverslunarsamninga
Kjötafurðastöðin hefur einnig
gert mjög góðan samning við
eitt stærsta kjötdreifingarfyrir-
tæki í Evrópu, og það stærsta á
Spáni, Carnes Félix. Kjöt-
afurðastöð KS var í miklum
viðskiptum við fyrirtækið þar til
mikil efnahagskreppa skall á
Suður-Evrópu árið 2012. Þá
kipptu Spánverjar að sér hönd-
um og keyptu ekkert af
afurðastöðinni, en árið áður
höfðu þeir verið stærstu kaup-
endur þeirra. „Á einni nóttu
hrundi allt hjá þeim, þeir drógu
að sér hendurnar og keyptu
ekkert frá okkur. Það sló okkur
aðeins útaf laginu en við náðum
að leysa það með öðrum
mörkuðum. Þeir komu aðeins
aftur tilbaka árið 2013 en voru
svo hjá okkur í síðustu viku og
við erum að ganga frá mjög
góðum samningum við þá,
talsvert magn og ágætis verð.
Það sem skiptir mestu máli er að
það mátti skilja á þeim að menn
eru bjartsýnir og vilja meiri
viðskipti.“
Ágúst segir tækifærin einnig
vaxandi í Asíumörkuðum
undanfarið með tilkomu frí-
verslunarsamninga við Hong
Kong og Kína. „Við erum búin
að vera byggja upp tengsl þar
síðustu sjö ár og það hafðist að
koma fríverslunarsamningi í
gegn við Hong Kong í sumar,
þannig að við getum haldið
áfram ótrauð að flytja inn á
þann stóra markað. Fríversl-
unarsamningurinn við Kína er
einnig orðinn að veruleika, það
er verið að klára að útfæra hann
en þegar því er lokið getum við
flutt beint inn á Kínamarkað.“
Ágúst segir þetta vera afar
jákvæða þróun og að sá mark-
aður sé mjög spennandi en
þangað er fyrst og fremst verið
að flytja ódýrari afurðir, s.s.
slögin, hálsa, innmat og ýmsan
afskurð og bein.
Markaðstækifærin hefur
einnig verið að finna hér nær, á
norðlægri breiddargráðu þar
sem Kjötafurðastöðin hefur
verið að gera ákveðnar tilraunir
með að koma fersku kjöti til
Svíþjóðar. Ágúst nefnir einnig
milliríkjasamning á milli Íslands
og Noregs sem hljómar upp á
600 tonn og hefur verið á
ágætum verðum. Útflutningur
til Bandaríkjanna, sem sláturhús
KVH á Hvammstanga hefur
verið að sinna, heldur áfram í
haust og eru bundnar vonir við
að flytja um 250 tonnum af
fersku kjöti vestur um haf.
„Þannig að allt bendir til þess að
útflutningurinn eigi að geta
gengið vel. Það er fyrst og fremst
af því að við höfum ofurtrú á
þessari grein og ofurtrú á
landbúnaði. Líka því að það sé
hægt að gera mun betur í þessu,
hægt að hagræða meira og
byggja þetta betur upp og ná að
skila enn meiru til bænda. Að
sama skapi að skaffa neytendum
hér á landi mjög góða vöru og að
auka hróður íslenskrar fram-
leiðslu á erlendum mörkuðum
sem lambakjötið getur verið
flaggskipið í. Þannig að við
erum bara mjög brött með þetta
- það er ekki hægt að segja
annað,“ segir Ágúst að endingu.
í íslenska sendiráðinu í Rússlandi. Þórólfur Sigurjónsson eldaði og kynnti íslenska vöru. Ágúst meðhöndlar kjötið.