Feykir - 21.08.2014, Side 10
10 Feykir 31/2014
Ótrúleg stemning og
stórkostlegt sjónarspil
Tónlistarhátíðin Gæran 2014
Tónlistarhátíðin Gæran var haldin í fimmta sinn á
Sauðárkróki um sl. helgi. Að sögn aðstandenda
gekk hátíðin mjög vel og voru gestir og
tónlistarfólk almennt ánægt. Samstarf við
lögreglu, útideild og björgunarsveit gekk að sama
skapi afar vel, ölvun var í algeru lágmarki og allir
skemmtu sér fallega. Þó segir Laufey Kristín
Skúladóttir, einn skipuleggjandi hátíðarinnar, að
gestirnir hefðu mátt vera fleiri og þátttakan betri.
„Til að viðburður eins og þessi geti gengið í litlu
samfélagi eins og hérna á Norðurlandi vestra þá
þurfa íbúar af öllu svæðinu að sýna stuðning sinn í
verki og mæta. Eins og staðan er núna er óvíst um
framhaldið,“ segir Laufey í samtali við Feyki. Þá segir
hún dagana í aðdraganda hátíðarinnar hafa gengið
heldur erfiðlega en þrjú tónlistaratriði duttu út af
dagskrá vegna veikinda á meðal tónlistarfólks. Einnig
hafði það áhrif að það voru færri sem stóðu fyrir
megin hluta skipulagningarinnar heldur en oft áður
og nýtt fólk í lykilstöðum.
Aðspurð um hápunkt á hátíðinni segir hún
nokkrar hljómsveitir hafa staðið sérstaklega upp úr,
m.a. afríska funk bandið The Bangoura Band. „Þau
náðu upp alveg ótrúlegri stemningu með miklum
trommuslætti og lúðrablæstri. Meistararnir í Dimmu
buðu upp á stórkostlegt sjónarspil á sviðinu sem allir
heilluðust af, meira að segja fólk eins og ég sem
hlustar aldrei á rokk. Það var líka mjög skemmtilegt
að vera með heilt tökulið frá sjónvarpsstöðinni N4
með okkur á föstudagskvöldinu. Persónulega fannst
mér svo frábært hvað það voru margar stelpur sem
stóðu á sviðinu hjá okkur í ár.“
Að lokum vilja aðstandendur hátíðarinnar koma
á framfæri sérstöku þakklæti til allra þeirra fyrirtækja
og stofnana sem höfðu trú á þeim og verkefninu og
studdu rækilega við bakið á þeim. Einnig langar þá
að koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu
sjálfboðaliða sem eyddu helginni með þeim og gáfu
tíma sinn í verkefnið. Án þessara tveggja þátta hefði
þessi tónleikahátíð aldrei orðið að veru-leika. „Við
höfum mikla trú á Gærunni og teljum að hér sé á
ferðinni viðburður sem skiptir máli fyrir ímynd og
sjálfsmynd lítils samfélags eins og er hér á Norður-
landi vestra. Viðburðir eru hverju samfélagi mikil-
vægir. Þeir stuðla að samheldni íbúa, búa til
stemningu á áfangastað sem eru í samkeppni við
aðra áfangastaði landsins. Gæran er þátttakandi í því
að gera áfangastaðinn Skagafjörð að spennandi kosti
ásamt öllu því góða starfi sem unnið er hér. Það er því
mikilvægt að við sýnum stuðning og sækjum þá
viðburði sem eru í boði í heimahéraði svo að fram-
boð þessara viðburða haldist,“ segir Laufey að
endingu. /BÞ Myndir: Hjalti Árna