Feykir - 21.08.2014, Side 15
31/2014 Feykir 15
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar ætti að taka
sig til fyrir SveitaSæluna...
Spakmæli vikunnar
Ef hamingjan lokar einum dyrum opnast aðrar; en oft horfum við svo
lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki þær sem standa okkur opnar.
- Helen Keller
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... Júlíus Sesar var þjakaður af áhyggjum yfir vaxandi skallanum?
... Lyndon B. Johnson var fyrsti forseti Bandaríkjanna sem
notaði augnlinsur?
... gíraffar hafa engin raddbönd?
... augasteinn kolkrabba er ferkantaður?
FEYKIFÍN AFÞREYING gudrun@feykir.is
Hahahahaha...
Gömul kona saup á hvítvínglasi, þar sem hún sat á veröndinni með
karlinum sínum. Svo sagði hún: „Veistu hvað? Ég elska þig svo mikið að
ég efast um að ég gæti hreinlega lifað án þín!“ Karlinn hennar spurði þá:
„Er þetta þú að tala … eða er þetta vínið sem talar?“ Og konan svaraði:
„Þetta er ég … Að tala við vínið.“
Krossgáta
Sigrún Heiða og Hrannar matreiða
Fiskréttur,
kúrbítsbrauð og
Maltisers-ís
AÐALRÉTTUR
Fiskréttur
800 gr ýsa / þorskur
1 laukur
1 paprika
1 epli (litur eftir smekk)
4 gulrætur
1 dl rjómi
1 tsk karrí
100 gr rjómaostur
1 tsk salt
1 tsk fiskikrydd (eða eitthvað
gott krydd)
¼ tsk sítrónupipar
Aðferð: Við reynum að hafa fisk
oft í matinn hjá okkur og erum
því með einn fiskrétt. Skerið
laukinn í sneiðar, paprikuna í
strimla, eplið og gulræturnar í
bita. Létt steikt á pönnu, strá
karrí yfir og rjómaosturinn
látinn bráðna á pönnunni og svo
rjómanum hellt yfir.
Skerið fiskinn í passlega bita
(minni frekar en stærri) leggið
yfir grænmetið. Stráið salti,
fiskikryddi og sítrónupipar yfir
fiskinn. Látið lokið á pönnuna og
sjóðið við vægan hita í 5-10 mín.
MEÐLÆTI
Kúrbítsbrauð
2 egg
1 bolli
2 bollar sykur
2 tsk vanilludropar
= þetta allt þeytt saman.
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Sigrún Heiða Pétursdóttir
Seastrand, frá Finnmörk í
Húnaþingi vestra, og Hrannar
Freyr Gíslason, fæddur og uppalinn á Sauðárkróki, eru
matgæðingar Feykis þessa vikuna. Þau ætla að bjóða okkur upp
á gómsætan fiskrétt borinn fram með kúrbítsbrauði og
Maltisers-ís í eftirrétt.
„Skorum á Helgu Rós Níelsdóttir frá Fremri Fitjum í V-Hún.
Helga Rós er alveg með þetta í fingrunum og á ekki í nokkrum
vandræðum með að undirbúa veislu með litlum fyrirvara, elda eða
baka dýrindis kökur og bragðið klikkar ekki.“
Feykir spyr...
[SPURT Á
FACEBOOK]
Ætlar þú
að fara á
SveitaSælu
2014?
SILJA ÖSP
JÓHANNSDÓTTIR:
-Nei því miður.
INGA JÓNA
SVEINSDÓTTIR:
-Fer ef ég verð í bænum.
ANÍTA LIND
ELVARSDÓTTIR:
-Nei kemst ekki. Ég verð úti í
Tyrklandi.
HAFSTEINN LOGI
SIGURÐARSON:
-Nei held ég verði ekki heima.
2 bollar rifinn Kúrbítur
= bætt út í þeyttu blönduna
2 bollar hveiti
1 tsk salt
½ tsk lyftiduft
1 tsk kanill
1 tsk natron
= þetta hrært út í blönduna
smátt og smátt saman, hrært
varlega saman.
Aðferð: Við eignuðumst brauð-
vél fyrir nokkrum árum og
höfum gert margar tilraunir með
að baka brauð, það eru til margar
góðar brauðuppskriftir og hérna
er ein sem þarf enga brauðvél til
að gera og þessi kemur virkilega
á óvart og hvetjum við fólk til að
prufa hana.
Bakað í aflöngu formi í 180°C
þar til brúnirnar sleppa forminu
eða prjónn kemur hreinn úr
þegar stungið er í brauðið.
EFTIRRÉTTUR
Maltisers-ís
3 eggjahvítur - stífþeyttar
3 eggjarauður
3 msk sykur (bætt út í
eggjarauðurnar og
stífþeytt saman)
½ rjómi, þeyttur
1 stór poki Maltiserskúlur,
mulið niður
½ marensbotn, mulinn niður
Aðferð: Svo er sígilt að eiga ís í
frystinum til að fá sér eftir
sólríkan dag eða góðan mat. Öllu
blandað saman í skál og hrært vel
saman. Sett í form og fryst í
lágmarki í 4 klst.
Verði ykkur að góðu!
Hrannar Freyr og Sigrún Heiða á brúðkaupsdaginn.