Feykir - 06.11.2014, Blaðsíða 4
4 42/2014
Aflatölur 26. október – 1. nóvember 2014
Rúm 260 tonn að landi
Í viku 43 var tæplega 125 tonnum landað á Skagaströnd og tæpum 127 tonnum landað á
Sauðárkróki. Þá var landað 6 tonnum á Hofsósi og 3 tonnum á Hvammstanga. Samtals gera þetta
um 260 tonn. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Kristján Þór Hansen
Sauðárkróki
fæddur 10. júlí 1950 – látinn 30. september 2014
Kynni okkar
Kristjáns Þórs
Hansen hófust
eiginlega í
gengum Elvis
Presley. Er ég
flutti hingað í
fjörðinn 1983,
frétti ég, að á
Króknum ætti
heima mikill Elvis
aðdáandi. Ég
hafði samband við
Kristján og við ræddum málin.
Hann kvaðst hafa áhuga á að
stofna Elvis – klúbb hér á
Norðurlandi vestra, þar sem
aðdáendur goðsins gætu hist til
að hlýða á tónlist hans og bera
saman bækur sínar. Ég var til
með að gerast félagi í slíkum
klúbb. Af stofnun hans varð hins
vegar ekki, þar eð ekki reyndist
nægjanlegur áhugi fyrir hendi.
En eftir þetta urðum við einhvers
konar sálufélagar í Presley.
Sumarið 2008 þróuðust mál
þannig, að Kristján tók að sér að
betrekkja og mála tvær stofur hér
á Mælifelli. Þá komst ég að raun
um, að tónlistarfagurkerinn,
Kristján Þór Hansen, hafði ekki
síður næmt auga fyrir fallegu
handverki. Hann var vandvirkur,
gaf sér góðan tíma í verkið, fór
fagmannlegum
höndum um
gömul þil,
hreinsaði burt
gamalt betrekkið,
sparslaði, pússaði
og límdi nýtt, svo
stofurnar gengu í
endurnýjun
lífdaga. Ég vissi
ekki fyrr en þá, að
hann sem
málarameistari
hafði fengist mikið við að mála
kirkjur hér í Skagafirði og
Húnavatnssýslum, þar sem
verkin sýna listfengt handbragð
hans, öllum sem þangað koma.
Kristján var góður gestur á
heimili okkar. Hann hafði
þægilega nærveru, var lítillátur
og gaf sér tíma til að spjalla um
daginn og veginn og oft stutt í
græskulausa kímni. Oftar en ekki
barst talið eitthvað að goðinu,
Elvis, og tónlist hans. Þar var
ekki komið að tómum kofanum.
Kom í ljós, að hann var búinn að
safna að sér nær öllum plötum
og diskum, sem út hafa komið
með Elvis, auk margra hluta
honum tengdum, enda búinn að
heimsækja Graceland og sjá með
eigin augum heimili kóngsins í
allri sinni dýrð. Gaman var að
heyra hann segja frá þeirri ferð.
Líklega hefur honum ekki
fundist vanþörf á að bæta úr
skorti á Elvis í mínu plötusafni,
því síðla þetta sumar sendi hann
mér, eiginlega í afmælisgjöf,
nokkra geisladiska með öllum
þekktustu lögum Elvis, glæsilegar
upptökur, sem búnar eru að veita
marga ánægjustund. Þannig var
Kristján, hann var heill í orðum
og gjörðum og lét verkin tala.
Einhverju sinni spurði ég hann
svona í gamni, hvort hann teldi,
að Elvis hefði e.t.v. verið
vinsælasti söngvari sem uppi
hefði verið. Ég man ekki, hverju
hann svaraði. Auðvitað er slík
spurning fávísleg í augum
aðdáenda Elvis. Þeir hafa svarað
henni á sinn hátt með orðunum:
Elvis for ever. En enginn maður
er eilífur. Lífið er stutt, en listin er
löng. Það má líklega heimfæra
upp á Elvis Presley og fleiri
snillinga.
Á plötunni Amazing Grace
syngur Elvis einvörðungu gospel
– tónlist. Þar eru margar perlur,
m.a. lagið You will never walk
alone, Þú ert aldrei einn á ferð,
sem margir þekkja. Mætti þetta
fallega lag veita ástvinum
Kristjáns huggun og von, nú
þegar sorgin hefur barið að
dyrum. Eftirlifandi eiginkonu
hans, börnum þeirra og fjöl-
skyldum og öðrum aðstand-
endum sendi ég einlægar
samúðarkveðjur.
Ólafur Hallgrímsson.
I N M E M O R I A M
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri
Lumarðu á frétt?
Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra
Addi afi GK-97 Landb.lína 9.347
Alda HU-112 Landb.lína 7.527
Bergur sterki HU-17 Landb.lína 735
Blær HU-77 Landb.lína 424
Dagrún HU-121 Þorskanet 265
Diddi GK-56 Handfæri 1.580
Muggur KE-57 Landb.lína 13.586
Sighvatur GK-57 Lína 78.992
Signý HU-13 Landb.lína 1.995
Stella GK-23 Landb.lína 9.509
Sæfari HU-200 Landb.lína 1.028
Alls á Skagaströnd: 124.988
Farsæll SH-30 Botnvarpa 43.782
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 1.603
Helga Guðm SK-23 Handfæri 667
Klakkur SK-5 Botnvarpa 78.435
Óskar SK-13 Handfæri 464
Steini SK-14 Handfæri 614
Vinur Sk-22 Handfæri 953
Þytur SK-18 Handfæri 376
Alls á Sauðárkróki 126.894
Ásmundur SK-123 Landb.lína 2.385
Þorgrímur SK-27 Landb.lína 3.633
Alls á Hofsósi 6.028
Harpa HU-4 Dragnót 2.958
Alls á Hvammstanga 2.958
Sláturtíðinni lauk í síðustu viku hjá SAH afurðum
Gengur allt vel með
góðu starfsfólki
Sláturtíðinni lauk formlega
hjá SAH afurðum á Blönduósi
síðasta sumardag en í síðustu
viku voru þó þrír minni
sláturdagar. Að sögn Gunnars
Tr. Halldórssonar fram-
kvæmdastjóra hefur
starfsemin gengið vel í
þessari sláturtíð, en þaulvant
fólk kemur til starfa ár eftir ár
og gengur í sínar stöður. Alls
var slátrað um 104.000
gripum.
Fastir starfsmenn SAH afurða
eru um 20 og bætast um 80 við í
sláturtíðinni. Gunnar segir
langflesta vera erlenda starfs-
menn, en þó hafi verið leitað til
þeirra örfáu sem eru á
atvinnuleysisskrá á staðnum.
Hann segir miklu muna að vera
með vant fólk, hraðinn náist
mjög fljótt upp og vinnuandinn
sé góður og engir árekstrar.
Starfsfólkið er af 5-6 þjóðernum
og koma margir í gegnum fasta
starfsmenn sem hafa verið
búsettir lengi á Blönduósi en eru
frá Póllandi.
Gunnar segir að um aukn-
ingu sé að ræða milli ára sem sé
mjög jákvætt og sýni traust
innleggjenda í þeirra garð. Þá
hafi meðalþyngd hækkað um
400 gr. milli ára sem einnig sé
jákvætt. „Við erum ánægð með
hversu vel hefur gengið, enda
liðsheildin góð,“ sagði Gunnar
að lokum. /KSE
Frá lesendum
Á kafi í snjó
Ingólfur Sveinsson er góður. Hann bjargaði mér úr snjónum á
Laxárdalsheiðinni þann 29. október sl. Ég var alveg að fenna í
kaf, orðinn eins og snjóbolti, rétt komst upp á þúfu til að veifa í
hann. Hann fór með mig heim í Bergstaði þar sem ég á heima.
Leiðrétting
Þau leiðu mistök voru gerð í prjónaþætti síðasta blaðs að Anna
Jóhannesdóttir var sögð vera frá Hjalla. Það mun ekki vera rétt,
hún er frá Hjaltastöðum. Beðist er velvirðingar á þessu.
Tveggja daga verkfall lækna á HS
Endurtekið um miðjan nóv-
ember ef ekki semst áður
Yfirstandandi læknaverkfall
hefur haft nokkur áhrif á
starfsemi Heilbrigðisstofnun-
arinnar Sauðárkróki, en
læknar þar fóru í tveggja
daga verkfall síðustu vikuna í
október og var eingöngu sinnt
bráðaþjónustu á meðan. Hins
vegar hafa læknar á Heil-
brigðisstofnuninni á Blöndu-
ósi ekki farið í verkfall.
Að sögn Arnar Ragnarssonar,
yfirlæknis á Sauðárkróki, urðu
einhver óþægindi vegna verk-
fallsins, einkum vegna frestunar
á tímum. Örn segir að fólk hafi
þó sýnt þessu skilning og að
hann hafi ekki heyrt miklar
gagnrýnisraddir vegna þessa. Til
stendur að læknar á Sauðárkróki
fari aftur í tveggja daga verkfall í
nóvember, ef ekki semst fyrir
þann tíma.
Örn sagðist eingöngu hafa
upplýsingar um gang mála úr
fjölmiðlum og samtölum við
fólk. „Við verðum að vera
bjartsýn, en því miður virðist þó
lítið vera að gerast,“ sagði hann
að lokum. /KSE