Feykir


Feykir - 20.11.2014, Blaðsíða 3

Feykir - 20.11.2014, Blaðsíða 3
44/2014 3 Rætt við Björn Þór Kristjánsson eiganda veitingastaðarins Pottsins á Blönduósi fyrir Grunnskólann á Blöndu- ósi, í kaffihúsinu „Við Árbakk- ann“. „Við höfum til þessa haft opið allt árið frá kl. 11:00 að morgni til kl. 22:00 að kvöldi, en því er ekki að leyna að það eru fáir á ferðinni yfir dimm- ustu vetrarmánuðina,“ segir Björn. Líkt og með önnur fyrirtæki verður Potturinn að vera í sífelldri vöruþróun en Björn ákvað nýverið að taka upp þá nýbreytni að bjóða upp á sérstakan hádegismatseðil með hefðbundinn íslenskan mat, og nefnir hann gamla góða saltfiskinn með hamsatólg sem dæmi um innihald hádegis- matseðils; soðna ýsu, lambalæri, kjöt og fiskibollur, plokkfisk með heimabökuðu rúgbrauði og ýmislegt annað góðgæti. „Mér sýnist þessi nýbreytni falla í kramið hjá mörgum enda er lögð áhersla á mikil gæði og hófstillt verð. Við birtum Lambasteikin með béarnaise- sósu alltaf vinsælust Potturinn Restaurant stendur við Þjóðveg 1 á Blönduósi og fær til sín fjölda viðskiptavina sem eiga þar leið hjá, þá sérstaklega á mesta ferðamannatímanum yfir sumarið. Að sögn Björn Þórs Kristjánssonar eiga fjölmargar rútur þar viðkomu og raunar henti Potturinn einkar vel fyrir þennan markhóp þar sem staðurinn getur tekið 80 manns í sæti niðri og 60 manns uppi í Eyvindarstofu. Þá stoppar þar jafnframt mikið af fólki sem ferðast á eigin vegum, innlendir sem erlendir ferðamenn. Að síðustu segist hann fremur hafa reynt að ná til heimamanna, sem hann segir vera þeirra mikils- verðustu viðskiptavinir, því þeir eru þar allt árið. „Við erum með nokkuð hefðbundinn matseðil hér á Pottinum. Lambasteikin með béarnaisesósu hefur alltaf verið vinsæl og eins hefur fiskur dagsins gengið vel. Þá eru auðvitað hamborgarar og pítsur alltaf vinsælir réttir, ekki síst hjá yngri kynslóðinni,“ svarar Björn aðspurður um vinsælustu réttina á matseðli Pottsins. Fyrirtækið Blöndubyggð ehf., sem rekur Pottinn, var stofnað af Birni árið 2007 og sumarið 2011 opnaði hann Eyvindar- stofu, efri hæðina á Pottinum. Um er að ræða 109 fermetra veislu- og ráðstefnusal í stíl Eyvindarhellis, sem er í senn sýning og fundaaðstaða með þráðlausu neti og tveimur skjávörpum, en þar upplifa gestir sig í heimkynnum úti- legumannsins á Hveravöllum. Björn hefur verið í ýmsum rekstri tengdum ferðaþjónustu frá árinu 2002 en þar á undan var hann sjómaður og síðar skipstjóri í ein 25 ár. Ástæðuna fyrir því að hann kaus að opna veitingarekstur á Blönduósi segir hann vera einfalda, hann er fæddur og uppalin á bænum Húnstöðum, í fimm kílómetra fjarlægð frá Blönduósi. Björn hefur einnig rekstur Félags- heimilisins á Blönduósi á sinni könnu og annast skólamáltíðir VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir matseðilinn á Facebook síðunni okkar á hverjum mánudegi þannig að fólk getur séð hvað er boðið uppá þá vikuna,“ útskýrir Björn. Mikill áhugi fyrir eflingu ferðaþjónustu á svæðinu Á Pottinum er allt brauð bakað á staðnum og er lagður mikill metn- aður í að hafa það alltaf ferskt og nýbakað. „Einnig erum við að fara út í að hafa á boð- stólnum heilsu- brauð án gers og aukaefna. Súpurnar okkar eru ekki með glúteni því fólk er farið að hugsa mikið meira hvað það lætur ofan í sig – við erum að fylgja því eftir alla leið.“ Björn segir að á Hér er um að ræða grundvallarvanda sem ég glími við sem útlendingur á Íslandi. Ég virðist bara ekki geta svarað spurningunni þannig að öllum líki. Ef ég segi „Ameríku“ svarar fólk: „Já, dö, ég veit það en frá hvaða fylki?“ En ef ég segi “Peoria, Illinois” spyr folk “Hmm, hvaða land er það?“ Þannig að til að gera alla góða gæti ég sagt án þess að þurfa að anda á milli: „Sko, ég ólst upp í Peoria, gekk í skóla í Des Moines, Carbondale og Fairbanks en milli skóla bjó ég í Seattle og flutti til Hóla þegar maðurinn minn fór í mastersnám þar, eitt sumar var ég á bát frá Kodiak en núna bý ég á Blönduósi.“ Ástæðan fyrir að mér finnst allir þessir staðir eiga heima í upptalningunni er að þeir eiga sér allir sinn stað í hjarta mínu. Ég veit að það að vera „frá“ einhverjum stað þýðir venjulega að vera fædd þar, en fólk flytur og finnur sér ný heimkynni. Staði, sérstaka bæi og borgir sem við viljum kynnast nánar, læra um, lifa og ala börnin okkar upp í. Við viljum sjá þessa staði sem við höfum gert að heimkynnum lifa og dafna. Fyrir mér er Blönduós og Norðurland vestra svona staður, við hjónin keyptum okkur hús hér og viljum ala upp börnin okkar hér. Hér líður okkur vel. Við getum gengið í leikskólann, Catherine Chambers á Blönduósi skrifar Hvaðan ertu? ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN kristin@feykir.is í vinnuna, í búðina og ræktina meðan meðal Ameríkumaðurinn eyðir 101 mínútu á hverjum degi í bílnum. Mæður og börn hafa forgang, bróðir minn og mágkona eignuðust tvíbura í Bandaríkjunum og þurftu að borga $2.500 dollara (250.000 krónur) fyrir fæðingu hvors um sig (plús kostnaðurinn af mánaðarlegum læknisheimsóknum á meðgöngunni, og svo að borga dagvistun frá því að börnin eru fjögurra vikna því þá þurfti hún að byrja að vinna aftur). Hér sjáum við kunnugleg andlit í búðinni, fólk sem myndi taka sig saman um að hjálpa okkur ef á reyndi. Í Bandaríkjunum geturðu verið stödd í hafsjó af fólki en fundist þú samt vera alveg ein. Þó er ekki allt jafn auðvelt. Dóttir mín mun ekki alast upp við sunnudagsmat með afa og ömmu. Gamlar vinkonur eru langt í burtu svo saumaklúbburinn fer fram á Skype. Stundum gæti ég grátið yfir verðinu á fötum, mat og eldsneyti. Íslenskan er, veit ekki hvort þið trúið því, svolítið snúin og það getur verið einangrandi og vandræðalegt að hafa málþroska á við tveggja ára. Og það sem er verst fyrir manninn minn, ameríski fótboltinn er svo seint á dagskránni að það gengur ekki að sjá hann í beinni. Það er bara ekki einfalt að bera saman kosti og galla allra þeirra staða sem ég er frá. Stundum fer maður bara þangað sem lífið leiðir mann; ný hús, nýjir bæir, ný lönd, vinir, vinnur, hugmyndir, tækifæri. Það getur verið ógnandi, pirrandi, áhættusamt, spennandi, gaman og gefandi allt á sama tíma. Viltu spyrja mig aftur: Hvaðan ertu? Blönduósi. Punktur. - - - - - Ég skora á Svein Sveinsson á Blönduósi að taka við pennanum. Björn ásamt Söndru Kaubriene eiginkonu sinni. MYND: BJARNI FREYR BJÖRNSSON Pottinum sé fyrst og fremst leitast við að bjóða góðan mat á hagstæðu verði og sífellt sé verið að leita nýrra leiða til að bæta gæðin. „Einnig leggjum við áherslu á að hafa þrifalegt og fjölskylduvænt umhverfi. Það er fastur liður þegar líða fer að jólum að við bjóðum upp á glæsilegt jólahlaðborð með ljúffengum krásum. Þar er í boði er úrval af kjötréttum og fiskréttum, bæði heitum og köldum, og fjöldi forrétta og eftirrétta,“ segir hann og bætir við að þetta árið sé jólahlaðborð dagana 7. og 14. desember. Veitingastaðurinn Potturinn tók nýverið höndum saman við Glaðheima um að ráðast í markaðsátak en Glaðheimar, í eigu Lárusar B. Jónssonar, starf- rækir fjölda sumarhúsa á bökkum Blöndu og stórt tjaldstæði hinum megin við þjóðveginn frá Pottinum. Átak- ið segir Björn meðal annars felast í því að hafa samband við formenn starfsmannafélaga og starfsmannastjóra rúmlega þús- und fyrirtækja um allt land í því skyni að auka nýtingu utan annatíma. „Við hér í Austur-Húna- vatnssýslu verðum að vera dug- leg við að þróa nýja afþreyingu og styðja við þá sem fyrir er. Þar held ég að séu afar mörg ónýtt tækifæri og ég finn að áhugi er mikill á að efla þessa grein í sýslunni, ekki síst með auknu samstarfi á milli aðila sem eru í eða tengjast ferðaþjónustu,“ segir Björn. Að sama skapi segir hann ánægjulegt og hvetjandi að finna fyrir því að sveitar- stjórnarmenn sýni sömuleiðis mikinn vilja til þess að efla ferðaþjónustu á svæðinu. „Miðað við sífellda fjölgun ferðamanna og gríðarlega mikla umferð um þjóðveg 1, þá held ég að það hljóti að vera bjart framundan,“ segir hann að endingu.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.