Feykir - 20.11.2014, Blaðsíða 4
4 44/2014
Nám í hesta-
mennsku í FNV
Ég hef allan minn starfsaldur
starfað við hestamennsku. Ég
flyt í Skagafjörð 1998 og hef
búið þar og tamið og ræktað
hross síðan ásamt manni
mínum Birni Jónssyni. Vorið
2003 útskrifast ég sem
tamningamaður, þjálfari og
reiðkennari frá Hólaskóla.
Hef ég kennt hestamennsku
síðan, bæði börnum og
unglingum hér í Skagafirði og
ýmis kennsluverkefni annars
staðar. Árið 2004 tók ég við
kennslu í FNV . Hef ég lengi
haft þá ástríðu að vilja efla
kennslu í hestamennsku hér í
Skagafirði.
Kennsla í hestamennsku í FNV
er ekki ný af nálinni, hér hefur
verið boðið upp á valáfanga
síðan 2002. Hef ég kennt í FNV
um tíu ára skeið, tók ég við
keflinu af Ingimar Ingimars-
syni. Hefst þetta allt með
samstarfi Hólaskóla og FNV.
Höfum við líka verið með í
þróun og uppbyggingu
Knapamerkjanámsins sem
byrjaði í svokölluðu átaks-
verkefni í hesta-mennsku fyrir
margt löngu en hefur verið
staðsett í Hólaskóla. Samstarf
Hóla og FNV hefur alltaf verið
virkt og hafa fulltrúar Hólaskóla
alltaf séð um prófdæmingu.
Einnig hafa nemendur farið í
kennslu hjá nemum Hólaskóla
og fleira gott. Kennsla í skól-
anum hefur verið í formi
valáfanga þar sem nemendur
koma með sinn hest og ljúka
stigum í knapamerkjum með
verklegu og bóklegu prófi.
Stefnt hefur verið að því lengi
að setja af stað braut í
hestamennsku v ið FNV. Þykir
mér það líka eiga vel við hér í
Skagafirði þar sem við eigum
svo ríka sögu af hestum, hesta-
mönnum og hrossarækt.
Hólaskóli er eini reiðskólinn í
heiminum með íslenska hest-
inn sem er staðsetur hér í
Skagafirði á þeim sögufræga
stað Hólum. Þá má ekki gleyma
þeim stóra hópi sem starfar að
hestamennsku að atvinnu á einn
eða að annan hátt hér á svæðinu.
Vor 2013 sóttu FNV og FSU
um styrk til Menntamálaráðu-
neytis til námsbrautargerðar.
Sem og við fengum. Vinnan fól í
sér samráð, skipulag náms-
brauta, semja áfangalýsingar og
skrá í námskrárgrunn. Ég sem
fulltrúi FNV og Sigríður
Pjétursdóttir höfum haft hitann
og þungann af verkefninu,
einnig hafa starfað með okkur
kennarar í hestamennsku við
FSU. Nýttum við okkur niður-
stöður og gögn frá starfshópi
um viðmiðunarramma og
röðun náms á hæfniþrep í
hestamennsku. Voru knapa-
merkin hryggstykkið í þessum
viðmiðum sem notuð voru til
grundvallar hæfniþrepanna.
Höfum við starfað að þessu
síðan um haust 2013.
Höfum við nú að mestu lokið
hönnun og skrifum á
starfsnámsbraut í hestamennsku
sem er 2ja ára nám. Síðan býðst
nemendum að taka viðbótar-
nám á brautinni til stúdents-
prófs. Í náminu þurfa nemendur
að fara í tvær sex vikna
starfsnámslotur í atvinnulífinu.
Hér erum við svo heppin að í
nágrenni skólans erum við með
mjög mörg fyrirtæki sem reka
hestatengda þjónustu. Stefnt er
að því að kenna þessar brautir
með sama sniði í báðum
skólum. Áætlað að kennsla
hefjist haustið 2015. Tel ég þetta
vera mjög mikilvægt skref í þá
átt að eiga betur menntaða
starfsstétt sem og betri neyt-
endur fyrir þá þjónustu sem
atvinnugreinin nú þegar bíður
upp á. Umfang brautarinnar er
töluvert, sérgreinar í hesta-
mennsku eru stórar. Verklegi
þátturinn er stór; Fóðrun og
hirðing, kynning á járningum
og hófhirðu. Hugmyndin er að
fá hina ýmsu fagmenn innan
greinarinnar til kennslu og
kynningar á hesta-mennsku.
Markmið brautarinnar er að
útskrifa hæft starfsfólk til
aðstoðar í greininni svo sem á
tamningastöðvar, hestatengda
ferðaþjónustu, hrossaræktarbú
og reiðskóla. Einnig sem
undirbúning fyrir frekara nám í
Háskólanum á Hólum.
„Mennt er máttur,“ það er
hverju orði sannara. Í samfélagi
sem okkar hér í Skagafirði er
mjög mikilvægt að hafa sem
mesta möguleika á menntun og
þurfum við að standa vörð um
þennan þátt samfélagsins. Að
hafa aðgang að menntun í
heimabyggð er mjög mikilvægt
fyrir unga fólkið okkar og einnig
til að skapa menntuðu fólki störf
við hæfi. Á tímum niðurskurðar
ríður á að standa saman vörð
um þennan stólpa í samfélagi
okkar sem skólinn er og
mikilvægt að þeir sem búi á
svæðinu nýti sér þann kost að
stunda nám í heimabyggð og
beri hróður skólans síns sem
víðast. Tel ég einnig að við
getum boðið ungu fólki
möguleika á að koma lengra að í
AÐSENT ARNDÍS BRYNJÓLFSDÓTTIR SKRIFAR
Björgunarsveitin GRETTIR
er 80 ára og býður af því tilefni
til afmælisfagnaðar
Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi var stofnuð árið 1934.
Í ár er því 80 ára starfsafmæli sveitarinnar. Af því tilefni býður björgunarsveitin
félögum sveitarinnar, vinum og velunnurum til fagnaðar björgunarsveitarhúsinu á Hofsósi
laugardaginn 22. nóvember, milli 13 og 17.
Á sama tíma mun sveitin vígja viðbyggingu við húsnæði sveitarinnar.
VERIÐ VELKOMIN
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir er
18 ára stúlka frá Sauðárkróki,
dóttir Sigurjóns Viðars
Leifssonar og Steinunnar
Daníelu Lárusdóttur. Hún
æfir frjálsar íþróttir og
körfubolta og var nýverið valin
frjálsíþróttakona ársins 2014
hjá UMSS.
Helstu íþróttaafrek: - Hmm,
örugglega það að komast í ungl-
ingalandsliðið í frjálsum núna fyrr
í sumar og fá að keppa á Norður-
landamóti í hástökki, grindarhlaupi
og 4x100m boðhlaupi.
Skemmtilegasta augnablikið:
- Að bæta sig, en sérstaklega í
hástökki, mjög góð tilfinning að
vera komin yfir ránna og líka í körfu
þegar liðið vinnur verðskuldaðan
liðssigur það er alltaf einstaklega
skemmtilegt.
Neyðarlegasta atvikið: - Þegar ég
var svona sirka 11 ára þá fór ég
með mömmu í Skagfirðingabúð en
þegar við vorum að fara þá lét ég
pokana og settist inn í vitlausan
bíl, það var mjög vandræðalegt.
Einhver sérviska eða hjátrú? -
Nei, get ekki sagt það, en ef það
er eitthvað þá er ég eiginlega alltaf
með vatnsbrúsa og eina peru til að
borða á milli stökka þegar ég er að
keppa í hástökki.
Uppáhalds íþróttamaður? - Kobe
Bryant og Blanka Vlasic hafa verið
lengst í uppáhaldinu.
Ef þú mættir velja þér andstæð-
ing, hver myndi það vera og í
hvaða grein mynduð þið spreyta
ykkur? - Ætli það sé ekki litli bróðir
minn, þegar hann er orðinn eldri.
Tökum auðvitað 1on1 í körfu.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? - Ég spái mér sigri þar til
hann verður unglingur og líklegast
2 metrar á hæð, haha.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? - Hef einu sinni unnið í
bingó, vann 10 fría sundmiða í
Sundlaug Sauðárkróks, það var
mikill sigur fyrir mig sem vinn aldrei
í bingó.
Lífsmottó: - Bara brosa og hafa
gaman.
Helsta fyrirmynd í lífinu: - Ætli það
séu ekki bara mamma og pabbi,
þau hafa staðið sig ágætlega.
Hvað er verið að gera þessa dag-
ana? - Bara á fullu í skólanum og
að æfa. Lokaprófin nálgast og það
verður mjög ljúft að komast í jólafrí.
Hvað er framundan? - Við í
meistaraflokki í Frjálsum stefnum
á að fara til útlanda í æfingabúðir
næstu páska, ná góðum undir-
búning fyrir næsta sumar og þar
er auðvitað markmiðið að bæta sig
og fá að keppa fyrir Íslands hönd á
einhverju/m móti/um.
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir / frjálsar og karfa
Mjög góð tilfinning
að vera komin
yfir ránna
( GARPURINN ) berglind@feykir.is
nám til okkar því heimavist
skólans hefur tekið stakka-
skiptum og er mjög góð.
Hestamennska er ekki undan-
skilin, hér væru möguleikar að
taka á móti hestfólki hvaðan æfa
að af landinu.
Á komandi vorönn er
ætlunin að bjóða upp á kynn-
ingaráfanga á hestamennsku
sem við kusum að nefna Fákar.
Áfanginn er öllum opin og er
ætlunin að kynna hestamennsku
og komandi námsmöguleika
fyrir sem flestum. Munum við fá
kynningar úr atvinnulífinu sem
og fara í skemmtilegar vett-
vangsferðir til að kynna okkur
og kynnast hestamennsku í sem
flestum myndum. Hvet ég alla
sem hafa áhuga á að kynna sér
hestamennsku að skrá sig.
Arndís Brynjólfsdóttir
reiðkennari og hrossaræktandi á
Vatnsleysu Skagafirði
mt ... MYND: UMSS.IS