Feykir


Feykir - 20.11.2014, Blaðsíða 4

Feykir - 20.11.2014, Blaðsíða 4
4 44/2014 Nám í hesta- mennsku í FNV Ég hef allan minn starfsaldur starfað við hestamennsku. Ég flyt í Skagafjörð 1998 og hef búið þar og tamið og ræktað hross síðan ásamt manni mínum Birni Jónssyni. Vorið 2003 útskrifast ég sem tamningamaður, þjálfari og reiðkennari frá Hólaskóla. Hef ég kennt hestamennsku síðan, bæði börnum og unglingum hér í Skagafirði og ýmis kennsluverkefni annars staðar. Árið 2004 tók ég við kennslu í FNV . Hef ég lengi haft þá ástríðu að vilja efla kennslu í hestamennsku hér í Skagafirði. Kennsla í hestamennsku í FNV er ekki ný af nálinni, hér hefur verið boðið upp á valáfanga síðan 2002. Hef ég kennt í FNV um tíu ára skeið, tók ég við keflinu af Ingimar Ingimars- syni. Hefst þetta allt með samstarfi Hólaskóla og FNV. Höfum við líka verið með í þróun og uppbyggingu Knapamerkjanámsins sem byrjaði í svokölluðu átaks- verkefni í hesta-mennsku fyrir margt löngu en hefur verið staðsett í Hólaskóla. Samstarf Hóla og FNV hefur alltaf verið virkt og hafa fulltrúar Hólaskóla alltaf séð um prófdæmingu. Einnig hafa nemendur farið í kennslu hjá nemum Hólaskóla og fleira gott. Kennsla í skól- anum hefur verið í formi valáfanga þar sem nemendur koma með sinn hest og ljúka stigum í knapamerkjum með verklegu og bóklegu prófi. Stefnt hefur verið að því lengi að setja af stað braut í hestamennsku v ið FNV. Þykir mér það líka eiga vel við hér í Skagafirði þar sem við eigum svo ríka sögu af hestum, hesta- mönnum og hrossarækt. Hólaskóli er eini reiðskólinn í heiminum með íslenska hest- inn sem er staðsetur hér í Skagafirði á þeim sögufræga stað Hólum. Þá má ekki gleyma þeim stóra hópi sem starfar að hestamennsku að atvinnu á einn eða að annan hátt hér á svæðinu. Vor 2013 sóttu FNV og FSU um styrk til Menntamálaráðu- neytis til námsbrautargerðar. Sem og við fengum. Vinnan fól í sér samráð, skipulag náms- brauta, semja áfangalýsingar og skrá í námskrárgrunn. Ég sem fulltrúi FNV og Sigríður Pjétursdóttir höfum haft hitann og þungann af verkefninu, einnig hafa starfað með okkur kennarar í hestamennsku við FSU. Nýttum við okkur niður- stöður og gögn frá starfshópi um viðmiðunarramma og röðun náms á hæfniþrep í hestamennsku. Voru knapa- merkin hryggstykkið í þessum viðmiðum sem notuð voru til grundvallar hæfniþrepanna. Höfum við starfað að þessu síðan um haust 2013. Höfum við nú að mestu lokið hönnun og skrifum á starfsnámsbraut í hestamennsku sem er 2ja ára nám. Síðan býðst nemendum að taka viðbótar- nám á brautinni til stúdents- prófs. Í náminu þurfa nemendur að fara í tvær sex vikna starfsnámslotur í atvinnulífinu. Hér erum við svo heppin að í nágrenni skólans erum við með mjög mörg fyrirtæki sem reka hestatengda þjónustu. Stefnt er að því að kenna þessar brautir með sama sniði í báðum skólum. Áætlað að kennsla hefjist haustið 2015. Tel ég þetta vera mjög mikilvægt skref í þá átt að eiga betur menntaða starfsstétt sem og betri neyt- endur fyrir þá þjónustu sem atvinnugreinin nú þegar bíður upp á. Umfang brautarinnar er töluvert, sérgreinar í hesta- mennsku eru stórar. Verklegi þátturinn er stór; Fóðrun og hirðing, kynning á járningum og hófhirðu. Hugmyndin er að fá hina ýmsu fagmenn innan greinarinnar til kennslu og kynningar á hesta-mennsku. Markmið brautarinnar er að útskrifa hæft starfsfólk til aðstoðar í greininni svo sem á tamningastöðvar, hestatengda ferðaþjónustu, hrossaræktarbú og reiðskóla. Einnig sem undirbúning fyrir frekara nám í Háskólanum á Hólum. „Mennt er máttur,“ það er hverju orði sannara. Í samfélagi sem okkar hér í Skagafirði er mjög mikilvægt að hafa sem mesta möguleika á menntun og þurfum við að standa vörð um þennan þátt samfélagsins. Að hafa aðgang að menntun í heimabyggð er mjög mikilvægt fyrir unga fólkið okkar og einnig til að skapa menntuðu fólki störf við hæfi. Á tímum niðurskurðar ríður á að standa saman vörð um þennan stólpa í samfélagi okkar sem skólinn er og mikilvægt að þeir sem búi á svæðinu nýti sér þann kost að stunda nám í heimabyggð og beri hróður skólans síns sem víðast. Tel ég einnig að við getum boðið ungu fólki möguleika á að koma lengra að í AÐSENT ARNDÍS BRYNJÓLFSDÓTTIR SKRIFAR Björgunarsveitin GRETTIR er 80 ára og býður af því tilefni til afmælisfagnaðar Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi var stofnuð árið 1934. Í ár er því 80 ára starfsafmæli sveitarinnar. Af því tilefni býður björgunarsveitin félögum sveitarinnar, vinum og velunnurum til fagnaðar björgunarsveitarhúsinu á Hofsósi laugardaginn 22. nóvember, milli 13 og 17. Á sama tíma mun sveitin vígja viðbyggingu við húsnæði sveitarinnar. VERIÐ VELKOMIN Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir er 18 ára stúlka frá Sauðárkróki, dóttir Sigurjóns Viðars Leifssonar og Steinunnar Daníelu Lárusdóttur. Hún æfir frjálsar íþróttir og körfubolta og var nýverið valin frjálsíþróttakona ársins 2014 hjá UMSS. Helstu íþróttaafrek: - Hmm, örugglega það að komast í ungl- ingalandsliðið í frjálsum núna fyrr í sumar og fá að keppa á Norður- landamóti í hástökki, grindarhlaupi og 4x100m boðhlaupi. Skemmtilegasta augnablikið: - Að bæta sig, en sérstaklega í hástökki, mjög góð tilfinning að vera komin yfir ránna og líka í körfu þegar liðið vinnur verðskuldaðan liðssigur það er alltaf einstaklega skemmtilegt. Neyðarlegasta atvikið: - Þegar ég var svona sirka 11 ára þá fór ég með mömmu í Skagfirðingabúð en þegar við vorum að fara þá lét ég pokana og settist inn í vitlausan bíl, það var mjög vandræðalegt. Einhver sérviska eða hjátrú? - Nei, get ekki sagt það, en ef það er eitthvað þá er ég eiginlega alltaf með vatnsbrúsa og eina peru til að borða á milli stökka þegar ég er að keppa í hástökki. Uppáhalds íþróttamaður? - Kobe Bryant og Blanka Vlasic hafa verið lengst í uppáhaldinu. Ef þú mættir velja þér andstæð- ing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur? - Ætli það sé ekki litli bróðir minn, þegar hann er orðinn eldri. Tökum auðvitað 1on1 í körfu. Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? - Ég spái mér sigri þar til hann verður unglingur og líklegast 2 metrar á hæð, haha. Helsta afrek fyrir utan íþrótt- irnar? - Hef einu sinni unnið í bingó, vann 10 fría sundmiða í Sundlaug Sauðárkróks, það var mikill sigur fyrir mig sem vinn aldrei í bingó. Lífsmottó: - Bara brosa og hafa gaman. Helsta fyrirmynd í lífinu: - Ætli það séu ekki bara mamma og pabbi, þau hafa staðið sig ágætlega. Hvað er verið að gera þessa dag- ana? - Bara á fullu í skólanum og að æfa. Lokaprófin nálgast og það verður mjög ljúft að komast í jólafrí. Hvað er framundan? - Við í meistaraflokki í Frjálsum stefnum á að fara til útlanda í æfingabúðir næstu páska, ná góðum undir- búning fyrir næsta sumar og þar er auðvitað markmiðið að bæta sig og fá að keppa fyrir Íslands hönd á einhverju/m móti/um. Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir / frjálsar og karfa Mjög góð tilfinning að vera komin yfir ránna ( GARPURINN ) berglind@feykir.is nám til okkar því heimavist skólans hefur tekið stakka- skiptum og er mjög góð. Hestamennska er ekki undan- skilin, hér væru möguleikar að taka á móti hestfólki hvaðan æfa að af landinu. Á komandi vorönn er ætlunin að bjóða upp á kynn- ingaráfanga á hestamennsku sem við kusum að nefna Fákar. Áfanginn er öllum opin og er ætlunin að kynna hestamennsku og komandi námsmöguleika fyrir sem flestum. Munum við fá kynningar úr atvinnulífinu sem og fara í skemmtilegar vett- vangsferðir til að kynna okkur og kynnast hestamennsku í sem flestum myndum. Hvet ég alla sem hafa áhuga á að kynna sér hestamennsku að skrá sig. Arndís Brynjólfsdóttir reiðkennari og hrossaræktandi á Vatnsleysu Skagafirði mt ... MYND: UMSS.IS

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.