Feykir


Feykir - 19.02.2015, Page 2

Feykir - 19.02.2015, Page 2
2 7/2015 Veðrið hefur verið með eindæmum umhleypingasamt undanfarið og svo er einnig með lífið sjálft. Eftir vinnudag, sem að vanda er uppfullur af skemmtilegum uppákomum og lífsglöðu fólki, trítlar undirrituð léttfætt heim á leið. Fánar blakta í hálfa stöng á Króknum. Baráttukona á besta aldri hefur beðið ósigur þrátt fyrir hetjulega baráttu. Við erum enn og aftur minnt á hvað lífið er hverfult. Sjálf kynntist ég Elísabetu Sóleyju Stefánsdóttur ekki per- sónulega en hef líkt og margir aðrir fylgst með hetjulegri bar- áttu hennar við illvígan sjúkdóm og dáðst að æðruleysi hennar. Einnig hafði ég fylgst með henni á öðrum vettvangi, í baráttu við samfélagsmein sem í daglegu tali kallast einelti. Sú barátta vakti einnig aðdáun mína og vona ég svo sannarlega að við sameinumst öll í henni þótt óneitanlega sé skarð fyrir skildi þegar svo öflugan liðsmann vantar í hópinn. Minningin um Elísabetu Sóleyju og allt sem hún stóð fyrir mun lifa hér í Skagafirði sem annars staðar. Í aðalviðtali þessa blaðs er kennarinn og söngfuglinn Íris Olga Lúðvíksdóttir, búsett í Flatatungu í Skagafirði. Ég tel það forréttindi mín sem blaðamanns að fá reglulega að skyggnast inn í daglegt líf viðmælenda minna og kynnast þeim að einhverju marki. Íris Olga er ein þeirra sem „ná manni“ einhvern veginn strax, eins og sagt er. Það er ekki annað hægt en að smitast af gleði og gáska fólks sem gengur um brosandi og lætur gott af sér leiða. En svona streymir lífið áfram líkt og lækur sem stundum rennur ljúft áfram en oftar en ekki í einhverjar bugður, einhvers staðar á leiðinni, líkt og Gísli Ólafsson frá Eiríks- stöðum lýsir svo fallega í ljóði sínu Lækurinn: Æska hverfur. Yndi dvín. Allt er líkt og draumur. Áfram líður æfin mín eins og lækjarstraumur. Kristín Sigurrós Einarsdóttir, blaðamaður Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199 Blaðamenn: Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164 Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum LEIÐARI Skin og skúrir Jákvæður viðsnúningur í rekstri Aukaaðalfundur knattspyrnudeildar Tindastóls Ný stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls var kjörin á framhaldsaðalfundi knattspyrnudeildar Tindastóls fimmtudaginn 12. febrúar sl., auk þess fóru fram hefðbundin aðalfundastörf. Mikil ánægja var á meðal fundargesta með þann mikla jákvæða viðsnúning sem hefur orðið á rekstri deildarinnar síðasta árið. Samkvæmt rekstrarreikningi fyrir árið 2014 var hagnaður upp á 10.042.133 kr., sem er talsverður viðsnúningur frá árinu áður sem hljóðar upp á 17.734.482 kr. en árið 2013 var tap upp á -7.692.349 kr. Ómar Bragi Stefánsson formaður knattspyrnudeildar segir að stjórnin hafi sett sér það mark- mið að fara í sparnaðaraðgerðir og borga upp skuldir. Sú vinna hafi gengið vonum framar og skilaði rúmum 10 millj.kr. hagn- aði í ár. Helsti rekstrarliðurinn er Mfl. karla sem var 11.631.889 kr., næst komu yngri flokkar 9.580.024 kr. og svo Mfl. kvenna 6.961.296 kr. Langmestar tekjur gáfu fjáraflanir og styrkir sem hljóðuðu upp á 19.831.830 kr. Hin nýkjörna stjórn er Ómar Bragi Stefánsson, Skúli V. Jóns- son, Snorri Geir Hjartarson, Atli Hjartarson, Guðni Þór Einarsson og Ingvi Hrannar Ómarsson. Þrátt fyrir að knattspyrnudeildin hafi auglýst sérstaklega eftir konum til stjórnarsetu fékkst engin kona til embættisins. Það Samningur um sóknaráætlanir landshluta Atvinnu-, byggða- og menningarmál Nýlega var undirritaður samningur um sóknar- áætlanir landshluta sem felur í sér ákveðnar breytingar á úthlutun fjármagns frá ríkinu til atvinnu,- byggða- og menningarmála í hverjum landshluta fyrir sig. Þar með eru verkefnin Sóknaráætlanir landshluta, Vaxtarsamningar og Menningarsamningar sameinuð í einn samning. Heildarfjárhæð samninganna er ríflega 550 milljónir króna fyrir þetta ár en til viðbótar mun mennta- og menningarmála- ráðuneytið leggja til fjármagn til áframhaldandi reksturs menn- ingarmiðstöðva á Austurlandi og Suðurlandi. Þá munu nokkrar sértækar fjárveitingar renna inn í sóknaráætlanir einstakra lands- hluta. „Við undirbúning að sam- þættingu Vaxtarsamninga og Menningarsamninga við sókn- aráætlanir komu fram ákveðnar efasemdaraddir, sérstaklega úr menningargeiranum. Einhver hræðsla við að heimamönnum væri ekki treystandi til að ráðstafa og forgangsraða fjár- magni til menningarmála. Ég er Dagana 8.-14. febrúar var 176 tonnum landað á Skagaströnd, 7,4 tonnum á Hvammstanga, tæpum sjö tonnum á Hofsósi og 192 tonnum á Sauðárkróki. Alls gera þetta um 400 tonn á Norðurlandi vestra. Grásleppuvertíðin er handan við hornið en þegar er farið að leggja rauðmaganet og hafa tveir báta þegar landað rauðmaga á Sauðárkróki. Gunnar Steingrímsson hafnarvörður hjá Skaga- fjarðarhöfnum segir að búast megi við ágætu verði á grásleppuhrognun, enda ekki ein tunna af hrognum til í landinu. /KSE SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Alda HU 112 Landbeitt lína 12.781 Bergur sterki Landbeitt lína 2.347 Dagrún HU 121 Þorskanet 1.652 Diddi Gk 56 Landbeitt lína 4.514 Guðmundur á Hópi Landbeitt lína 14.913 Steinunn SF 10 Botnvarpa 131.801 Stella GK 23 Landbeitt lína 4.950 Sæfari HU 200 Landbeitt lína 3.229 Alls á Skagaströnd 176.187 Harpa HU 4 Dragnót 7.405 Alls á Hvammstanga 7.405 Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 2.615 Skáley SK 32 Línutrekt 4.322 Alls á Hofsósi 6.937 Gammur SK 12 Rauðmaganet 130 Hafborg SK 54 Þorskfisknet 1.835 Klakkur SK 5 Botnvarpa 190.188 Nona SK 141 Rauðmaganet 56 Vinur SK 22 Handfæri 403 Alls á Sauðárkróki 192.612 Aflatölur í viku sjö árið 2015 Tveir bátar á rauðmaga Vetrarhátíð Tindastóls Dagskrá 19.-21. febrúar Vetrarhátíð í Skagafirði verður dagana 19.-21. febrúar. Hátíðin saman- stendur af fjölbreyttri og fjölskylduvænni dagskrá, bæði skíðasvæðinu í Tindastóli og víðar um Skagafjörðinn, verður formlega sett í kvöld, fimmtudag, í Sauðárkróks- kirkju og svo rekur hver viðburðurinn annan. „Skíðasvæðið í Tindastóli er afar fjölskylduvænt skíða- svæði í fjallaparadísinni Tindastóli í Skagafirði. Fjallið býður upp á mikla möguleika, bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Allir geta því fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um er að ræða svigskíði, snjóbretti eða gönguskíði. Hægt er að leigja allan skíða- og brettabúnað í fjallinu,“ segir um hátíðina á vef Svf. Skagafjarðar. /BÞ Hátíðartónleikar í Miðgarði 50 ára tónlistarkennsla í Skagafirði Þann 5. janúar síðastliðinn voru liðin 50 ár síðan formleg tónlistarkennsla hófst í Skagafirði. Af því tilefni var efnt til hátíðartónleika sl. fimmtudag, þar sem nem- endur Tónlistarskóla Skaga- fjarðar, ásamt kennurum, buðu upp á fjölbreytta dagskrá í Miðgarði. Fyrsti fundur áhugamanna um tónlistarlíf á Sauðárkróki var haldinn þann 5. apríl 1963, og var ákveðið að stofna tón- listarfélag. Helsta markmið félagsins var að efla tónlistarlíf í Skagafirði og að stofna tónlist- arskóla. Tónlistarskóli Skaga- fjarðar var settur þann 5. janúar 1965. Þetta fyrsta skólaár voru tuttugu nemendur og tveir kennarar starfandi við skólann, þau Eyþór Stefánsson og Eva Snæbjarnardóttir. /KSE voru ákveðin vonbrigði að sögn Ómars Braga en ákveðið hefur verið að halda sæti lausu ef ske kynni að einhver sýndi því áhuga og eru konur enn hvattar til að gefa kost á sér. /BÞ þess fullviss að þetta er ástæðu- laus ótti,“ sagði Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands Íslenskra sveitarfélaga, í ávarpi við undirritun hins nýja samning. /KSE

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.