Feykir


Feykir - 19.02.2015, Qupperneq 9

Feykir - 19.02.2015, Qupperneq 9
7/2015 9 Elísabet Sóley Stefánsdóttir Elísabet Sóley Stefánsdóttir er látin, 37 ára að aldri, eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Hún lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 15. febrúar síðastliðinn. Elísabet verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju næstkomandi laugardag kl. 14. Minningarathöfn verður haldin í Seljakirkju í Reykjavík föstudaginn 27. febrúar og hefst hún kl. 20. Elísabet greindist með krabbamein í júlí á síðasta ári. Hún lét aldrei deigan síga í baráttu sinni og var allan tímann staðráðinn í að vinna bug á meininu. Hún deildi sjúkdómsreynslu sinni á Facebook og vefnum Innihald. is, sem hún ritstýrði, og sagði m.a. sjúkrasögu sína á einlægan og opinskáan hátt í viðtali í Feyki í október síðastliðnum. Elísabet var Króksari í húð og hár, eins og hún lýsti því sjálf. Foreldrar hennar eru Stefán Jón Skarphéðinsson frá Gili og Ólína Rut Rögnvaldsdóttir. Hún lætur eftir sig þrjár dætur; Hörpu Katrínu, Sólveigu Birnu og Rebekku Hólm. Elísabet var tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt og var að ljúka MA-námi í sálfræði í uppeldis- og menntunarfræðum, með áherslum á áhættuhegðun, forvarnir og lífssýn. Samhliða meistaranámi starfaði Elísabet sem ráðgjafi í eineltismálum og vann við afleysingastörf á meðferðarheimilinu Stuðlum. Feykir sendir aðstandendum Elísabetar innilegar samúðarkveðjur. Minningartónleikar í Tjarnarbíói 26. mars Nokkrir vinir og vandamenn Elísabetar höfðu ráðgert að halda styrktartónleika fyrir hana og dæturnar þann 26. mars næstkomandi. Ákveðið hefur verið að halda þeirri dagsetn- ingu óbreyttri og halda minningartónleika í Tjarnarbíói í Reykjavík þetta kvöld. Öll innkoma á tónleikunum mun renna í sjóð til styrktar dætrum Elísabetar. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Fjöldinn allur af listamönnum kemur fram á tónleikunum og hafði Elísabet valið þá flesta sjálf. Meðal tónlistarmanna má nefna Regínu Ósk, Siggu Beinteins, Gumma Jóns og Vestanáttina, Jógvan og Vigga, Pétur Ben og skagfirsku söngvarana Sólveigu Fjólmunds, Kristján Gísla og Ægi Ásbjörns. /BÞ A N D L Á T Dagdvöl aldraðra fær nýtt sjónvarp Lionsklúbburinn Björk færir Dagdvöl aldraðra höfðinglega gjöf Konur úr Lionsklúbbnum Björk komu færandi hendi í Dagdvöl aldraðra á Sauðárkróki á dögunum. Nú var svo komið að sjónvarpið í setustofu Dagdval- arinnar var komið til ára sinna og ófært um að taka við stafrænum sendingum hins nýja dreifikerfis Ríkissjónvarps- ins. Lionskonur fengu fregnir af stöðunni og gengu í málið. Þrír starfsmenn Dagdvalar aldr- aðra eru meðlimir í Lions- klúbbnum og upplýstu systur sínar í klúbbnum um uppkomna stöðu með tilkomu hins nýja dreifikerfis RÚV. „Við eru heppnar með það að klúbburinn skuli vera boðinn og búinn til að hjálpa okkur,“ sagði Elísabet Pálmadóttir forstöðukona Dag- dvalar aldraðra í samtali við blaðamann Feykis. Viðstaddir klöppuðu Lions- konum lof í lófa, þegar Sigur- björg Guðjónsdóttir formaður klúbbsins afhenti Elísabetu fjar- stýringuna að sjónvarpinu. Við tilefnið sagði Sigurbjörg aðeins frá félagskapnum. Klúbburinn var stofnaður árið 1986, og hét þá Lionessuklúbburinn Björk, en var breytt í Lionsklúbbinn Björk árið 1994. Meðlimir klúbbsins eru 30 konur og eru aðal fjáröflunarleiðir þeirra sala plastpoka fyrir sláturtíð á haustin og ýmis önnur tilfallandi verkefni eins og hreingerningar í fyrirtækjum og fleira. Lionsklúbburinn Björk fjár- magnaði kaup á viðkomandi sjónvarpstæki með því að bjóða öllum félögum í Lionsklúbb- unum í Skagafirði til súpufundar, þar sem allar veitingar voru framreiddar og gerðar af félagskonum. Á fundinum voru einnig seldir happdrættismiðar þar sem í boði voru góðir vinningar sem gefnir voru af einstaklingum og fyrirtækjum á Sauðárkróki og færa Bjarkirnar þeim öllum bestu þakkir fyrir. Blaðamaður Feykis ræddi við nokkra skjólstæðinga Dag- dvalarinnar sem voru hæst- ánægðir með nýja tækið en þess má geta að það var einnig Lions- klúbburinn Björk sem gaf gamla sjónvarpið, sem hið nýja leysir af hólmi, árið 1998. Dagdvöl aldraðra er dag- þjónusta fyrir aldraða ein- staklinga í Skagafirði og er opið fimm daga vikunnar. Markmið starfsins er að veita hjálp til þess að hinn aldraði geti búið eins lengi á heimili sínu og kostur er en þurfi ekki að leggjast inn á sólarhringsstofnun fyrr en hann óskar þess sjálfur. /BÞ Svanhildur býr á Sauðárkróki og hefur hún vanið komur sínar á Dagdvölina á annað ár en kemur einn dag í viku. „Við förum í föndur en ég hef verið að gera þar ýmislegt sem ég hef aldrei gert áður, eins og mála á tau, skreyta kerti og viðarhluti,“ segir Svanhildur og heldur áfram: „Mér finnst voðalega gaman að fást við viðarhluti, t.d. öskjur undir skartgripi. Þær eru pússaðar og lakkaðar og svo eru notaðir stenslar til þess að setja myndir á þær.“ Svanhildur segist þekkja margt af fólkinu sem kemur í Dagdvölina en ekki eins margar af stúlkunum sem starfa þar. „Það er yndislegt að vera hérna, einu orði sagt. Ég hef hug á því að fá fleiri daga en ég er þokkalega spræk ennþá,“ segir hún og hlær. Svanhildur Guðjónsdóttir, Sauðárkróki „Yndislegt að vera hérna“ Sigrún byrjaði að koma í Dagdvöl aldraðra í fyrra og kemur tvisvar í viku. Hún segir mjög skemmtilegt að koma þangað til að hitta fólk og blanda geði. Aðspurð um hvað það sé helst sem hún geri þar svarar Sigrún að hún fari t.d. í vatnsleikfimi og í salinn til að gera æfingar. Þá þykir henni föndrið afskaplega skemmtilegt. „Ég er til dæmist að mála trékistla og nú er ég að mála dúk. Það er mjög skemmtilegt,“ segir hún. Sigrún Hróbjartsdóttir, Hamri „Föndrið afskaplega skemmtilegt“ Friðberg hefur vanið komur sínar í Dagdvölina um nokkurt skeið og segist yfirleitt taka lífinu með ró þegar hann kemur, sem er tvisvar í viku, nema þegar eitthvað er um að vera. Þá spilar hann eða fer í bingó. „Þetta er mjög mikið og gott starf sem hér er unnið fyrir aldrað fólk, það er ekki spurning.“ Friðberg er búsettur á Sauðárkróki en hann segist hafa flutt í fjörðinn árið 1953. „Þegar ég kom hingað fyrst þá ætlaði ég mér bara að vera eitt ár en það er ekki liðið,“ segir hann og hlær. Friðberg Sveinsson, Sauðárkróki „Mikið og gott starf sem hér er unnið“ Stefán segist koma flesta daga vikunnar, bæði sér til hressingar en einnig til að hafa ýmislegt að gera. „Ég fer í sund og geri ýmislegt til að viðhalda þrekinu og halda mér við. Ég fór til dæmis í sund í dag með stelpunum, þetta er allt kvenfólk og ég er einn með þeim,“ segir hann brosandi og bætir við að það sé bara frábært. Stefán Pálsson, Sauðárkróki Frábært að fara í sund með stelpunum Sigurbjörg færir Elísabetu fjarstýringuna að hinu nýja sjónvarpi. MYND: BÞ Í dag eru 30 einstaklingar sem nýta sér þjónustu Dagdvalar. Misjafnt er hversu marga daga í viku hver nýtir sér. Sveitarfélagið Skagafjörður hefur leyfi fyrir ellefu þjónusturýmum frá Velferðar- ráðuneytinu.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.