Feykir - 26.02.2015, Blaðsíða 10
10 8/2015
Merete nýr formaður
sauðfjárbænda í Skagafirði
Aðalfundur Félags Sauðfjárbænda í Skagafirði
Aðalfundur Félags
Sauðfjárbænda í Skagafirði
var haldinn á Löngumýri á
dögunum og var prýðilega
sóttur. Gestir fundarins voru
Óli Viðar Ágústsson sölustjóri
hjá Kjötafurðastöð KS og Atli
Már Traustason stjórnar-
maður í Landssamtökum
Sauðfjárbænda.
Atli Már gerði grein fyrir starfi
samtakanna og undirbúnings-
nefndar sem hefur það hlutverk
að móta hugmyndir varðandi
gerð nýs búvörusamnings milli
Landssamtakanna og ríkisins.
Á fundinum urðu formanns-
skipti. Ásta Einarsdóttir á Veðra-
móti hafði lokið kjörtíma sínum
og var Merete Rabölle á Hrauni
kosinn formaður í hennar stað.
Ný í stjórn komu Linda Jóns-
dóttir, Árgerði, og Guttormur
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir
kostir
til að ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er með 2% vexti,
bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu
yfir 20 milljónir, 4,20% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu,
óverðtryggð og óbundin 4,10% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
KS INNLÁNSDEILD
N
Ý
PR
EN
T
eh
f
Byggðastofnun –
húsnæði óskast
Byggðastofnun óskar eftir skrifstofuhúsnæði
á Sauðárkróki fyrir starfsemi sína til kaups eða
á leigu. Ef um leigu er að ræða er miðað við að
húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til allt að
25 ára. Húsnæðið skal vera fullbúið til notkunar,
án lauss búnaðar.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð u.þ.b. 1000 m².
Húsnæðið skal vera hefðbundið skrifstofu- og þjónustu-
húsnæði. Nánari upplýsingar um kröfur til gerðar og búnaðar
húsnæðisins veita Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri
eða Magnús Helgason forstöðumaður rekstrarsviðs
Byggðastofnunar í síma 455 5400. Við mat á hagkvæmni
tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og
skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, afhendingar-
tíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum.
Gögn sem fylgja tilboði þurfa m.a.
að innihalda eftirfarandi:
1. Afhendingartíma
2. Stærð húsnæðis og tillöguteikningar
3. Staðsetningu húsnæðis
4. Fjölda bílastæða sem tilheyra húsnæðinu
5. Leiguverð pr/m² og heildarleiguverð
6. Húsgjöld
Tilboðum skal skilað til Byggðastofnunar Ártorgi 1,
Sauðárkróki, eigi síðar en 12. mars nk.
Byggðastofnun | Ártorg 1 | 550 Sauðárkrókur | Sími 455 5400 | www.byggdastofnun.is
Stefánsson, Grænumýri, en
áfram sitja Jón Númason, Þrasa-
stöðum, og Stefán Magnússon,
Þverá. Í lok fundar voru sam-
þykktar nokkrar ályktanir varð-
andi hagsmunamál félagsmanna.
Á fundinum voru veittar
ýmsar viðurkenningar til þeirra
sem sköruðu fram úr með
ýmsum hætti í sauðfjárræktinni
á árinu 2014 og kom það í hlut
nýkjörins formann að afhenda
þær og farandgripi sem veittir
eru fyrir bestu hrúta héraðsins
árlega. / Texti og myndir: ÖÞ
Keldudalsbúið á besta sláturlambahóp haustsins. Hér tekur Guðrún Lárusdóttir t.v. á
móti viðurkenningu frá Merete Rabölle.
Valdimar í Vallanesi gat brosað breytt. Vallanesbúið átti
besta lambhrútinn, besta veturgamlahrútinn og var af-
urðahæsta bú héraðsins.
Frá Rípurbúinu voru mættir þrír ættliðir. Frá vinstri: Elvar,
Birgir og Þórður Þórarinsson og þeir fengu viðurkenningu
fyrir besta fullorðna hrút Skagafjarðar 2014.
Afurðahæsta ær ársins 2014 var á búi Hjördísar og Jóhann-
esar á Brúnastöðum í Fljótum. LJÓSM./ÖRN ÞÓRARINSSON.
Hrefna Hafsteinsdóttir Hóli í Sæmundarhlíð tók við viður-
kenningu fyrir besta lífgimbrahópinn 2014.
Skondin tilviljun
Skagfirsk ungmenni útskrifast
Feyki barst mynd af þessum þremur
skagfirsk ættuðu ungmennum sem
útskrifuðust samtímis úr Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ þann 20. desember síðast
liðinn. Ungmennin heita Anna Pála
Þorsteinsdóttir, Einar Logi Þorvaldsson
og Inga Valdís Tómasdóttir.
Það vill svo skemmtilega til að stúlkurnar eiga
báðar ömmur og alnöfnur á Sauðárkróki. Amma
Önnu Pálu heitir einnig Anna Pála Þorsteinsdóttir
en afi hennar heitir Þráinn Valur Ingólfsson.
Amma Ingu Valdísar er Inga Valdís Tómasdóttir
en afi Helgi Rafn Traustason heitinn, fyrrum
kaupfélagsstjóri (d. 1981).
Móðir Einars Loga er Kristín Snorradóttir og
faðir hans er Þorvaldur E. Þorvaldsson. /BÞ
Anna Pála, Einar Logi og Inga Valdís.
MYND: ÞORSTEINN VALSSON